Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1952, Page 10

Frjáls verslun - 01.04.1952, Page 10
OSCAR CLAUSEN: fbA fyrstu Abatugum I’IÍJALSBAB vebziiinab IV. GBEIN Ra^apm aðw Hann var sonur Þorláks sýslumanns Magnússonar, er kallaði sig ísfjörð, en móðir Kjaitans var Soffía Erlendsdóttir sýslumanns Ólafssonar í ísafjarðar- sýslu og eru þetta þekktar ættir. Soffía var tvígift og átti tvo sýslumenn hvern eftir annan. Seinni maður hennar var Jón Sveinsson sýslumaður í ísafjarðar- sýslu, en sonur þeirra var Friðrik Svendsen agent á Flateyri1). Þeir voru því hálfbræður Kjartan Isfjord og agent Svendsen og voru talsvert líkir. — Kjartan var fæddur 1774 og fór ungur til Kaupmannahafnar og gaf sig að verzlun; fór í „læri,“ sem kallað var, til kaupmanns nokkurs og gekk þar í gegnum allar gráð- ur, var fyrst kramaradrengur, svo sveinn og svo kaup- maður á Eskifirði, en loks endaði hann sem stórkaup- maður í Höfn. — Þorlákur var mjög gáfaður maður, snaggaralegur, kvikur og eldfjörugur, en þótti stoltur og aðsjáll í viðskiptum. Hann rak um tíma mikinn kaupskap í Kaupmannahöfn og átti þá samtímis verzlunina á Eskifirði og harst þá mikið á. — Hann var þá í ýms- um virðingarstöðum ytra, m. a. var hann vara-féhirðir Bókmenntafélagsins, þegar það var stofnað og hafði verið valinn í þá stöðu, af því að menn héldu hann stórauðugan2). — Þegar ófriðurinn stóð milli Dana og Englendinga í byrjun 19. aldar urðu margir menn eignalausir vegna bankahrunsins mikla, er þjóðbanki Dana varð gjald- þrota 1814. — All mjög kom sú kreppa við hag margra íslandskaupmanna og var Kjartan ísfjord einn þeirra, er varð gjaldþrota árið 1817, en hafði áð- ur verið orðinn auðugur maður. Espólín skýrir frá þessu gjaldþroti Kjartans og segir, að hann hafi orðið „bankarot.“ — 1) Sýslumannaæfi B. B. IV, 761. 2) Espólín: Árb. XII, 95. Fyrst mun Kjartan hafa komið á kaupskipi til Eskifjarðar, þegar hann var 28 ára gamall, sumarið 1802, en þá lendir hann í hörðum deilum og mála- ferlum við sýslumanninn, Þórð Thorlacius. Þórður sýslumaður hafði fengið ábúð Eskifjarðarkauptúns hjá frú Soffíu, ekkju fyrirrennara síns, móður Kjart- ans, en Kjartan sagði hann hafa vélað ábúðina frá móður sinni og rak sýslumann umsvifalaust í burtu. En þetta dró dilk á eflir sér, því að Kjartan hafði ekk- ert borgarabréf, en verzlaði á Eskifirði, án þess að spyrja nokkurn um leyfi. Þetta var óleyfilegt og varð- aði við lög og nú fór sýslumaður á stúfana og ætlaði að ná sér niðri á Kjartani. Hann var nú kærður til Stefáns amtmanns Þórarinssonar fyrir þetta, og voru Eskifjarðarkaupmenn þeir sem kærðu, en amtmaður vísaði þessu máli frá sér og kvað það heyra undir sáttanefnd og varð svo ekkert úr neinu3). Samhliða því að reka verzlun sína á Eskifirði, „spekuleraði“ Kjartan mikið með fé sitt í ýmsum fyr- irtækjum í Kaupmannahöfn og á því sprakk hann, en í almæli var, að hann hefði ekki orðið með öllu fé- laus við gjaldþrotið og lifað nokkur ár á því, sem hann hafi dregið undan4). — Charlotta systir Kjart- ans hafði átt Heinrich Henkel kaupmann á Flateyri og síðar danskann Major auðugan, og hljóp hún nú undir bagga með bróður sínum og keypti Eskifjarð- arkauptún ásamt 1 kaupfari og gaf börnum hans þetta. Fór svo Kjartan sjálfur til Eskifjarðar og sett- ist þar að, en kona hans, sem var dönsk, og börnin urðu eftir í Kaupmannahöfn. — Það er sagt að Kjartan hafi flúið til Eskifjarðar undan nærgöngulum skuldheimlumönnum, en þeir hættu samt ekki ásælni sinni við hann, þó hann væri 3) L 65 548 410. 4) L 65 1288 410, bls. 390. 38 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.