Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1949, Page 42

Frjáls verslun - 01.05.1949, Page 42
a;ða formælandi fram og aftur, litum hvor á annan og bölvuðum. Þvílíkt og annað eins, sagði hann, þessi hestur hljóp svo gríðar léttilega alla leiðina og tapaði svo á flipanum! 0g hann tók að bölva og ragna á rússnesku. fnnan stundar róaðist ég og lét orð falla um, að ef til vill gengi okkur betur á morgun. en það er vanaviðkvæði vonsvikinna hestaveðjara. Morg- undagurinn var ætíð hinn langþreyði happadagur. Þetta kvöid dvaldist mér, soltnum og svekktum, í knæpunni handan við strætið, þar til klukkan var tvö um nóttina. Þá ranglaði ég út og reikaði til og frá um borgina, unz klukkan níu um morguninn, en þá lallaði ég inn í húsið númer eitt við Óperustræti. Þar var þá enginn félaga minna fyrir, og ég var nötrandi af kulda og í óskaplegri þörf fyrir kaffisopa. Um tíuleytið kom Hússinn niður. Ég hafði ráðgert að halda leyndu ótútlegu ástandi mínu, ef unnt væri, en mér hefur sjálfsagt ekki tekizt það, og ég vissi undir eins að Rússanum hafði skilizt, hvernig högum mínum var háttað. Hann kom inn gegnum hverfidyrn- ar í opið flasið á mér, j)ví ég var á gangi um gólfið til þess að halda á mér hita og verjast svefninum. sem á mig sótti. Jafnskjótt og hann sá mig, kom á hann sá aumkvunarlegasti sársaukasvipur, sem ég hef nokkurntíma séð, rétt eins og þetta væri allt hans sök en ekki mín, rétt eins og mér hefði ekki komið dúr á auga, vegna afbrota hans, rétt eins og ég væri hungr- aður, af því að hann hefði haldið mér í svelti. Hann sagði samt ekkert, heldur dró veðhlaupaskrána upp úr vasa sínum og fór að rýna í hana Hann dauð- langaði í sígarettu, en ég átti ekki neinar og ekkert sígarettutóbak, og ég var alveg úrræðalaus. Loks labh- aði hann út aftur án þess að segja eitt einasta orð og kom svo eftir hálftíma til baka með vafinn vindling milli varanna. Hann fékk mér tóbakshréf, og ég sneri saman sígarettu og byrjaði að reykja. Reykurinn var af mér höfgann og dró úr sultinum um stundarsakir. Ég ímynda mér að hann hafi farið út til að betla, og það hlýtur að hafa tekið hann ægilega sárt, en hann 86 hefur án efa álitið það óhjákvæmilegt. og ég tók að reiðast sjálfum mér heiftarlega. Við töluðum'um hesta allan þennan dag, enda þótl við vissum að hvorugur okkar átti eyri í eigu sinni, og þegar veðhlaupunum lauk, höfðum við okkur undir eins á brott af skeiðvellinum. Ég veit ekki, hvert Rúss- inn fór, en ég sneri aftur til krárinnar og seltist niður. Að áliðnu kvöldi kom ungur piltur, sem ég hafði ein- hverntíma gert svolítinn greiða, auga á mig, tók sér sæti við borðið hjá mér og sagðist hafa nælt ögn í spilum. Áður en hann yfirgaf mig, rétti hann mér }>egjandi hálfan pakka með sígarettum og tuttugu-og- fimm centa pening, og ég gat keypt mér góðan máls- verð og reykt nægju mína. Þarna sem ég sat í hjór- stofunni í iðabjörtu rafmagnsljósinu gat ég líka feng- ið mér einskonar blund, réttara væri að segja að það félli á mig mók, svo að klukkan tvö um nóttina var ég ekki lengur mjög aðframkominn. Aftur ráfaði ég um göturnar þar til klukkan níu um morguninn, en þá drattaðist ég inn í veðbankann. Rússinn var þar fyrir og beið þess, að vita hvernig mér liði. Hann hafði heldur ekki sofið neitt, og framan í honum var fjögurra daga gamalt skegg. Hann virt- ist vera niðurbældur en þó ólgandi af innibirgðri reiði við tilveruna og fyrirlitningu á sjálfum sér. Ég fékk honum sígarettupakkann, og við teyguðum reykinn. Um klukkan tíu hvarf Rússinn á brott. alveg orða- laust, og þegar hann kom aftur hálfri stundu síðar, sá ég óðar að einhver skrambinn amaði Jionum. Sjálf- sagt sárlangaði hann til að bjarga okkur úr öngþveit- inu og hafði nú dottið ráð í hug, en var samt ekki nándar nærri ánægður með það. Ég vonaði bara að hann hefði ekki í hyggju að stela, en hver svo sem fyrirætlun hans var, gat mér ekki dulizt að hún var enganveginn skemmlileg. Loks kallaði hann mig til sín, og þá varð mér samstundis ljóst, í fyrsta sinni síðan við kynntumst, að þarna var maður, sem áður hafði verið vel virtur og setið í upphefð Ég réð þetta strax af j>ví, liversu kurteislega hann óskaði viðtals við mig undir fjögur augu, úli fyrir veðhankanum. Við gengum út á Óperustrætið, og þá dró hann umslag upp úr innri brjóstvasanum á frakkanum. Á ]>ví var franskt frímerki. En á Rússanum var eymdarsvipur. Lífsleiði og viðbjóður settu á hann sjúkdómseinkenni. Ég þarf að tala við }>ig, sagði hann með útlendum hreim í röddinni. Ég veit ekki hvað á til bragðs að laka, og þetta er það eina, sem ég hef til að tjalda. Það fer eftir því, hvað þú vilt. Ég skal gera mitt bezta, og þá getum við kannski nurlað saman nokkrum skild- ingum. Hann horfði ekki í augu mér, meðan hann talaði, og mér fannst sem á mig settust óhreinindi. Þetta er allt og sumt, sem ég á, sagði hann. Þetta eru andstyggi- legar myndir, bætti hann við. Bölvaðar saurlifnaðar- myndir. Ef þú vilt, skal ég reyna að selja þær fyrir tíu cent stykkið. Ég hef hérna tvær tylftir. FRJÁI.S VERZI.IJN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.