Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1949, Síða 28

Frjáls verslun - 01.05.1949, Síða 28
íslcmd. Þann 16. febr. s. 1. var undirritað- ur viðskiptasamningur við Tékka og gildir hann til aprílloka 1950. Gert er ráð fyrir að viðskiptin á hvora hlið muni nema um 30 millj. ísl. kr. Við munum selja Tékkum ýmis kon- ar fiskafurðir, lýsi, mjöl, gærur og loðskinn, en fá í staðinn svipaðar vörur og síðastliðið ár. Vöruskiptajöfnuðurinn í marz var óhagstæður um 5,1 millj. kr. Inn- flutningurinn til landsins nam 27,3 millj. kr., en útflutningurinn 22,2 millj. kr. Á tímabilinu jan.-—marz nam út- flutningurinn 70,2 millj. kr., en inn- flutningurinn 83,4 millj. kr., og er því vöruskiptajöfnuðurinn á fyrsta ársfjórðungi þessa árs óhagstæður um 13,2 millj. kr. Á sama tíma í fyrra var jöfnuður- inn óhagstæður um 19 millj. kr. Nam innflutningurinn 101,1 millj. kr,. en útflutningurinn 82 millj. kr. Þann 13. apríl s.l. var undirritað- ur í London viðskiptasamningur við Breta fyrir árið 1949. Við munum selja Bretum hrað- frystan og ísaðan fisk, svo og nokkr- ar aðrar fiskafurðir, síldarlýsi og síldarmjöl. Frá Bretlandi munum við fá ýms- ar vörutegundir, sem venja er að kaupa þaðan, svo sem járn- og stál- vörur, kol o. fl., og er gert ráð fyrir að þessi innflutningur verði ekki minni en á árinu 1948. Viðbótarsamningur við íslenzk- pólska viðskiptasamninginn frá 14. júní 1948 var undirritaður í Varsjá 2. apríl s.l. Viðskiptin á hvora hlið samkvæmt þessum viðbótarsamningi munu nema nálægt 10 millj. kr. íslendingar selja Pólverjum 650 smál. af gærum og 20 þús. tunnur af éaltsíld, en fá í staðinn 60 þús. smál. af kolum, 600 smál. af rúgi (ómöluðum), 3 þús. smál. af rúg- mjöli, 1 þús. smál. af sykri og nokk- uð af járn- og stálvörum. Noregur. Eins og kunnugt er varð stærsta járnnáma landsins í Kirkenes í Norður-Noregi fyrir mjög miklum skemmdum í síðustu styrjöld, og var talið vafasamt að hægt yrði að Iag- færa hana. Fyrir nokkru síðan var hafin end- urbygging námunnar og verður henni hraðað svo sem verða má. Bú- izt er við, að vinnsla í námunni geti hafizt á árinu 1951 og þá verði fram- leidd 500 þús. tonn af málmgrýti, en full nýting námunnar, 1 millj. tonn á ári, náist ári síðar. Utflutningur landsins á niðursoðn- um matvælum á árinu 1948 nam 33.855 smál., að verðmæti 6 millj. sterlp. Árið 1947 nam útflutn. 33.809 smál., og seldist fyrir 5,6 millj. sterlp. Otflutn. síðasta árs var aðeins minni en árið 1939. Skortur á dósa- blikki var niðursuðuiðnaðinum fjöt- ur um fót á s.l. ári. } Svíþjóð. Svíar og Frakkar hafa nýlega gert með sér viðskiptasamning, og er í honum gert ráð fyrir viðskiptum, sem nema muni um 40 millj. sterlp. á hvora hlið. Svíar munu m. a. selja Frökkum pappír og pappírsvörur, trjákvoðu, timbur, eldspýtur, kúlulegur, tæki til námugraftrar og landbúnaðartæki. Frakkar munu selja Svíum vín og áfenga drykki, landbúnaðar- og ný- lenduvörur, feiti, efnavörur, gler- vörur, járn og stál, vefnaðarvörur, bifreiðir og rafmagnstæki. Bretland. Margir brezkir útflytjendur bú- azt við, að Norðmenn muni innan skamms stinga upp á tollabandalagi milli Noregs og Bretlands. Talið er, að brezk-norsk hagfræðinefnd, er nú situr á rökstólum til að ræða 'mögu- leika á nánari samvinnu milli land- anna, hafi mál þetta til athugunar og muni koma fram með tillögu um tollabandalag. Bretar fluttu úr heimilisþvottavél- ar á s.l. ári fyrir 1,1 millj sterlp., en árið 1938 nam þessi útflutningur aðeins 10.500 sterlp. Nú framleiða 16 fyrirtæki í Bretlandi þvottavélar til útflutnings, en árið 1938 var varla hægt að telja þessa iðngrein eiga tilverurétt, eins og útflutnings- verðmætið það ár ber sér. Ford-verksmiðjurnar í Dagenham fluttu úl 3.654 traktora í febrúar s.l. til 30 landa fyrir um 1 millj. sterlp. Utflutningur á brezkum bifreiðum til Bandaríkjanna minnkaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs frá því sem var á s.l. ári. í jan. voru t. d. fluttar út til Bandaríkjanna 1.845 bifreiðir, en í des. s.l. 2.824. Framleiðendur 72 KRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.