Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1952, Page 15

Frjáls verslun - 01.04.1952, Page 15
ísland. Síðustu fimm mánuði hafa verið gerðir eða endurnýjaðir viðskipta- samningar við eftirtalin lönd: í des. s. 1. var gert samkomulag um viðskipti og greiðslur milli ís- lands og Frakklands, og rennur sá samningur út 30. maí n.k. Um miðjan janúar var fram- lengdur til júníloka viðskiptasamn- ingurinn við Vestur-Þýzkaland, en í júní er gert ráð fyrir að samið verði um viðskipti milli landanna fyrir síðari hluta ársins og árið 1953. Þann 4. febrúar var undirritaður hér í Reykjavík viðskiptasamningur við Finnland og gildir hann til 31. jan. nœsta árs. Samningurinn gerir ráð fyrir, að við kaupum vörur af Finnum fyrir 850 þús. £, en seljum þeim vörur í staðinn fyrir 750 þús. £. Fyrsta april var undirrituð bók- un um framlengingu á samkomu- lagi um viðskipti milli íslands og Svíþjóðar. Gildir viðskiptasam- komulag þetta til eins árs, og bygg- ist á sama grundvelli og undanfarin ár. Vöruskiptajöfnuðurinn í marz var óhagstæður um 9,1 millj. kr. Nam innflutningurinn 57,3 millj. kr., en útflutningurinn 48,2 millj. kr. Fyrstu þrjá mánuði ársins er vöruskipta- jöfnuðurinn óhagstæður um 55,5 millj. kr., en var á sama tíma í fyrra hagstæður um 5,2 millj. kr. Nemur innflutningurinn á umræddu tíma- bili 207,3 millj. kr., en útflutning- urinn 151,8 millj. kr. Seðlaveltan í marzlok nam 182,3 millj. kr., en á sama tíma í fyrra 172,3 millj. kr. Danmörk. Danir fengu á s.l. ári brezkan námusérfræðing til þess að rann- saka frekari möguleika á kola- vinnslu í Grænlandi. Samkvæmt bráðabirgðaskýrslu sérfræðingsins, telur hann framhaldandi hagnýt- ingu kolanámanna hagkvæma, ef notuð eru nýtízku framleiðslutæki. Kolavinnsla til heimilisnotkunar hefur átt sér stað í smáum stíl víðs vegar um landið, en það er aðeins við Qutdligssal á eyjunni Disko fyrir ulan vesturströndina, þar sem námuvinnslan hefur verið starfrækt svo að nokkru nemur. Eru um 7 þús. tonn af kolum unnin árlega úr námu þessari, sem er um 20 metra fyrir ofan sjávarmál. Engir erfið- leikar eru á flutningi kolanna til strandarinnar, en útskipun og flutn- ingur kolanna til meginlandsins er mjög miklum erfiðleikum bundin. Hafnarskilyrði frá hendi náttúrunn- ar eru ekki til, strendur eyjarinnar opnar fyrir veðrum og sjávargangi og ógreiðfærar. Sundið milli eyjar- innar og lands er mjög varhugavert til siglinga, þar sem hætt er við óvæntu ísreki og borgarísjökum úr Raffinsflóa og úr Norðurhöfum. Flutningar fara fram á flatbotnuð- um bátum, og upp- og útskipun er framkvæmd með handafli. Námu- vinnslu- og flutningskostnaður er því tiltölulega hár, og rekstur allur óhagkvæmur með tilliti til lítils innanlandsmarkaðar, en með geysi- roiklu fjármagni má bæta aðstöðuna þarna á eynni til muna. Fyrir utan námurnar á Disko finnast einnig kol við Aternikerd- luk hinu megin sundsins, en það er aðeins stutt síðan að farið var að veita námunum þar verulega athygli. Við Aternikerdluk eru námurnar hátt yfir sjávarmál, og kolin þaðan eru talin betri að gæð- um en þau frá Qutdligssat, auk þess sem skilyrði til hafnarmannvirkja eru hagstæðari á fyrrgreinda staðn- um. Á þessu sumri verða sennilega allar aðstæður kannaðar nánar við Aternikerdluk og gerðar frekari boranir til könnunar á magni og gæðum. Viðskiptavelta Burmeister & Wain, hins kunna danska véla- og skipa- smíðafyrirtækis, nam á árinu 1951 um 205,8 millj. D. kr., og mun um helmingur þeirrar upphæðar vera fyrir erlendar pantanir. Eins og er nema skipa -og vélapantanir hjá fyrirtækinu um 500 millj. kr.. og er trygg full vinna næstu 2—3 árin. Noregur. Vöruskiptajöfnuður landsins var óhagstæður um 1,4 millljarð kr. á árinu 1951. Innflutningurinn (fyrir utan skip) nam 5,4 milljarð kr., en útflutningurinn 4 milljarð kr., sem er næstum 50% aukning frá árinu á undan. Ný skip voru keypt erlendis frá á árinu fyrir 892 millj. kr., en úr landi voru seld gömul skip fyrir 443,3 milj. kr. (119,8 millj. kr. 1950). FRJÁLSVERZLUN 43

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.