Alþýðublaðið - 14.07.1969, Blaðsíða 3
Alþýðubláðið 14. júlí 1969 3
The Kinks leika
í Kaupmannah.
□ Hljómsveitin ,the Kinks“,
koma til Kaupmannahafnar
n.k. mánudag og munu halda
tónleika í Tívolí og veitinga-
húsi Revolution.
The Kinks var stofnuð árið
1964 og hefur síðan blómstrað
í skerandi rhytm & blues tón-
um, en nú hafa þeir breytt um
stíl og eru orðnir meira lifandi
og fjörugir. Breytinguna má
bezt heyra með því að bera
saman „You really got me“ og
Franrhald á bls. 11.
Lyfseðlar gildi jáfnt á
Norðurlöndum
□ Lyfseðlar útgefnir í einu
Norðurlandanna, eiga að hafa
sama gildi í þeim öllum, álykt-
ar norsk nefnd, sem hefur nú
lagt ályktunina fyrir Norður-
landaráð.
Málið hefur annars verið í
deiglunni hjá Norðurlandaráði
síðan 1965.
Verði þetta samþykkt, getur
lyfseðill sem er útfylltur af
íslenzkum lækni, verið gjald-
gengur á Norðurlöndunum. "ú
Norska nefndi hefur þó f
huga vissar hömlur, sem taka
verður tillit til, svo sem að
lyfseðillinn hljóði ekki upp á
eiturlyf. —
Helmingur upp-
bólarinnar
tekinn afiur
□ Kjaradómur kvað á föstu-
daginn upp dóm um vísitölu-
greiðslu rtil opinberra starfs-
manna fyrir tímabilið 1. marz
til 1. júní, en áður höfðu aðil-
ar gert með sér samkomulag
um að ríkissjóður greiddi hverj
um opinberum starfsmanna kr.
3.500 til bráðabirgða fyrir þetta
tímabil og var sú greiðsla innt
af hendi 10. júní s.l. Dómur-
inn lækkar þessa upphæð hins
vegar um helming og eiga rík-
isstarfsmenn samkvæmt hon-
um að fá greiddar kr. T750 fyr-
ir þetta tímabil, þeir sem störf-
uðu á því öllu, en aðrir er
skemur hafa starfað uppbót í
hlutfalli við starfstíma sinn.
Samkvæmt þessari niðrstöðu
verður ríkisstarfsmönnum gert
að greiða til baka helming þeirr
ar uppbótar sem þeir fengu fyr-
ir mánuði. —
Guðmundur
sigraði í 1
skákmotinu
• □ Guðmundur' jSigurjónsson
sigraði í skákmóti Taflfélags
Reykjavíkur og hlaut 4 vinn-
■1 inga, í öðru sæti var Bragi
Kristjánsson með 314, en í 3.—
5. sæti þeir Freysteinn Þor-
bergsson, Björn Sigurjónsson
- og Trausti Björnsson með 3
vinninga hver. — Friðrik Ólafs
son hóf þátttöku í þessu móti,
en varð að hætta keppni sök-
um veikinda eftir 4 umferðir,
. og liafði hann þá hlotið 1 vinn-
ing. —
3JA ÁRA ÁBYRGÐ
EINKAUMBOÐ FYRIR KUBA SJÓNVARPS- OG ÚTVARPSTÆKI
Laugaveg 10 - Simi 19192 - Reykiavfk
UMBOÐSMENN I RVÍK: TRÉSM. VlÐIR OG VERZL. RAFORKA.
UMBOÐSMENN ÚTI A LANDI: VERZL. ÞÓRSHAMAR, STYKK-
ISHÓLMI; MAGNÚS GlSLASON, STAÐ ARSKÁLA; GUÐJÓN
JÓNSSON, ÞINGEYRI; ODDUR FRIÐRIKSSON, ISAFIRÐI;
PÁLMI JÓNSSON, SAUÐARKRÓKI; HARALDUR GUÐMUNDS-
SON, DALVIK; ALFREÐ KONRÁÐSSON, HRÍSEY; SJÓNVARPS-
HÚSIÐ HF„ AKUREYRI; SIGURÐUR ÞÓRISSON, HLÉSKÓGUM
HÖFÐÁHV.; ÞORST. AÐALSTEINSSON, STRÖND v/MYVATN.
Nú geta allireignast KUBA
Þrátt .fyrir vísindi og þekkingu nútímans er eitt það fyrirbrigði,' sem fremur lítið er vitað um.
Þetta fyrirbrigði er síldin. Enginn virðist vita hvaðan hún kemur, hvert hún fer, hvort hun veið-
ist og jafnvel ekki hvað fyrir hana fæst, ef hún veiðist. Þetta væri þó allt í góðu lagi, ef. þannig
hefði ekki einmitt hitzt á, að við íslendingar byggjum afkomu okkar að verulegu leyti á síldinni.
Því skiptast hér á skin og skúrir tíðar en víðast annars staðar. — Við leggjum mikla áherzlu á
það, að fylgjast með þörfum og óskum viðskiptavina okkar. Þessvegna bjóðum við nú viðráðan-
legri greiðsluskiimála en áður. Til 25. júlí n.k. seljum við KUBA sjónvarpstækin með aðeins 20%
útborgun (kr. 4—6 þús.). Nú geta allir eignast KUBA sjónvarpstæki. Kaupið KUBA, það borgar sig.