Frjáls verslun - 01.04.1952, Blaðsíða 17
Jens Bjarnason gialdkeri
andaðist 27. febr. s. 1. Hann
var fæddur 4. sept. 1894 á
Breiðabólsstað á Síðu, son-
ur hjónanna Bjarna Jens-
sonar héraðslæknis og Sig-
ríðar Jónsdóttur konu hans,
en faðir Bjarna var Jens
Sigurðsson, re'ktor, bróðir
Jóns Sigurðssonar forseta.
Haustið 1911 innritaðist
Jens í Verzlunarskóla ís-
lands og lauk burtfarar-
prófi þaðan vorið 1913. Árið eftir réðst hann skrif-
stofumaður hjá Sláturfélagi Suðurlands og starfaði
hjá því fyrirtæki jafnan síðan eða í 37 ár samfleytt,
og gjaldkeri þess var hann frá árinu 1924. Jens var
að eðlisfari hlédrægur og hæglátur maður, en hvers
manns hugljúfi er honum kynntust. Allir báru traust
til hariis, sem af honum höfðu kynni. Hann var dreng-
lundaður og góðgjarn, og mannkostamaður mikill.
Kvæntur var hann Guðrúnu Helgadóttur, og lifir
hún mann sinn. Áttu þau þrjá syni barna.
Jón Gíslason kaupma'Sur
og póstafgreiSslumaSur í
Ólafsvík andaðist 16. marz
s. 1. Hann var fæddur að
Hjarðarholti í Dölum 18.
júlí 1895. Foreldrar hans
voru Gísli Jónsson, prófasts
í Hjarðarholti Guttorms-
sonar, og Margrét Steins-
dóttir, kona hans, prests að
Hvammi Steinsen. Eftir að
Jón hafði lokið námi við
Verzlunarskóla Islands réðst hann sem starfsmaður að
Proppéverzlun í Ólafsvík. Er sú verzlun hætti störfum,
tók hann við póstafgreiðslunni í Ólafsvík, jafnframt
því sem hann gerðist afgreiðslumaður Eimskipafélags-
ins og Ríkisskips þar á staðnum. Hann hafði einnig
verzlunarrekstur með höndum, svo og ábúð á landi
Ólafsvíkurkauptúns. Stjórnarmeðlimur í Sparisjóð
Ólafsvíkur var hann og einnig.
Jón var að eðlisfari hlédrægur og fáskiptinn, en
vegna mannkosta hans hlóðust á hann margs konar
trúnaðarstörf. Þau störf leysti liann af hendi með ár-
vekni og trúmennsku. Hann var góður drengur í þess
orðs beztu merkingu.
Kvæntur var hann Láru Bjarnadóttur, sem lifir mann
sinn, og eignuðust þau fjögur börn.
Kristján GuSmundsson
forstjóri andaðist 26. marz
s. 1. Banamein hans var
heilablóðfall. Hann var
fæddur að Tannanesi við
Önundarfjörð 26. júní árið
1900, sonur hjónanna Guð-
mundar Sveinssonar bónda
og Kristínar Friðriksdóttur
konu hans. Kristján lauk
prófi frá Verzlunarekóla
íslands árið 1921. Hvarf
hann að námi loknu heim
til ísafjarðar, en þar bjó hann áður en hann hóf nám
hér syðra. Setti hann á stofn verzlun á fsafirði, er hann
rak um tveggja ára skeið. Árið 1923 stofnsetti hann
á ísafirði ásamt öðrum manni fyrstu fiskimjölsverk-
smiðju hér á landi fyrir hertan fiskúrgang og starf-
rækti hana til ársins 1929, en þá se'ldu þeir félagar
hlutafélagi verksmiðjuna. Árið eftir fluttist Kristján
FRJTÁLS VERZLUN
45