Frjáls verslun - 01.06.1969, Qupperneq 31
FRJALS VERZLUN
31
FRAMLEIÐSLA
HOFNAR
VINDLAVERKSMIÐJURNAR
Vindlaframleiðsla breyttist úr heimilisiðnaði í verksmiðjuiðnað.
Útflutningsforstjóri HOFNAR-
vindlaverksmiðjunnar í Hollandi,
W. de Gruijter, hefur að undan-
förnu verið á löngu ferðalagi um
ýmis Evrópulönd til að kynnast
viðskiptavinum fyrirtækisins, og
er hann nú staddur hér á landi í
fyrsta sinn til að ræða við um-
boðsfyrirtæki þess hér, J. P. Guð-
jónsson hf., svo og forstjóra
Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkis-
ins og fleiri aðila.
HOFNAR-fyrirtækið, sem hét f
upphafi Heesterbeek & Co., og
hefur aðsetur í smáborginni Valk-
enswaard, er eitt hið elzta í þess-
ari grein í Hollandi, stofnað um
1880. Verksmiðja þess framleiðir
einungis vindla, og er ekki í
tengslum við nein önnur fyrirtæki
innan tóbaksiðnaðarins.
Þegar HOFNAR hóf starfsemi
sína, var vindlaframleiðsla ein-
ungis heimilisiðnaður í Hollandi.
Vindlagerðarmenn unnu heima
hjá sér fyrir hina ýmsu vindla-
kaupmenn, sem sáu þeim fyrir
hráefnum og komu framleiðslu
þeirra síðan í verð. En HOFNAR-
fyrirtækið breytti þessu. Það
stofnaði fyrstu raunverulegu
vindlaverksmiðjuna; vindlagerð-
armenn komu þar til vinnu sinn-
ar eins og í hverja aðra verk-
smiðju.
Um þessar mundir var heldur
ekki um það að ræða, að vindl-
arnir væru framleiddir undir sér-
stöku vörumerki eða heiti. Breyt-
ing varð þó á því á árum fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Þá gaf
HOFNAR-verksmiðjan vindlateg-
und nafn í fyrsta sinn, og nafnið
var tímanna tákn. Það var „Vre-
den“, sem þýðir ,,friður“. Árið
1924 var fleiri tegundanöfnum
svo bætt við, og voru hin fyrstu
„Patent", „Subliem“, og „Bouqu-
et“. 5 árum síðar eða þar um bil
var svo tekið upp heildarnafn
GEGARANDEERD
AOO°/oTABP,K
fyrir framleiðslu fyrirtækisins —
,,HOFNAR“ — en einstakar teg-
undir eru síðan seldar undir nöfn-
um eins og „Hofnoritas“, „Con-
chitas“, „Splendid“, „Half-time“,
„Ambassador“ og fleiri. Eru slík
tegundanöfn nú alls 20.
HOFNAR-vindlar eru gerðir að
mestu úr tóbaki frá Indónesíu,
sem hefur mjög sérkennilegan,
þægilegan keim, sem ekki er að
finna í öðru tóbaki, en auk þess
er nokkru af tóbaki frá Kamerún,
Brazilíu og Kúbu blandað í sum-
ar tegundir.
HOFNAR auglýsir, að það noti
100% tóbak í vindla sína. Stafar
þetta af því, að það er mjög al-
gengt hjá ýmsum framleiðendum,
að þeir kurla smæsta tóbakslauf-
ið, en blanda síðan sellulóse-efn-
um í mylsnuna og mynda úr
henni stærra „lauf“, sem svo er
notað í „innvið“ vindlanna. Ó-
kunnugir geta ekki gert greinar-
mun á raunverulegu tóbakslaufi
og slíku „gerfilaufi“, en þessi að-
ferð hefur aldrei verið viðhöfð
hjá HOFNAR.
Vindlagerð var handavinna
lengstum framan af, eins og fyrr
segir, en fyrsta vindlagerðarvélin
var tekin í notkun hjá HOFNAR
árið 1931, og vafði hún „kjarna“
vindlanna, sem kallast „pop“ á
hollenzku. Yzta laufið varð eftir
sem áður að vefja með höndun-
um, því að vélar voru ekki nógu
fíngerðar til þess. En fjórum árum
síðar, árið 1935, voru komnar vél-
ar, sem gátu einnig unnið þetta
verk, og árið 1951 var smíðuð vél,
sem gat vafið og framleitt vindil
að öllu leyti í einni framleiðslu-
lotu. Þetta hefur allt orðið til
þess, að nú framleiða 650 starfs-
menn HOFNAR-verksmiðjanna
margfalt fleiri vindla en 1300
manns gátu framleitt fyrir styrj-
öldina.
HOFNAR-vindlar eru seldir til
rúmlega 30 landa, mest í Evrópu.
Beztu viðskiptavinir fyrirtækis-
ins eru Norðurlöndin öll — og er
ísland með sérstaklega háa hlut-
fallstölu miðað við fólksfjölda —
England, írland, Vestur- og Aust-
ur-Þýzkaland, Sviss, Frakkland og
Kanada.