Frjáls verslun - 01.05.1949, Page 4
millj. kr.
1. Námskostnaður ............................. 6.0
2. Ferða- og dvalarkostnaður ............... 3.5
3. Sjúkrakostnaður ........................... 1.5
4. Vinnulaun ................................. 1.0
5. Eignayfirfærsla ........................... 0.1
6. Afborganir og vextir af lánum (annarra en
bæjarfélaga) .............................. 7.0
7. Skipaleiga (fragt) ....................... 25.0
8. Tryggingar ............................... 17.0
9. Skipaviðgerðir ............................ 4.5
10. Umboðslaun ................................ 1.6
11. Vegna Bernarsambandsins ................ 0.3
12. Önnur gjaldeyrisleyfi ...................... 2.0
13. Til sendiráða, og aðrar ríkisgreiðslur . . 6.5
14. Ymsar greiðslur (án leyfa) ................ 8.0
15. Óviss gjöld, sem fjárhagsráð ráðstafar síðar 6.0
Samtals 90.0
Frá dregst: Áætlaðar duldar tekjur......... 59.0
Gjöld umfram tekjur ................. 31.0
Samkvæmt því, sem rakið hefur verið hér að fram-
an, er heildaráætlun ársins 1949
fyrir vöruinnflutning ............... millj. kr. 386.5
— duldar greiðslur umfram tekjur — — 31.0
Alls millj. kr. 417.5
Árið 1948 var heildaráætlunin kr. 389.3 millj.
Kemur hækkunin frá áætlun síðasta árs einkum
fram í því, að ríflegar hefur verið áætlað í flest-
um neyzluvöruflokkum.
I greinargerð fjárhagsráðs fyrir áætluninni
segir að öðru leyti á þessa leið:
Innflutningsáætlun þessi fyrir árið 1949 er
gerð eftir sömu grundvallarreglum og áætlun s.l.
árs, að því leyti að hún er áætlun um innflutn-
ings- og gjaldeyrisþörf ársins. Hún segir því ekki
til um væntanlegar leyfisveitingar, þ. e. útgefin
innflutnings- og gjaldeyrisleyfi á árinu, því að
inn á hana koma framlengingar levfa frá s.l. ári,
og á hinn bóginn færist nokkuð af leyfisveiting-
ttm þessa árs yfir til hins næsta.
Þegar áætlun er gerð um innflutningsþörf,
verður að styðjast við almennar staðreyndir,
s. s. fólksfjölda, gildandi skömmtunarreglur,
báta og skipastól á veiðum, framleiðslumagn,
fyrirfram ákveðna fjárfestingu o. s. frv. Þá hefur
verið höfð hliðsjón af meðalinnflutningsmagni
s.i. fimm ára, samkv. verzlunarskýrslum hagstof-
unnar.
En nrest hefur verið stuðst við innflutnings-
áætlun ársins 1948 og það, sem í ljós hefur kom-
ið við framkvæmd hennar. Sú áætlun var að vísu
frumsnríð, en In'-n stóðst þó í meginatriðum, og
samning hennar og framkvæmd hefur því orðið
gagnlegur undirbúningur þessa starfs. Sérstak-
lega er vert að gefa því gaum, hve mikil gjald-
eyrissala var á árinu í hverjum flokki, því að
lrún fer næst því að sýna vörukaupin á árinu og
er því hliðstæðust áætluninni, eins og hún er
hér upp sett.
Eftir þessum leiðum hefur tekizt að nokkru
leyti að ákveða magn innflutningsins, í stað
þess að í áætlun fyrra árs \'ar að langmestu leyti
áætlað verðið eitt. Verðupplýsingar eru hér
fengnar frá innflytjendum, sem flutt hafa vör-
urnar inn nýlega, eða haft ný verðtilboð, og hef-
ur upplýsingasöfnun verið hagað þannig, að
verðsamanburður fengist.
Eins og á s.l. ári hefur verið ákveðið að fram-
kvæma áætlun þessa í þremur áföngum, þannig
að heimildir til viðskiptanefndar verði miðað-
ar við tímabilið janúar—apríl, maí—ágúst og
september—desember. Eru ástæður til þess þær
sömu og þá, að fylgjast. með afkomuhorfum og
gjaldeyrisöflun og liaga innflutningnum eftir
því.
Hér að framan hefur verið gerð nokkuð ná-
kvæm gxein fyrir áætlun fjárhagsráðs um inn-
flutningsviðskiptin á þessu ári og önnur gjald-
eyrisútlát. Trúlega þykir mörgum kaupsýslu-
mönnum naumt skammtað í sumurn vöru-
flokkum, en í þessu gjaldeyrisharðæri, sem nú
ríkir, getur enginn búizt við að fá sína voð
fullmælda og verður ekki svo fyrr en tekið er
í tauma verðþenslunnar og hamlað móti storm-
inum, í stað þess að láta lirekjast æ lengra út
í foræðin. Þegar það er fram fengið, má aftur
fara að vænta liinna heilbrigðu tíma frjálsrar
verzlunar, sem eru alger andstæða við hömlu-
búskap þann og spillingu, sem nú einkennir
allt vort ráð.
Eramkvæmd innflutningsáætlunarinnar er að
mestu í höndum viðskiptanefndar, og kemur
nú til kasta hennar að deila skammtinum rétt-
látlega út til innflytjenda. Það er vandasamt og
oft vanþakkiátt verk, og fylgir því mikill trún-
aður, sem ekki má bregðast.
48
FR.TÁLS VERZLUN