Alþýðublaðið - 14.07.1969, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 14.07.1969, Qupperneq 2
•2 Alþýðublaðið 14. júl' 1969 IRITHÖFUNDA 1FIÖLSKYLDA < □ Nýlega hélt bókaútgefandi í London hádegisverðarboð til heiðurs mikilli rithöfunda- fjölskyldu. Tilefnið var það að í haust koma út hvorki meira né minna en sex bækur eftir jafnmarga fjölskyldumeðlimi. Fjölskyldufaðirinn Longford lávarður sendir frá sér bók sem nefnist Um auðmýktina, en kona hans hefur ritað bók um ættföður sinn hertogann af Wellington. Elzta dóttir þeirra, lafði Antonia Fraser, sem er 37 ára gömul, hefur samið ævi- sögu Maríu Stuart; elzti son- urinn, Thomas, hefur ritað bók m uppreisnina í íflandi 1798; næstelzta dóttirin, Judith Kazantzis, 29 ára, sendir frá sér bók um kvenréttindabar-: áttuna og Gordon-uppreisnina, og þriðja dóttir, lafði Rachel ’Billington, gefur út skáldsögu. Fjórða dóttii-in hefur enn ekki skrifað bók, en hún vinnur þó við skriftir; hún er blaðamaðun hjá Daily Telegraph. Alls hefur þessi fjölskyldá þegar samið 20 bækur, og nö bætast 6 við í haust. í boðinU sögðu bókaútgefendurnir að þetta væri tvímælalaust mesta rithöfundafjölskylda í Eng- landi, en fjölskyldufaðirinn, lordinn, lék á alls oddi og sagði að þessu fyflgátu þó gallar: það væri ekkert gaman að vera sí- fellt þakkað fyrir bækur sem kona manns hefði skrifað. —■ Hér stigu tnenn frá plánetfunni jörð Þetta spjald er meðal muna, sem geimafrarnir, er heimsækja tunglið lum næstu j helgi, eiga að skilja þar eftir. Á spjaldinu stendur: Hér stigu menn frá þlánet-. unni Jörð í fyrsta skipti fæti á Mánann í júlí 1969 Við komum í friði til allra manna Undir skajlið rita geimfararnir þrír og Nixon forseti Bandaríkjanna. GÆÐI |i i % ■ , e: . ■ - .

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.