Frjáls verslun - 01.01.1945, Page 15
löndum. Kveðst hann hafa íslenzkað bókina, sem
er rituð á lágþýzku, og sé það ósk sín, að félagið
gefi hana út, og skuli hagnaður af útgáfu hennar
renna í húsbyggingarsjóð V. R. Form. þakkaði Guð-
brandi prófessor þessa ágætu gjöf, en hann var
gestur félagsins þetta kvöld ásamt konu sinni. Sam-
kvæmisgestir tóku undir þakkarorð formanns með
því að hylla prófessorinn með ferföldu húrrahrópi.
Síðan las varaform. félagsins, Konráð Gíslason,
bréf, sem félaginu hafði borizt frá formanni þess,
ásamt peningagjöf að upphæð kr. 5000,00. í bréf-
inu er það tekið fram, að fé þessu skuli varið til
kaupa á listaverkum til prýðis fyrir félagsheimilið.
Varaform. færði Oddi Helgasyni þakkir fyrir þessa
stórgjöf. Var Oddur að launum hylltur af öllum
viðstöddum.
Þessu næst kunngjörði íorm., að félagsstjornin
hefði ákveðið að heiðra tvo meölimi félagsins með
því að kjósa þá til heiðursfélaga, þá Hjört Hans-
son stórkaupm. og Egil Guttormsson stórkaupm.,
fyrrv. formenn félagsins. Lýsti hann starfsferli
beggja þessara manna innan V. R. Hjörtur hefur
verið félagsmaður um 40 ára skeið, setið samfleytt
25 ár í stjórn eða neíndum félagsins og verið form.
þess í 2 ár. Egill hefur vorið félagsmaður í 25 ár,
átt sæti í stjórn í 18 ár og verið form. um 7 ára
skeið. Form. þakkaði báðum frábæran dugnað og
hollustu V. R. til handa og afhenti þeim síðan
skrautrituð heiðursskjöl, undirrituð af stjórn fé-
lagsins. Að því búnu hylltu veizlugestir hina ný-
kjörnu heiðursfélaga.
Eftir þetta var einsöngur. Kristján Kristjánsson
söng nokkur lög við beztu undirtektir. Páll Kr. Páls-
son annaðist undirleik.
Þá kvaddi sér hljóðs Guðbrandur Jónsson pró-
fessor. Skýrði hann frá uppruna höfuðbókar þeirr-
ar, er hann gaf V. R. og talaði jafnframt um sagn-
fræðigildi verzlunarbóka. Kom hann víða við í ræðu
sinni og beitti, ásamt fróðleiknum, tíðum fyrir sig
gamansemi.
Síðastir ræðumanna voru hinir nýkjörnu heiðurs-
félagar, Hjörtur Hansson og Egill Guttormsson.
Minntust þeir kynna sinna við félagið, óskuðu því
farsælla komandi tíma og þökkuðu núverandi stjórn
þess fyrir heiðursveitinguna.
Að svo búnu sleit form. borðhaldinu. Þá var kl.
um 11,30. -— Eftir að borð höfðu verið rudd, hófst
dans, sem stóð með miklu fjöri til kl. 4 e. miðn.
Skemmtunin öll tókst ágæta vel og var í senn
veizlufólki til óblandinnar ánægju og félagsstjórn-
inni til sóma.
Þess má — og enda ber — að geta að form. fé-
lagsins veitti í uphafi hófsins öllum borðgestum
samkvæmisins, 350 að tölu, dýrindis ,,cocktail“, sem
hann kostaði sjálfur. Er slíkt frábær rausn og fátíð.
Ráðskonuskipti
á félagsheimilinu.
Magnea Magnúsdóttir.
Um s. 1. áramót urðu ráðskonuskipti á félags-
heimili V. R.
Þá lét af störfum frk. Sigríður Björnsdóttir, sem
verið hafði ráðskona heimilisins um tveggja ára
skeið. Frk. Sigríður var félaginu hinn mætasti
starfsmaður, stjórnsöm og áhugasöm í starfi sínu.
— „Frjáls verzlun" vill, fyrir félagsins hönd, færa
henni þakkir fyrir liðinn starfstíma og óska henni
velfarnaðar í framtíðinni.
Hin nýja ráðskona er frk. Magnea Magnúsdóttir,
sem kunn er að vinsældum fyrir ráðskonustörf sín
að Laxamýri í Þingeyjarsýslu undanfarin sumur,
en þar annaðist hún matreiðslu fyrir laxveiðimenn.
Þegar er sýnt, að hún muni leysa störf sín af hendi
með miklum ágætum, í hinni nýju stöðu, svo að
telja má víst, að hún afli sér eigi síður hróðurs
meðal verzlunarmanna en veiðimanna. -— I nafni
félagsins býður „Frjáls verzlun" frk. Magneu vel-
komna til starfsins og væntir góðs samstarfs við
hana og langvarandi.
FRJÁLS YERZLUN
15