Frjáls verslun - 01.05.1949, Síða 13
Brezka iSnsýningin, hin 28. í röðinni, var haldin 2.—13. maí
s.l. Til hægri er Olympíu-höllin, þar sem Lundúnadeild sýn-
ingarinnar hefur aðsetur. Að ofan er nýtízku eldhús frá sýn-
ingunni, en uppi í horninu er mynd af íótknetti úr plasti.
Brezta
iðnsýningin
„Export or ciie“, — sagði Sir Stafford Cripps
viðskiptamálaráðherra Breta árið 1947, þegar
fyrsta brezka iðnsýningin eftir stríðið var opnuð.
Síðan eru liðin tvö ár, og þeir, sem fylgzt liafa
með þróuninni í Bretlandi síðan stríðinu lauk,
vita að þessu boðorði ráðherrans hefur verið
fylgt eftir eins og framast var auðið. Þrátt fyrir
harða samkeppni um hina ýinsu markaði, gjald-
eyrishöft víða um lönd og allskonar erfiðleika,
sækja Bretar á brattann, bæði í viðreisninni
heima fyrir og uppbyggingu útflutningsverzlun-
arinnar.
Eins og undanfarin ár var iðnsýning brezka
iðnrekendasambandsins haldin í London og
Birmingham í maímánuði þ. á. Var henni sem
fyrr hagað á þá lund, að vélar og þungavara var
sýnd í Birmingham, en vefnaðarvara og léttari
iðnaður í London.
Vegna bættra flugsamgangna við England, var
íslendingum að þessu sinni auðveldara en áður
að sækja þessa sýningu, enda fjölmenntu íslenzk-
ir kaupsýslumenn til London, meðan sýningin
var opin. Mun láta nærri að nálægt 100 íslend-
ingar hafi nú átt þess kost að kynna sér vörurn-
ar, sem þar voru á glámbekkjum. Er það vel,
því að ekkert er innflytjendum nauðsynlegi'a en
fylgjast sem bezt með öllum nýjungum í fram-
leiðslu í viðskiptalöndum okkar. Þegar gjald-
eyrir er takmarkaður til vörukaupa, er hvað
nauðsynlegast að fylgjast sem bezt með, svo
tryggt sé að vel verði ráðstafað þeim litla gjald-
eyri, sem veittur er til vörukaupa hverju sinni.
FRJÁLSVERZLUN
57