Frjáls verslun - 01.05.1949, Blaðsíða 40
Bókadálkur
Maxim Gorki: Barnœska mín. I. bindi.
(Bókaútg. Reykholt).
Þetta er stórmerkileg bók, sem engum dvlst að er
listaverk, mikið og gott listaverk, enda er hún fræg-
asta bók heimsfrægs höfundar. Bókin hlýtur að vera
kærkomin í hendur öllum þeim, sem eru nokkuð
vandlátir um, hvernig }>eir verja tíma sínum til lest-
urs. Þessi útgáfa er líka að því leyti merkileg, að
liún er fyrsta rússneska bókin, sem íslendingur þýðir
beint úr frummálinu, en það gerði Kjartan Ólafsson
hagfræðingur. — Gorki var hinn seinasti af stórskáld-
um Rússa, er uppi voru á seinni hluta síðustu aldar
og fram á þessa öld. Með honum hneig skáldaöld í átt
á Rússlandi. Einar Asmundsson.
Skeyti til Garcia, eftir Elbert Hubbard.
Otg. Guðmundur Jóhannesson.
Þetta er lítið kver, aðeins 29 bls., og hefur að inni-
haidi blaðagrein, sem höfundurinn reit fyrir meira en
hálfri öld. Enginn skyldi þó ætla að hér sé um ó-
breytta grein að ræða, því að hún hefur verið sérprent-
uð og gefin út á flestum tungumálum menningarþjóða.
Hún er áhrifaríkur boðskapur til allra um vinnugleð-
ina og skylduræknina, — og eiginlega algilda mann-
rækt. Það er ekki úr vegi að taka hér upp örlítinn
kafla:
„Sjáið þér bókhaldarann þarna?“ sagði ráðsmaður-
inn í stórri verksmiðju við mig. —- ,.Já, livað er at-
hugavert við hann?“ — „Sjáið þér nú til. Honum
ferst bókfærslan sæmilega úr hendi. En ef ég sendi
hann út í borgina í einhverjum erindum, er vel mögu-
legt að hann Ijúki þeim eins og vera ber, en líklegt
er að hann komi við í einu eða tveimur kaffihúsum
á leiðinni og sé svo búinn að gleyma hvað hann átti
að gera, þegar hann kemur aftur út á götuna.“
Þessi litla bók á erindi til sérhvers manns. Hún
er fallega útgefin. Formáli um höfundinn fylgir,
ásamt mynd. Vér mælum með henni við verz.lunarfólk.
skrá um opinberar stofnanir og starfsmenn þeirra,
svo og yfir íslenzk sendiráð og ræðismenn erlendis
og samskonar aðilja hérlendis. Birtur er útdráttur úr
íslenzkum lögum varðandi verzlun, fiskveiðar o. fl„
sömuleiðis er þarna tollskrá ríkisins, listi yfir skipa-
stólinn og margt annað, að óglevmdum auglýsingum.
sem eru nauðsynlegur þáttur í slíkum bókum sem
þessari. Auglýsendur eru bæði innlendir og erlendir.
— Þessi viðskiptaskrá veitir erlendum kaupsýslu-
mönnum margar hagnýtar ujiplýsingar, og ættu firmu
hér að senda hana viðskiptamönnum sínum. Bókin
er hin snvrtilegasta að öllum frágangi.
Sells National Directory & British Ex-
porter's Register 1949. Otg.: Business
Dictionari.es Ltd., 133—137 Fetter Lane,
London E.C.4.
Núgildandi árgangur þessarar viðskiptahandbókar
hefur verið sendur blaðinu, og er það 32. útgáfa henn-
ar. Efni hennar er m. a. þetta: Skrá um auglýsendur,
raðað eftir firmaheitum og verzlunargreinum, staf-
rófsskrá um brezka út- og innflytjendur og vöruskrá
sömu aðilja, skrá um brezk símnefni og vörumerki.
Af öðru efni má sérstaklega geta tveggja kafla, sem
fjalla hvor í sínu lagi um flugmál og leðurvörur.
Þetta er hin viðamesta bók. yfir 800 bls., og hefur
að geyma mikinn viðskiptalegan fróðleik, einkum að
því er snertir brezka verzlun. íslenzkir kaupsýslu-
menn mundu vafalaust hafa af henni hið mesta gagn
og ættu því gjarnan að afla sér hennar.
,,Oft var þörf, en nú er nauðsyn“
Eftirfarandi tillögur voru bornar upp og samþykkt-
ar á aðalfundi Verzlunarráðsins nú í vor:
Frá Einari Guðmundssyni:
„Fjölmennur aðalfundur V.I. gerir ákveðnar kröfur
til þess, að felld verði úr lögum nú þegar skattfríð-
indi samvinnufélaganna. Krefst fundurinn þess, að
löggjafar þjóðarinnar breyti skattalögunum þannig,
að allur félagsrekstur, sem þegnar þjóðfélagsins
reka, búi við sama rétt, hvað skatta áhrærir.“
Directory of Iceland 1949. Otg.: Islenzk
árbók h.f.
Út er komin 26. útgáfa þessarar bókar, sem mun
vera önnur í röðinni undir ritstjórn Hilmars Foss.
Þetta er sjö hundruð blaðsíðna bók, útgefin á enska
tungu, eins og nafnið sýnir. Bókin, sem hefur einkum
að geyma varnings- og starfsskrá allskonar fyrir-
tækja úr öllum kaupstöðum og flestum kauptúnum
Iandsins, birtir ýmsar greinar um íslenzk málefni, l. d.
um stjórnskipulag, efnahagsmál og fjármál. Þá er
Frá Sveini M. Sveinssyni:
„Aðalfundur V.I. 1949 ályktar að skora á stjórnar-
völd landsins, að þau geri sem allra fyrst ráðstaf-
anir til þess að koma atvinnu- og fjármálalífi lands-
ins á heilbrigðan grundvöll, svo hægt sé að ufnema
skömmtun í landinu og leyfa frjálsan innflutning
á nauðsynjavörum landsmanna.“
Báðar tillögurnar fela í sér mikil alvörumál, sem
þing og stjórn verður að taka höndunum til hið fvrsta,
ef vel á að farnast.
81
FRJÁLS VFRZLUN