Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1949, Qupperneq 1

Frjáls verslun - 01.05.1949, Qupperneq 1
íslenzkir stórkaupmenn haia langflestir að- setur sitt í Reykjavík, og er það í sjólíu sér ofur skiljanlegt, enda þótt vafalaust vœri œski- legra að þeir veldu sér samastað á öllum að- alhöfnum landsins, fleiri en einn eða tveir í stað. En til þess þurfa að breytast til batnaðar skipagöngur til landsins og frá, og það er blátt áfram lífsnauðsyn héraðanna og réttlœtiskrafa þeirra, að siglingum flutningaskipa vorra verði komið í það horf, að þau séu fermd og affermd á helztu höfnum landsins, án þess að vörun- um sé umskipað í Reykjavik. Þetta er eitt af mestu hugarmálum þriggja landsfjórðunga, og virðist vera rammasta ósvinna að standa gegn því og hafast lítt eða ekki að. Fyrir utan fjárhagshliðina er sá mikli ókost- ur við núverandi fyrirkomulag í þessum efn- um, að hœtt er við að kaupsýslumönnum í Reykjavík sjáist yfir eða gleymist hinar sérstöku þarfir sveitanna, sem enn eru nœsta frábrugðn- ar kröfum hins nýja og hraða tima borgar- lífsins. Séu veruleg brögð að þessu, hlytur svo að fara, að heildsalastéttin bíði álitshnekki, enda þótt að einhverju Ieyti megi kenna inn- flutningsyfirvöldunum um ástandið. Stórkaup- menn munu líka hafa af þessu beinan fjárhags- legan óhag, þvi að það dregur óhjákvœmi- lega úr öðrum viðskiptum jafnframt og fleygir þeim í fang kaupfélaganna, sem standa betur að vígi gagnvart Samb. isl. samvinnufélaga en kaupmenn gagnvart heildsölum til útveg- unar á þeirri vöru, sem sveitafólkinu hentar. Það er t. d. ávirðing á innflytjendur, SÍS þó allra frekast, að sveitafólkið skuli þurfa að sitja í myrkrinu á vetrum, af því að hvergi er að fá olíulampa, lampaglös eða kveiki, eins og raun- in mun sumstaðar hafa verið í vetur sem leið. Að þessari vinsamlegu bendingu skulu hag- sýnir kaupsýslumenn hyggja. Frá þvi striðinu lauk, hafa verið mikil brögð að því, að útlendingar hafi leitað vinnu hing- að til lands og fengið leyfi stjómarvaldanna til að stunda hana. Alloft hafa þetta verið góð- ir kunnáttumenn í ýmsum sérgreinum, svo reynzt hefur ávinningur að fá notið starfskrafta þeirra, því að hörgull er víða á mannafla. Get- ur þetta timarit sem bezt minnst eins manns úr þessum hópi. Það er danskur prentari, sem um tvö ár hefur unnið að vélsetningu blaðsins og leyst verk sitt af hendi með mestu ágœtum, nákvœmni og smekkvísi. enda þótt prentiðnin krefjist eflaust mun meiri árvekni aí útlending- um en flest önnur iðnfög. Á hinn bóginn hafa œrið margir þeirra, sem hér hafa fengið at- vinnu reynzt liðléttingar og ónytjungar eða orð- ið til að bola íslenzku fólki frá vinnumarkaðinum. þótt þeir raunar hafi verið hœfileikum búnir. Verzlunarstéttin hefur ekki farið öldungis varhluta af ásókn útlendra manna, þó að henn- ar hafi þar gœtt mun minna en í mörgum ^öðrum greinum. Þessvegna hefur Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur nýlega ritað félags- ► málaráðuneytinu og atvinnuleyfanefnd bréf, þar sem eindregið er hvatt til stöðvunar á inn- r flutningi útlendra til verzlunarstarfa. Vœnt- “ anlega verður þessi réttmœta ósk félagsins fyllilega tekin til greina, en sjálfsagt er samt U að verzlunarfólk sé vel á varðbergi um þetta. ^Að undanförnu hefur orðið mikill samdráttur í verzlunarrekstri og mörgu ágœtlega starf- »hœfu fólki verið sagt upp vinnu þessvegna. £ Það nœr þvi ekki nokkurri átt að erlendir menn "'gíni yfir þeim stöðum, sem til kunna að falla pendrum og sinnum. Kaupsýslumenn verða líka t að minnast þess, að þeim ber, samkv. samn- £ingsskráðum bókstai, að ráða til sin félags- febundið verzlunarfólk öðrum fremur. Undan- "brögð frá því eru refsiverð.

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.