Frjáls verslun - 01.02.1955, Síða 19
SHÖRDIYR11SKILDI
Ingólfur Sverrvr Gísla-
son kaujnnaður andað-
ist 13. janúar s. 1. Hann
var Reykvíkingur að
ætt, fæddur 24. apríl
1915, sonur hjónanna
Ingibjargar Friðleifs-
dóttur og Gísla Jóhann-
essonar trésmiðs.
Ungur að árum lióf
hann störf við gler-
augnaverzlun Iv. A.
Bruun, Laugavegi 2 hér í bæ og starfað'i þar um
margra ár skeið, unz hann stofnsetti sína eigin
gleraugnaverzlun árið 1942, er dafnaði vel. Sýndi
hann árvekni og dugnað í starfi sínu og var vel
metinn.
Atorka, samvizkusemi og starfsvilji ein-
kenndu störf Ingólfs öðru fremur. Hann var
maður trygglyndur og vinfastur og góður vinur
vina sinna.
Er skarð fyrir skildi við fráfall ungs manns
um aldur fram.
Kvæntur var hann Elínu Egilsdóttur, er lifir
mann sinn, og áttu þau einn son barna.
Er lagabreytingar höfðu verið samfþykktar, voru
kosnir 7 menn í trúnaðarmannaráð, auk stjóm-
ar og varastjórnar, og hlutu kosningu: Gvða
Halldórsdóttir, Andrés Bergmann, Björgúlfur
Sigurðsson, Jónas Gunnarsson, Njáll Símonar-
son, Oddgeir Bárðarson og Þorsteinn Pétursson.
Eggert Kristjánsson, formaður Verzlunarráðs
Islands, kvaddi sér hljóðs á fundinum og árnaði
hinu nýja stéttarfélagi allra heilla, og kvaðst
vona að samstarf þess við atvinnurekendur yrði
hið farsælasta.
Að lokum var samþykkt tillaga þess efnis, að
fundurinn kysi fimm manna nefnd til þess að
gera tillögur um stofnun landssam'bands verzl-
unarmanna. Vom kosnir í þá nefnd þeir Guðjón
Einarsson, Ingvar N. Pálsson, Pétur Sæmund-
sen, Björgúlfur Sigurðsson og Böðvar Pétursson.
Eftirtektarverð nýjung
Islendingar hafa löngum verið taldir bókaorm-
ar miklir, ekki aðeins á bækur á sinni eigin
tungu, heldur og einnig á erlendar bækur. Mun
hann vera orðinn nokkuð fjölmennur hópurinn
hér á landi, sem að staðaldri kaupir enskar bæk-
ur sér til ánægju og afþreyingar. Sá böggull hefur
þó fylgt skammrifi, að erfitt hefur verið að fylgj-
ast með nýútkomnum brezkum bókum, sökum
þess að nýir bókalistar hafa ekki verið á hverju
strái til að leiðbeina almenningi um bókaval. I
þeim efnum hefur orðið að treysta á val og inn-
kaup bóksalanna. Sýnist þai sitt hverjum eins
og gerist og gengur.
Bókabúð Braga Brynjólfssonar hér í bæ hefur
tekið upp kærkomna nýbreytni fyrir þá við-
skiptamenn verzlunarinnar, sem kaupa enskar
bækur að staðaldri. Hefur verzlunin tryggt sér
ákveðinn eintakafjölda af brezka mánaðarritinu
„Book of the month“, en tímarit þetta fjallar,
eins og nafnið gefur til kynna, um brezkar bók-
menntir og birtir skrá yfir bækur þær, sem koma
út í mánuði hverjum í Bretlandi, svo og væntan-
legar útgáfur. Er bókunum raðað undir tilheyr-
andi flokka, útgefanda getið og verð hverrar
bókar.
Riti þessu dreifir Bókabúð Braga Brynjólfs-
sonar ókeypis út til viðskiptavina sinna.. Ef þeir
svo óska eftir að kaup einhverja tiltekna bók,
sem um getur í mánaðarritinu, þá þarf ekki ann-
að en að gefa upp bókarheiti, höfund og útgef-
anda, og bókaverzlunin sér svo um pöntun á
henni.
Mun þessi nýbreytni mælast vel fyrir og vera
þakksamlega þegin af öllum þeim, er lesa enskar
bækur að staðaldri.
Á almennum launþegafundi, er haldinn var í
V. R. fimmtudaginn 27. jan. s.l., var samþykkt
að' segja upp gildandi samningum við atvinnu-
rekendur frá og með 1. marz, samkvæmt til-
lögu frá stjórn félagsins.
Þá var skýrt frá því, að sameiginleg nefnd
launþega og atvinnurekenda liefði til athugunar
tillögurnar um lífeyrissjóð verzlunarmanna, og
jafnframt voru félagarnir hvattir til að kynna
sér þetta mál. (Sjá FRJÁLSA VERZLUN, 3.—
4. hefti 1954).
ÍB J AIS VERZiTJN
19