Frjáls verslun - 01.06.1969, Blaðsíða 11
FRJÁL5 VERZLUN
11
gefnar 100 þúsund krónur „til
gagns og gleSi“. Efnt er til hug-
myndasamkeppni í umferSarmál-
um og greidd verSlaun fyrir tvö
beztu svörin -—■ 7 þúsund og 3 þús-
und krónur.
Á 10 ára afmælinu er unniS aS
bættum brunavörnum í sveitum
landsins: SlökkviliSsbíll keyptur
fyrir EyjafjörS, handslökkvitæki
á hvern bæ í Árnessýslu ásamt 3
slökkvivögnum og hafin smíSi á
slökkvibíl fyrir Rangárvallasýslu.
ÁriS 1956 nemur úthlutaSur tekju-
afgangur 2.674.938 krónum og
heildariSgjöld 43.054.642 krónum.
1957 er samþykkt reglugerð tii
að veita heiðursverSlaun fyrir
snarræSi og árvekni í aS koma í
veg fyrir stórtjón á eignum —
heiSursverSlaunin eru skrautritað
skjal og krónur 5 þúsund. ■— Sam-
vinnutryggingar auglýsa „Heim-
ilistryggingu", sem nær strax
miklum vinsældum.
Árið 1958 lætur Jón Ólafsson
af störfum framkvæmdastjóra
vegna heilsubrests og í hans stað
ráðinn Ásgeir Magnússon, lögfræð-
ingur. Heildariðgjöld það árið
nema um 60 milljónum króna og
er aukningin frá fyrra ári 27,2%.
Stærsta tjón. 1959 greiða Sam-
vinnutryggingar stærsta tjón, sem
íslenzkt félag hefur orðið að
greiða — krónur 14.150.300 vegna
togarans Júlí, sem fórst á Ný-
fundnalandsmiðum í febrúar þetta
ár. — Nýjar IBM bókfærslu- og
skrifstofuvélar teknar í notkun og
samþykkt er aðild að fyrirhuguðu
Sambandi íslenzkra tryggingafé-
laga.
í Hafnarfirði opna Samvinnu-
tryggingar skrifstofu 1960 og 1961
er hafin útgáfa á ,,Gjallarhorninu“
— málgagni fyrir samv.tr.menn.
Sama ár — 1961 — er húseignm
Bankastræti 7 í Reykjavík keypt
og gefnar eru 50 þúsund krónur
til blindraheimilis í Reykjavík í
tilefni 15 ára afmælis félagsins.
Árið 1961 eru í fyrsta skipti veitt
verðlaun fyrir „10 ára öruggan
akstur“. — 1962 er „Bíllinn minn“,
hentugur bæklingur fyrir bíl-
stjóra, gefinn út og efnt er til
þriðju verðlaunagetraunarinnar
fyrir börn og unglinga. „Ný heirn-
ilistrygging" — án iðgjaldahækk-
unar tekin upp. — Tjónagreiðslur
þetta ár nema 72,7% af iðgjöldum,
sem eru alls rúmar 102 millj.kr.
Jón Rafnar Guðmundsson, dcildar-
stjóri.
Bruno Hjaltested, deildarstjóri.
Björn Vilmundarson, deildar-
stjóri.
Lýðræðislegra skipulag. Á 16. að-
alfundi Samvinnutrygginga, sem
haldinn er á ísafirði 9. maí 1963,
eru gerðar miklar ’lagabreytingar
varðandi lýðræðislega yfirstjóvn
fyrirtækisins. Fulltrúaráðsmönn-
ujn er fjölgað í 21 og varamönr.-
um í 11. Þá er stjórn Samvinnu-
trygginga nú kosin af fulltrúaráðs-
fundi en ekki af stjórn S.Í.S.. —
Landsfundur umboðs- og trygg-
ingamanna er haldinn í Borgar-
nesi, og þeim afhent ný handbók
fyrir umboðs- og tryggingamenn
Samvinnutrygginga.
Samstarf milli Samvinnutrygg-
inga og Samvinnubankans um
rekstur tryggingaumboðs og
bankaútibús í sameiginlegum
húsakynnum hefst 3. janúar 1964
á Akranesi og síðar á árinu í Hafn-
arfirði og Patreksfirði. í árslok
flytja Samvinnutryggingar í nýtt
og glæsilegt eigið húsnæði að Ár-
múla 3.
1964 eru tjónabætur alls rúm-
ar 144 millj. króna, en heildarið-
gjaldatekjur nema um 155 millj-
ónum króna.
Árið 1965 gefa Samvinnutrygg-
ingar Handritastofnun íslands 100
þúsund krónur og 6. nóvember
sama ár er stofnaður fyrsti klúbb-
urinn „Öruggur Akstur“ á ísa-
firði. Síðar á árinu eru fleiri slík-
ir klúbbar stofnaðir.
Þetta ár er hrundið af stað með
góðum árangri svonefndum
„Bændatryggingum" og hljóta
þær meðmæli Búnaðarfélags ís-
lands. — Tuttugasta desember er
„ÖF-tryggingin“ kynnt og boðin
félagsmönnum ókeypis í hálft ár
en fyrir 250 kr. ársgjald eftir það.
Trygging þessi þykir merkt ný-
mæli og nær skjótum vinsældum.
Greidd tjón á árinu 1965 nema
alls tæpum 150 millj. kr., sem eru
79,92% iðgjalda. Endurgreiðsla
tekjuafgangs nemur á árinu 5Vá
milljón og er þá alls orðinn tæp-
ar 62 milljónir. Heildariðgjöld á
árinu nema 186.535.339 krónum og
er það 20,37% aukning frá fyrra
ári.
Nítjándi aðalfundur Samvinnu-
trygginga er haldinn á Blöndu-
ósi 10. maí, en 1. maí hafði fynr-
komulagi iðgjaldagreiðslna bíleig-
enda fyrir „Ábyrgðartryggingar“
verið umturnað, og er greiðendum
nú mismunað mun meira miðað
við ökuferil þeirra. — Fer nú