Frjáls verslun - 01.04.1952, Síða 8
ásamt fulltrúum úr verzlunarstétt, verkalýðsfélögum
og öðrum félagasamtökum í því augnamiði að efla og
færa út alþjóðaviðskipti á grundvelli jafnréttis og með
tilliti til þarfa óiðnlærðra þjóða fyrir auknum iðnaði
og vélakosti. Þá var kjörið þrjátíu manna alþjóð-
legt ráð, sem fylgja á eftir þessari áskorun til S. Þ.
Ennfremur var því falið að ákveða hvar og hvenær
næsta efnahagsráðstefna skyldi haldin.
Hvað var svo gert til dœgrastyttingar
utan þingfunda?
Við skoðuðum ýmsa markverða staði í Moskvu,
fórum í óperuna, heimsó’ttum verzlanir o.fl. Þá var
fulltrúunum á ráðstefnunni haldin veizla í ráðhúsi
borgarinnar, þar sem engu var til sparað hvað veit-
ingar snerli. I Moskvu bar talsverl á nýbyggingum, og
virðast Rússar nú leggja áherzlu á að byggja stóra
skýjakljúfa.
Þér segist hafa komið í verzlanir í Moskvu.
Hvað getið þér annars sagt okkur um þœr?
Verzlanir þær, sem ég kom inn í, voru fullar af
vörum. Bar þar langsamlega mest á rússneskum vör-
um. Verðlagið er mjög hátt horið saman við vöru-
verð hér heima. Annars getur maður í fljótu bragði
ekki gert nákvæman samanburð á verðlagi. nema
maður kynni sér vinnulaun manna að einhverju leyti.
Ei'tt var það, sem mér þótti kynlegt í sambandi við
verzlanirnar í Moskvu, sem sennilega þekkist ekki ann-
arsstaðar. Matvöruhúðir eru þar opnar alla daga vik-
unnar, en aðrar búðir opnar alla daga nema mánu-
daga. Virðist því verzlunarfólk yfirleitt ekki hafa frí
á sunnudögum. Mér fannst bera einna mest á stórum
deildarverzlunum, en aftur á móti virtist vera minna
um sérverzlanir.
Hvað vilduð þér svo að lokum segja um árangur
efnahagsráðstefnunnar?
Ég vildi aðeins bæta því við, að mér fannst þesisi
efnahagsráðstefna fara vel fram. Þar kom engin póli-
tík fram hjá neinum ræðumanna, sem allir virtust hafa
brennandi áhuga fyrir auknum viðskiptum á milli
þjóða, hvort heldur um væri að ræða kapitalistísk eða
kommúnistísk ríki. Ég vona svo, að þessi ráðstefna eigi
eftir að leiða ýmislegt gott af sér með tilliti til vax-
andi vöruskipta og um leið minnkandi pólitískra erja,
sem í dag liggja eins og klafi á viðskiptum milli alltof
margra þjóða. Annars á tíminn eftir að skera úr því,
hver raunverulegur árangur Moskvuráðstefnunnar
verfíur.
ns.
Úr myndasafni V.R.
XXXVI.
I ..............
Hallgrímur Benediktsson
,,Menn glíma viV margt um dagana.“
Davíð litli var ávallt látin klæðast fötum, er eldri
hræður hans tveir höfðu átt og vaxið upp úr. Og auð-
vitað fékk hann gömlu leikföngin þeirra líka.
Dag einn varð hann þreyttur á þessu. „Mamma,“
sagði hann, „segðu mér nú eilt. Þegar Karl og Harry
deyja, verð ég þá að giftast ekkjum þeirra?“
/ ást og stríSi er heppnin liœstráSandi.
•
Faðirinn: — Nú hlýtur þú að skilja mismuninn á
því að vera konungur eða forseti?
Sonurinn: — Já, konungurinn er sonur pabba síns,
en forsetinn ekki.
36
FRJÁLS VERZLUN