Frjáls verslun - 01.04.1952, Page 13
við ykkur íslendinga hverjar helztu útflutningsafurð-
ir okkar eru. Þið hafið drukkið vínin okkar og borðað
ávextina, og ýmsir hafa notfært sér spánska korkið
hér uppi á íslandi fyrir fiskinet og til annarra þarfa.
Helztu viðskiptalönd okkar Spánverja eru í Suður- og
Mið-Ameríku. Viðskipti við Bandaríkin hafa verið
hafin aftur, en þó í smáum stíl enn sem komið er.
Okkur leikur forvitni á að heyra eitthvað
um verzlanir ykkar, vinnutíma
afgreiðslufólks o.s. frv.
Verzlanir í Madrid eru ekki svo frábrugðnar verzl-
unum ykkar hér í Reykjavík. Við höfum mikið af stór-
um nýtízku verzlunarhúsum og svo aftur smærri verzl-
unum, bæði nýjum og gömlum. Búðir eru nú fullar
af vörum og vöruverð yfirleitt lágt. Skömmtun á mat-
vælum er engin. Hvað viðvíkur vinnutíma verzlunar-
fólks á Spáni, þá er ég hræddur um, að ykkur Islend-
ingum myndi finnast hann nokkuð undarlegur. Við
Spánverjar kunnum aftur á móti ágætlega við hann.
Mestan hluta ársins eru búðir okkar opnar frá kl.
9—2 og isvo aftur frá 5—8. í þrjá tíma um miðjan
daginn lokum við búðunum og hættum að höndla.
Þetta er okkar „siesta,“ sem við gætum varla án verið,
því við erum vanir að taka það rólega, þegar sólin
skín sem hæzt og heitast er í veðri.
Saltfiskurinn hlýtur einhvemtíma að koma inn í
samtal Spánverja og íslendinga. Er ekki eitthvað,
sem þér vilduð segja okkur að lokum
um saltfiskneyzlu ykkar Spánverja?
Við erum alltaf hrifnir af saltfiski, og er mér óhætt
§ð segja, að ykkar fiskur líki sérstaklega vel. Verðið
hefur að vísu hækkað mikið frá því, sem það var fyrir
stríð. Þá var saltfiskur einhver sú ódýrasta og almenn-
asta fæða, sem fólk gat veitt sér. Á meðan á stríðinu
stóð var þessi fiskur ófáanlegur, og söknuðu hans þá
margir. Nú er saltfiskurinn aftur kominn á markað-
inn, en er þó ekki lengur sú almenningsfæða, sem
hann var áður. Verðið er orðið það hátt, að það er
ekki á allra færi að kaupa þennan mat lengur. Salt'-
fiskurinn fæst í hverri matvörubúð, og víða má sjá
hann niðurskorinn í búðarborðum, þar sem hann er
geymdur í vatni tilbúinn til suðu eða steikar fyrir hús-
mæður. Við gerum mikið af því að steikja saltfisk-
inn, og yfirleitt búum við hina margvíslegustu rétti úr
honum. Saltfiskurinn er satt að segja ómissandi fyrir
okkur Spánverja.
ns.
1 Mailrid tá menn sér „siesta.“
Gijtum manni gengur erjiSast aS skilja. IwaS ógiftur
matyur gerir viS alla peninga sína.
CEDRIC ADAMS.
•
Lífið var allt miklu einfaldara í gamla daga, áður
en vélaöldin hóf innreið sína í heiminn. Ef rnaður
þurfti á þvottavél, strauvél og útvarpi að halda, þá
var hægt að fá þetta allt saman með því að giftast.
Bara hringja, svo kemur þaS.
— SILLI & VALDI.
FRJÁLS VERZLUN
41