Frjáls verslun - 01.04.1952, Blaðsíða 20
Magnús Þorgeirsson kaup-
m.a&nr í Reykjavík varð
fimmtugur 23. janúar s. 1.
Mönnum kann að finnast
það nokkuð seint að vera
að minnast þessa merkisaf-
mælis fyrst nú, en sannleik-
urinn er sá, að Magnús
virðist hafa haldið þessu
svo levndu. að FRJÁLS
VERZLUN var fyrst að
fregna af afmælinu fyrir
stutlu síðan. Þá er hann svo
ungur í útliti, að enginn skvldi ætla hann fimmtugan,
en ekki tjáir að rengja kirkjubækurnar.
Hugur Magnúsar snérist snemma að verzlunarstörf-
um, og vann hann um margra ára skeið hjá Björgúlfi
Stefánssvni skókaupmanni í Reykjavík. Síðar stofn-
setti Masnús sitt eiffið fyrirtæki, verzl. Pfaff, sem hann
hefur rekið með miklum myndarbrag frá því fyrsta.
Enda þótt Magnús Þorgeirsson sé að góðu kunnur
innan verzlunarstéttarinnar, þá hefur hann ekki verið
síður þekktur meðal íslenzkra íþróttamanna. Hann
lagði mikla rækt við fimleika og iðkaði þá af kappi
hjá f. R. um margra ára skeið. Þá hlotnaðEt honum
sæmdarheitið ,,Fimleikameistari fslands,“ og var hann
vel að þeim sigri kominn. Magnús fór einnig utan með
íslenzkum fimleikaflokkum og har þar uppi hróður
íslands.
FRJÁLS VERZLUN árnar Magnúsi allra heilla á
merkum tímamótum og biður hann forláts á síðbúnum
afmæliskveðjum. Megi íslenzk verzlunarstétt njóta
starfskrafta hans sem lengst.
Júlíus Björnsson, raj-
virkjam. og kaupmaSur,
varð sextugur 24. apríl s. 1.
Hann er fæddur að Lága-
felli í Miklaholtshreppi í
Hnappadalssýslu árið 1892.
Hingað til Reykjavíkur
fluttist hann tíu ára að
aldri ásamt foreldrum sín-
um, og hér hefur hann bú-
ið síðan, að undanskildum
6 árum, er hann dvaldist á
Seyðisfirði. Hann hóf bók-
bandsnám hjá Guðmundi Gamalíelssyni árið 1908 og er
meistari í þeirri iðn. Að námi loknu fór hann til Seyð-
isfjarðar og stofnaði bókband-stofu. Þar komst hann
í kynni við rafmagnið, er verið var að reisa háspennu-
stöðina þar, þá fyrstu á íslandi. Lagði hann bókbands-
iðnina á hilluna og gekk í þjónustu Indriða Helga-
sonar rafvirkjameistara. Árið 1919 réðst liann til fyr-
irtækisins S. Pétursson og Ingvarssen hér í Revkjavík,
er 'hafði með höndum rafvirkjunarstarfsemi, og árið
eftir keypti hann fyrirtækið. Næsta ár fckk hann lög-
gildingu sem rafvirkjameistari í Reykjavík. Hefur
hann samfara rafvirkjunarstarfseminni starfrækt raf-
tækjaverzlun í húsi sínu við Austurstræti 12 um fjölda
ára skeið, eins og bæjarbúum er kunnugt.
Júlíus hefur látið stéttar- og félagsmál mikið til sín
taka og er ötull liðsmaður í öllum þeim málum, er
hann lætur sig varða. Hann er nú formaður í Félagi
ísl. raftækjasala.
FRJÁLS VERZLUN árnar honum allra heilla á
þessum tímamótum. Framhald á bls. 50.
48
FRJÁLS VERZLUN