Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1969, Qupperneq 9

Frjáls verslun - 01.06.1969, Qupperneq 9
FRJALS VERZLUN 9 Afgreiðsla og bókhaldsdeild Samvinnutrygginga. semi og hugsjón Samvinnutrygg- inga og sóttu fundi þessa um 5000 manns. — Á stjórnarfundi kom til tals kaup á íslandsdeild norska líf- tryggingafélagsins ANDVAKE. Heildariðgjöld Samvinnutrygg- inga námu á þessu ári 4.469.196 krónum, sem var 45% hækkun frá árinu á undan. Andvaka keypt. A árinu 1949 tókust samningar um kaup á And- vöku. Það ár var í fyrsta sinn greiddur tekjuafgangur af bruna- og bifreiðatryggingum, samtals 192.682 krónur, og var það í fyrsta skipti, sem tekjuafgangur var greiddur af viðskiptum við trygg- ingafélag hér á landi. — 29. des- ember var lO.OOOasta brunatrygg- ingaskírteinið gefið út og heildar- iðgjöld á árinu jukust um 36.5% frá árinu áður. 1950 var úthlutað tekjuafgangi í öllum deildum, samtals 340.224 krónum. Á aðalfundi Samvinnu- trygginga var samþykkt tillaga. þar sem lýst var þeirri skoðun, að fella ætti úr gildi „einkaað- stöðu þá, sem Brunabótafélag ís- lands hefur til brunatrygginga húsa utan Reykjavíkur." — Þetta fyrsta starfsár ANDVÖKU voru gefin út 1730 ný líftryggingaskír- teini. Bókaútgáfa. Á árinu 1951 er um þriðjungur allra bíla tryggður hjá Samvinnutryggingum. Hafnar eru útgáfur á bókinni „Öruggur akst- ur“ og tímaritinu „Samvinnu- TRYGGING", sem send eru ókeyp- is til viðskiptamanna. Ný innbús- trygging er tekin upp, sem nær til tjóna af völdum bruna, vatns- leiðsluskaða og innbrota og drátt- arvélatryggingar. VIÐURKENNIN G ARMERKI 1952 er hafin veiting viðurkenn- ingarmerkja fyrir „5 ára öruggan akstur“ og hljóta þau 124 bifreiða- eigendur fyrsta árið. — Hluti af tekjuafgangi er lagður í stofnsjóð Samvinnutrygginga á nafn hvers tryggingataka og nemur þessi upp- hæð samtals um 1,7 milljón króna. Útborgaður tekjuafgangur nemur 391.744 krónum og er þá úthlut- aður tekjuafgangur til trygginga- taka orðinn samtals rétt rúmar 2 milljónir króna. Þetta árið nema heildariðgjöld um 14,6 milljónum og er það 17,3% hækkun frá næsta ári á undan. Á aðalfundi Samvinnutrygginga 1953 er enn gerð samþykkt um af- nám einkaréttar Brunabótafélags- ins á brunatryggingum húsa utan Reykjavíkur og það árið byrja Samvinnutryggingar að taka frjálsar ábyrgðartryggingar. Bygg'- ing eigin skrifstofuhúss í Reykja- vík er þá vel á veg komin. Samþykkt er reglugerð fyrir „Stofnsjóð Samvinnutrygginga g/t“ og Samvinnutryggingar taka upp víðtækt brunavarnaeftirlit til að koma í veg fyrir eldsvoða í verzlunum og atvinnufyrirtækj- um. Blaðadeilur. Á árinu 1954 urðu miklar blaðadeilur um skipan brunatrygginga húsa í Reykjavik Þær eru boðnar út 25. febrúar og gerðu Samvinnutryggingar hag- stæðasta tilboðið — bjóða 47 % lækkun — en þrátt fyrir áskorun Fasteignaeigendafélags Reykjavík- ur um að taka tilboði Samvinnu- trygginga er því hafnað og bæjarstjórn samþykkir að bærinn taki sjálfur að sér tryggingarnar án nokkurrar iðgjaldalækkunar. Fyrsti fundur með umboðsmönn- um er haldinn að Bifröst 2. og 3. júlí 1954. Þann 17. desember er Erlendur Einarsson ráðinn for- stjóri S.Í.S.. Framkvæmdastjóri Samvinnutrygginga í hans stað er ráðinn Jón Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Andvöku. Stofnsjóður Samvinnutrygginga er nú orðinn 2,8 milljónir króna og heildariðgjaldaaukning frá ár- inu á undan verður 28,4%. Á áttunda aðalfundi Samvinnu- trygginga, sem haldinn var að Bifröst 24. júní 1955, er Erlendur Einarsson kosinn stjórnarformað- ur í stað Vilhjálms Þór, og á sama ári flytjast Samvinnutryggingar í eigið skrifstofuhúsnæði, í bygg- ingu áfastri Sambandshúsinu. Jafnframt er á þessu ári samið við 84 sveitarstjórnir um bruna- tryggingar húsa. Skoðanakönnun. Að beiðni eins tryggingafélagsins í Reykjavík fer fram skoðanakönnun meðal bílstjóra um afsláttarkerfi það, sem Samvinnutryggingar inn- leiddu, þegar Bifreiðadeildin tók til starfa, og leiðir hún í Ijós, að allur þorri bíleigenda vill halda í það kerfi. Gjafir. í tilefni tíu ára afmælis Samvinnutrygginga 1956 er geíið út sérstaklega vandað hefti af „Samvinnu-TRYGGINGU“, — og starfsmönnum fyrirtækisins eru

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.