Frjáls verslun - 01.06.1969, Qupperneq 19
FRJALS VERZLUN
19
NÆTURKLÚBBAR I 10ND0N
Að Kaupmannahöfn einni und-
anskilinni nýtur engin borg jafn-
mikilla vinsælda hjá íslenzkum
ferðamönnum og London. London
er heimsborg, sem á síðari árum
hefur orðið æ frægari fyrir fjöl-
breytt skemmtanalíf. íslendingar
munu sem áður leggja leið sína
til London, og vegna kaupsýslu-
manna og almennra ferðamanna,
sem heimsækja höfuðborg Bret-
lands eða koma þar aðeins við ú
ferð sinni til sólarlanda, minnumsv,
við hér lítillega á tvo af nætur-
klúbbum borgarinnar og gerum
grein fyrir, hvað þeir hafa upp
á að bjóða.
MURRAY’S CABARET CLUB,
Beak Street.
Þessi frægi staður er elztur næt-
urklúbbanna í London. Stofnandi
hans var brautryðjandi á sviði
kabarettsins í Englandi og sýning-
arnar, sem hefjast klukkan 22,15
og 1 eftir miðnætti, eru hinar stór-
brotnustu í Evrópu. Þar koma m.
a. fram 45 laglegustu dansmeyjar
Englands. Klúbburinn er opinn
öll kvöld nema sunnudagskvöld,
kl. 20 til 4 að morgni. Matur er
fram borinn og hefðbundinn morg-
unverður frá kl. 1, þar til klúbbn-
um er lokað. Þess er ekki krafizt
að gestirnir borði kvöldverð í
klúbbnum. Aðgangseyrir er £ 1-
10-0. Karlmenn, sem þangað fara
án dömu, þurfa ekki að kvíða því
að verða af dansinum.
EDMUNDO ROS’ CLUB
Þetta er klúbbur með yfirbragði
hinnar rómönsku Ameríku. Þar
er borinn fram franskur matur,
en ekki er til þess ætlazt, að allir
gestir kaupi kvöldverð. Tvær
hljómsveitir sjá um að leika fyrir
dansi, önnur leikur eingöngu suð-
ur-ameríska dansa, en hin öll vin-
sælustu dægurlögin. í klúbbi Ed-
mundo Ros’ koma fram frægustu
skemmtikraftar, sem völ er á
hverju sinni í öllum heimshornum.
Klúbburinn er opinn til kl. 3.30
að morgni. í klúbbnum eru ávallt
mjög fallegar dansdömur.