Frjáls verslun - 01.05.1949, Qupperneq 12
hafi á síðastliðnu ári farið nokkuð í hina sömu
farvegi og árið á undan og í öllum meginatrið-
um verið með sama fyrirkomulagi. Vonir ein-
staklinganna um að losað yrði um ýmsar hömlur
á útflutningsverzlun hafa ekki rætzt.
Svipað má segja um innflutningsverzlunina,
en þó hefur allt til þessa verið rík ástæða til
þess að halda, að hún gæti færzt á eðlilegri braut-
ir en verið hefur. Þar á ég fyrst og fremst við,
að viðurkenning fjárhagsráðs hefur fengizt fyr-
ir því, að ekki væri i'ært, að lengur héldist það
mikla ósamræmi, sem orðið var í innflutningn-
um á milli þeirra vara, sem almenningur notar í
daglegum búskap og hinna, sem nefndar hafa
verið „kapital“-vörur. Skorturinn á brýnum
notavörum almenning var og er enn tilfinnan-
legur og það má hiklaust segja, að í svo góð-
um gjaldeyrisárum og verið hafa undanfarið,
þrátt fyrir ýms áföll, þá var ekki á nokkurn hátt
fært að láta það haldast við, að ekki væri lands-
mönnum séð fyrir nauðsynlegum erlendum varn-
ingi til fæðis og klæðis. V.í. hóf markvisst starf
til að fá þessu breytt, og það starf leiddi til þess,
að í innflutningsáætlun þessa árs, hefur fengizt
viðurkenning fjárhagsráðs á því, að stefnubreyt-
ing skyldi nú verða í þá átt, sem tillögur V.f.
hnigu að.
Viðskiptin innanlands eru reyrð í sömu höftin
og fyrr, og sést lítið rofa til í því efni.
Að hálfu V.í. hafa verið bornar fram ákveðn-
ar óskir og tillögur, og enn eru þau mál öll til
stöðugrar athugunar og þeim fylgt eftir. En við-
skiptin innanlands fara eðlilega mjög eftir því
livert frelsi er í öðrum greinum verzlunarinn-
ar, þar er því raunverulega við sömu meginörð-
ugleika að fást.
Okkur þykir að vonum illt á það að horfa,
að á sama tíma, sem ýmsar nágrannaþjóðir okk-
ar losa um skömmtun og önnur höft á innan-
landsverzlun sinni, þá skulum við fremur herða
á böndunum heldur en hitt.
Þetta finnst okkur því óeðlilegra, ef á það er
litið, að þessar þjóðir áttu um sárt að binda
eftir styrjöldina og virtust á ýmsan hátt hafa
fremur lakari aðstæður en betri til þess að koma
verzlunarmálum sínum í eðlilegt horf aftur, held-
ur en við íslendingar.
Örðugleikar iðnaðarins eru nátengdir við-
skiptakreppunni. Innflutningshöft og aðrar
tálmanir þess opinbera hafa komið hart niður
á iðnaðinum. Hann hefur búið við skort á hrá-
efnurn og skort á fjármagni. Framkvæmdadug-
ur iðnaðarmanna hefur verið hnepptur í fjötra
með neitunum um opinber leyfi og fé til margs
þess, sem iðnaðarmenn hafa viljað gera.
Á tímum mikillar óvissu er oft erfitt að marka
fastar stefnur í málum. En þótt mikil óvissa sé
um alla afkomu verzlunar og iðnaðar á kom-
andi ári, hlýtur V. í. að halda einbeittlega áfram
þeirri viðleitni sinni að gera tillögur um bætta
verzlunarhætti og fylgja þeim fram. Það loka-
takmark, sem aldrei má missa sjónar á, er frjáls
verzlun, frjáls verzlunarstétt og frjáls iðnrekstur.
Þótt ekki horfi vænlega í bili, eins og nú, má
aldrei gleymast, að þetta er markið, sem stefnt
er að og að lokum hlýtur að nást.
Hallgrímur Benedik tsson.
ÍSLENZK MYNTSLÁTTA
Framh. af bls. 51.
Nr. 15. — Mynd nr. 5. — Brauðpeningur.
Framhlið: Rúgbrauð — J.R.B.L. Bakhlið auð.
31 mm. — Nr. 16. — Mynd nr. 2. — Ávísun á kaffi.
Framhlið: J.R.B.L. - Kaffe. Baklilið auð. 25
mm. — Þessi mynt mun hafa verið notuð á þann
hátt, að er sveitamenn komu í kaupstaðinn til
að verzla hjá útgefanda, var Jreim afhentur slík-
ur peningur. Gátu þeir síðan framvísað peningn-
um í tjaldi nálægt verzluninni og fengið sér
kaffisopa á kostnað kaupmannsins. — Útgefnir
af verzlun J. R. B. Lefolii árið 1900.
Seyðisfjörður.
Nr. 17. — Mynd nr. 8. — Framhlið: V.T.
Thostrup — Seyðisfjörður. Bakhlið: Mynd af
Kauphöllinni í Kaupmannahöfn. 24 mm. — Ekki
er mér kunnugt um gildi þessarar myntar eða á
hvern hátt hún var notuð. — Gefin út af V. T.
Tbostrup kaupmanni á Seyðisfirði, árið 1892.
Þingeyri.
Nr. 18. — Mynd nr. 10. — Brauðpeningur.
Framhlið: Thingeyrarbakarí — Rúgbrauð. Bak-
hlið eins og á nr. 4. 24 mm. — Gefin út af Sam-
vinnubakaríinu á Þingeyri 1905.
Nr. 19. Árið 1902 lét Niels Christian Gram
búa til nokkrar myntir í Þýzkalandi, eins og áð-
ur segir. Myntir þessar voru allar eyðilagðar,
og er ekki frekar kunnugt um útlit þeirra.
Myndirnar, sem fylgja þessari grein, ern sem næst í réttri
stærð.
Sigurgeir Sigurjónsson.
56
FRJÁLS VERZLUN