Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1949, Qupperneq 8

Frjáls verslun - 01.05.1949, Qupperneq 8
ISLENZKUR DJOÐARBUSKAPUR ________________Fjárhagsþáttur eftir Þjóðarbúskapur, eða atvinnulíf þjóðarinnar, eins og hann venjulega er nefndur í daglegu máli, er heildarheitið á öllum atvinnurekstri eða starfsemi allra fyrirtækja innan marka einnar ríkisfieildar og þá einnig á höfum úti. — Þjóðar- búskapur Islendinga er því rekinn á um 6000 bújörðum, 600 fiskiskipum, 1400 verzlunarfyrir- tækjum, 800 iðnaðar- og iðjufyrirtækjum, 25 far- skipum og fjölda fyrirtækja í öðrum greinum. Oll eru þessi fyrirtæki beint eða óbeint þátt- takendur í framleiðslunni, því að framleiðsla er sérhver aukning á nytsemi, hvort sem hún fer fram með því að afla hráefna úr skauti náttúr- un-nar, breyta formi þeirra, koma hinni fullunnu vöru á neyzlustaðinn, eða á annan hátt. Fram- Jeiðslan ein er þó ekki tifgangur búskaparstarf- seminnar, lieldur er Jtað neyzlan, sem er loka- markmiðið, og framleiðslan, svo þýðingarmikil sem lnin er, aðeins nauðsy-nlegur undirbúningur þess, að menn fái þörfum sínum fullnægt. Menn taka því þátt í þjóðarbúskapnum til [jcss að fá fyrir það tekjur. Tekjurnar eru sant- kvæmt. eðli sínu mismunanadi, og nefnum við þær eftir uppruna þeirra ýmist verkakaup, fjár- rentu, jarðrentu, liagnað eða öðrum nöfnum. Samanlagðar tekjur allrar þjóðarinnar eru nefnd- ar þjóðartekjur. Þær eru fundnar með því að leggja saman árlegar tekjur allra lifandi persóna í landinu og persóna að lögum, svo sem hlutafé- faga, samvinnufélaga, og annarra fyrirtækja, sem einhverskonar sameign er um. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til þess að áætla þjóðartekjur íslendinga. Til dæmis áætl- aði skipulagsnefnd atvinnumála þjóðartekjurnar árið 1935 uni 100 milljónir króna. — Nýlega fief- ur Hagstofan birt áætlun sína um þjóðartekjur íslendinga árið 1946 og komizt að þeirri niður- stöðu, að þær lvafi verið um 1025 milljónir króna. Athugun þessi er byggð á skattaframtölum manna, og ]>á áætlaðar tekjur þeirra, sem eru Birgi Kjaran fyrir neðan skattskyldulágmarkið. Telur Hag- stofan þó líklegt, að þessi áætlun um þjóðartekj- urnar sé of lág. Samkvæmt þessum tölum æt.tu þjóðartekjur ís- lendinga í krónum að hafa tífaldazt á röskum tíu árum. Aukningin á krónutölunni er þó eng- inn mælikvarði á notagildi teknanna fyrir þjóð- ina, vegna þeirra miklu breytinga, sem orðið Iiafa á verðlagi og kaupmætti peninganna á þessu tímabili. — Ýmsar aðrar merkilegar breyti-ngar á þjóðartekjunum munu liafa átt sér stað á sama tíma, sérstaklega þó á tekjuskiptingunni. Tel ég t. d. líklegt, þótt ég haf'i ekki töluleg sönnunar- gögn fyrir því, að veruleg tekjujöfnun hafi átt sér stað á þessum árum, og er mér nær að halda að meiri tekjujöfnuður sé nú hér á landi en víðast hvar annarstaðar. Þjóðartekjurnar á hverjum tíma ákvarðast af því, hversu mikil framleiðsla-n er, og af því, iivaða verð fæst fyrir hinar framleiddu vörur. Til þess að auka framleiðsluna og þá um leið þjóðartekj- urnar, skipta þegnarnir með sér verkum og mynda atvinnuvegi, atvinnugreinar og starfsslétt- ir. Fer hér á eftir atvinnuskipting íslendinga eins og hún var árið 1940, en það eru síðustu handbærar tölur um þetta efni. Á því ári höfðu 30,6% þjóðarinnar framfæri sitt af landbúnaði, 21,3% af iðnaði, 15,9% af fiskveiðum, 8,7% áf samgöngum, 7,2% af verzlun, 5,8% af opinberri þjónustu, 5,3% af persónulegri þjónustu og 5,2% óstarfandi. Á síðustu áratugum hafa verið talsverð brögð að því, að fólk flyttist úr frumframleiðslunni, sjávarútvegi og sérstaklega þó landbúnaðinum, yfir í þá atvinnuvegi, sem viinna að því að form- breyta hráefnum eða dreifa fullunum vörum, þ. e. a. s. í iðnaðinn, verzlun og samgöngur. 52 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.