Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1952, Síða 16

Frjáls verslun - 01.04.1952, Síða 16
GEORGE L. HOSSFIELD: Nokkrar leiðbeiningar fyrir vélritara Listin aS vera góSur vélritari hefur veriS takmark, sem margir hafa keppt aS um dagana. MeSal skrifstofu- fólks hér í Reykjavík eru margir góSir vélritarar en hjá mörgum vantar aSeins herzlumun til þess aS geta tal- izt óaSfinnanlegir. Eru þaS aSallega smáatriSin, sem þessu fólki sézt yfir, en sem eru um leiS aSalatriSin til þess aS geta talizt óaSfinnanlegur. ,Frjáls Verzlun“ birt- ir hér góS ráS og vísbendingar um vélritun, ef þaS mætti verSa til þess aS leiSbeina skrifstofujólki til frekari kunrwttu í starfi þess. Höfundur greinarinnar, George L. Hossfield, er talinn einn af beztu vélriturum heims og hefur skrifaS margar greinar um þessa sérgrein sína, sem vakiS hafa verSskuldaSa athygli og veriS mikiS lesnar. ____________________________________________________ Hljóðfallið. Mjög mikilvægt atriði fyrir hvern góðan vélritara, og sem sérstaklega ber að undirstrika, er, að hljóðfall- ið sé í réttum skorðum, þegar vélritað er. Nú heldur þú, lesandi góður, að ef til vill eigir þú að spila síð- asta dansslagarann á ritvélina? Og þó undarlegt sé — er svaraði jákvætt — en auðvitað aðeins sem undir- stöðuatriði. Áslátturinn á leturborð ritvélarinnar á að vera með skýru og reglulegu millibili. Ef þið hafið heyrt hið jafna tif firðritarans, þá skiljið þið betur 'hvað við er átt. Áríðandi er, að hver vélritari finni sjálfur þann hraða, sem hann getur haldið með jöfnu hljóðfalli, og beiti því alltaf, ef þess er nokkur kostur. Takist það, munið þið verða undrandi yfir þeim góða árangri, sem þið náið. Óreglulegur augnablikshraði orsakar oftast villu, armar leturstafanna slást saman, og allur jafn hraði kemst úr skorðum. Hljóðfallið bætir þennan ann- marka. Augun d handritinu. Að hafa augun á handritinu eða textanum er ef til vill mikilvægara en þið haldið í fyrstu. í hvert skipti sem ykkur verður litið af handritinu yfir á ritvélina eða annan stað, tapið þið niður hraða, sem þýðir, að hljóðfallið rofnar, jafnframt sem það orsakar stundum villu. Úrfellingar og endurtekningar orsakast venju- lega af þessum ávana. Mér er það hins vegar ljóst, að það er raunverulega ómögulegt að hafa augun stöðugt á handritinu, þegar mikið er vélritað. Þó mundi gerast merkileg umbót hjá mörgum vélritaranum, ef hann einbeilti sér dyggilega við verkið og hætti öllu ónauð- synlegu flökti augnanna til og frá handritinu. Afköst vélritarans munu ósjálfrátt aukast til muna — með auknum hraða — þegar hann hefur náð tangarhaldi á þessu mikilvæga atriði. Sleppið öllum ónauðsynlegum hreyfingum. Leiður ávani hjá mörgum vélritaranum og býsna al- varlegur er að temja sér ónauðsvnlegar hrevfingar, þegar vélritað er. Til þess að útskýra nánar við hvað er átt, vil ég beina athygli ykkar að þessu atriði, sem sé að hreyfa úlnliðina og framhandleggina upp og nið- ur, þegar slegið er á stafina. Það er síður en svo hægt að hreyfa allan handlegginn eins hart og fingurnar! Þeir, sem leika á eitthvert hljóðfæri, eins og t. d. fiðlu eða píanó, skilja auðveldlega mikilvægi fingrahreyf- inganna. Þjálfun fingrahreyfinganna á að haga á sama hátt og gert er, þegar leikið er á áðurnefnd hljóð- færi. Leikni ykkar mun aukast stórlega, ef fingraþjáíf- unin er rétt. Hirðing ritvélarinnar. Ritvélin er samsett og byggð þannig, að hún þolir nokkuð hnjask, ef nota má það orð. Hún krefst hvað sem öðru líður tiltekinnar umsjónar, ef hægt á að vera að inna af hendi góða þjónustu, og um leið spara sem mest allan viðgerðarkostnað. Góð regla er að nota fáeinar mínútur á morgni hverjum til þess að hreinsa í burtu ryk og óhreinindi úr vélinni, sem safnast hefur saman frá deginum áð- ur. Hreinsið leturstafina daglega með stífum bursta, bezt er þó að gera þetta í lok vinnudagsins, á meðan svertan á stöfunum er vot. Þurrkið einnig allt ryk undan ritvélinni, því að lofthringrásin í herberginu flytur með sér rykagnir upp í vélina, sem setjast þar á ýmsa mikilvæga hluti hennar. Framhald á bls. 50. FRJÁLS VERZLUN 44

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.