Frjáls verslun - 01.01.1945, Side 17
Starfsemi V. R. árið 1944.
Skýrsla fráfarandi formanns.
Frá því að síðasti aðalfundur var haldinn, 30.
nóv. síðasta ár, og þar til nú, hafa verið haldnir
4 félagsfundir og 28 stjórnarfundir. Mun ég hér á
eftir, í þessari skýrslu minni, gefa stutt yfirlit yfir
það helzta, sem gerzt hefur á þessu síðasta starfs-
tímabili félagsins, enda þótt nokkurs af því hafi
verið getið í blaði þess.
Á síðasta aðalfundi nam tala virkra félaga 1128
Nýir félagar ...........*.................. 60
Flutt af aukaskrá ............................ 1
Samtals 1189
-h Nú settir á aukaskrá ..................... 13
1176
h- Útstrikanir vegna úrsagna og skulda .... 52
1124
h- Dánir ................................... 5
Virkir félagar nú .................'....... 1119
Heiðursfélagar ............................... 9
Settir á aukaskrá fyrr og nú .............. 54
Nú samtals 1182
Hefur hinna mætu félaga, er látizt hafa á starfs-
tímabilinu, verið getið á undanförnum fundum fé-
lagsins og minnzt að öðru leyti á viðeigandi hátt.
•— Þann 3. des. síðasta ár átti Thor Jensen kaupm.
80 ára afmæli. Fóru form. og tveir aðrir félagar,
þeir: Stefán G. Björnsson og Egill Guttormsson, í
heimsókn til afmælisbarnsins á þessum merkisdegi,
í umboði félagsins. Flutti form. honum stutt ávarp
og afhenti honum, að gjöf frá félaginu, silfurbikar
með áletruðu nafni viðtakanda, árnaðaróskum og
þakkarorðum, honum til handa, fyrir höfðinglega
rausn og velvild í garð félagsins. Þakkaði hinn
FRJÁLS VERZLUN
aldurhnigni, en þó síungi heiðursfélagi, gjöfina og
árnaðaróskirnar með hlýjum velvildarorðum í garð
félagsins, um leið og hann óskaði því gæfu og
gengis um ókomna framtíð. Hefur þessa atburðar
verið getið nánar í blaði félagsins „Frjáls verzlun“.
Hinn 29. des. síðastl. ár efndi félagið til jóla-
kvöldvöku að félagsheimilinu. Séra Friðrik Hall-
grímsson dómprófastur flutti þar jólahugleiðingar,
jóla- og nýárssálmar voru sungnir, Árni Jónsson
frá Múla söng einsöng, Fritz Weisschappel spilaði
nokkur lög á píanó og annaðist að öðru leyti undir-
leik undir einsöngnum og sálmasöngnum. Voru
salarkynni félagsheimilisins færð í skrautlegan há-
tíðabúning. — Fór kvöldvaka þessi í alla staði vel
fram og þótti hin bezta.
Jólatrésskemmtanir fyrir börn félagsmanna voru
haldnar þann 6. og 7. janúar, að þessu sinni í Lista-
mannaskálanum. Sóttu þær um 650 börn, auk full-
orðinna, sem voru í fylgd með þeim, og er þetta sá
mesti f jöldi, sem verið hefur á jólatrésskemmtunum
félagsmanna. Þótt skemmtanir þessar færu fram
með mikilli prýði og allt gjört fyrir börnin, þeim
til gleði og ánægju, virtist samt sem þær hefðu
ekki eins heillandi áhrif á börnin bg árin fyrir, er
slíkar skemmtanir voru haldnar að félagsheimilinu.
53. afmæli félagsins var haldið hátíðlegt með
samsæti og dansi að Hótel Borg þann 29. janúar.
Formaður setti hófið og stjórnaði því. Ræður fluttu
þeir Magnús Jónsson prófessor, Ludvig Hjálm-
týsson, Konráð Gíslason og Egill Guttormsson.
Sungnir voru undir borðum ýmsir söngvar, en þá er
staðið var upp frá borðum, byrjaði dansinn, er
stóð til kl. 3 um nóttina. Þátttakendur voru á 4.
hundrað. Fór hóf þetta að öllu leyti vel fram og
var félaginu til sóma.
Daginn fyrir 17. júní var framkvæmd skreyting
á framhlið húseignar félagsins, Vonarstræti 4, með
ísl. fánum, fánalengjum, blómum og blómsveigum
og mynd af Jóni forseta Sigurðssyni, í tilefgni af í
hönd farandi hátíðahöldum á stofndegi hins ísl. lýð-
17