Frjáls verslun - 01.04.1952, Blaðsíða 6
íslendmgar í Moskvu
Rætt við Magnús Þorgeirsson, kaupmann um Rússlandsferð
------------— —^
I byrjun apríl mánaðar var haldin alþjóðleg viðskipta-
ráðstefna austur í 3Ioskvu. Á ráðstefnu þessa mættu 471
fulltrúar frá 49 þióðum. I»rír íslendingar þekktu boð um
að sækja hana, en það voru þeir Maffnús Porg:eirsson,
kaupm. í Reykjavík, Ársæll Siffurðsson og L-úðvík Jós-
epsson, alþingismaður.
Eftirfarandi viðtal við Magnús gefur lesendum
FRJÁLSRAR VERZEENAR nokkra hugmynd um að-
draganda og störf þessarar alþjóða efnahagsráðstefnu
austan járntjalds.
V________________________________________________J
Eins og mönnum mun nú eflaust kunnugt, var boðað
til alþjóðlegrar efnahagsráðstefnu austur í Moskvu
í byrjun apríl mánaðar. Á ráðstefuna hafði aðallega
verið boðið kaupsýslumönnum og iðjuhöldum um
víða veröld, en ekki var talið æskilegt að þangað kæmu
opinberir fulltrúar. Ráðstefnan var fjölsótt, en þó
voru margir, sem hafnað höfðu boði um þátttöku.
FRJÁLS VERZLUN hafði fregnað, að þrír íslend-
ingar hefðu lagt land undir fót og sótt Rússaveldi heim
þeirra erinda að sitja áðurnefnda ráðstefnu. Þar sem
álitið var, að ýmsum lesendum blaðsins kynni að leika
hugur á að fá fréttir að austan frá fyrstu hendi, var
reynt að ná tali af einum þremenninganna, sem sóttu
viðskiptaráðstefnuna héðan að heiman, Magnúsi Þor-
geirssyni, kaupmanni í Reykjavík.
. Magnús var nýkominn úr sinni löngu reisu, þegar
við hittum hann á hinu vistlega heimili hans hér á
dögunum. Áður en við fórum að spyrja hann frétta
fyrir alvöru, bauð Magnús up]) á rússneskan vindling,
en slíkir gripir eru sjaldséðir hérlendis. Var hann
þeginn með þökkum, því forvitni lék á að vita, hvern-
ig tóbak þeir reyktu fyrir austan tjald. Við ákváðum
nú að bera upp erindið við Magnús, og lofaði hann
að greiða úr spurningum okkar eftir beztu getu.
Hvenœr lögðuð þér af stað til Moskvu,
spyrjum við Magnús?
Ég flaug til Kaupmannahafnar um Amsterdam þann
27. marz. Þar var höfð stutt viðstaða, en síðan haldið
til Prag. Frá Tékkóslóvakíu var flogið í rússneskri
flugvél til Moskvu með viðkomu í Minsk.
Þið voruð þrír landarnir, sem sóttuð ráðstefnuna,
var ekki svo. Hvernig var boði ykkar til að
sitja ráðstefnuna háttað?
Jú, en auk mín fóru þeir Lúðvík Jósepsson, alþing-
ismaður og Ársæll Sigurðsson. Okkur var boðið aust-
ur af nefnd, sem undirbjó þátttöku af fslands hálfu
í ráðstefnunni. Var okkur séð fyrir ókeypis ferðum
milli Prag og Moskvu og sömu leið til baka. Auk þess
var allt uppihald greitt fyrir okkur á meðan við
dvöldum í Moskvu, en þar bjuggum við á einu af
stærstu og beztu hótelunum.
Hverjir stóðu að þessari efnahagsráðstefnu
og hvemig var undirbúningnum háttað?
Það mun hafa verið fyrir rösku ári síðan, að nokkr-
ir kaupsýslumenn, hagfræðingar og verkalýðsleiðtogar
frá ýmsum löndum í Vestur-Evrópu komu saman í
París til að ræða þau vandamál, sem steðjuðu að verzl-
un í Evrópu sökum síminnkandi viðskipta milli austurs
og vesturs. Kosin var nefnd til að undirbúa frekari
viðræður þjóða á milli, og áttu sæti í henni fulltrúar
frá 21 landi. Nefndin hélt fyrsta fund sinn í Kaup-
mannahöfn í október s.l., og þar var ákveðið að boða
til alþjóðlegrar efnahagsráðstefnu um þau vandamál,
sem nú eru efst á baugi sökum hins kalda pólitíska
stríðs. Ýmsar borgir komu til greina sem fundarstaður
fyrir væntanlega ráðstefnu, en þó varð Moskva fyrir
valinu að lokum. Sá sem var aðal hvatamaðurinn að
undirbúningnum heitir Robert Chambeiron, og er hann
fyrrverandi franskur þingmaður.
HvaS stóð ráðstefnan lengi yfir
og hvemig fóru fundirnir fram?
Efnahagsráðstefnan var sett 3. apríl og henni lauk
þann 12. s. m. Upphaflega átti hún ekki að standa
34
FRJÁLS VERZLUN