Alþýðublaðið - 14.07.1969, Side 14
14 Alþýðublaðið 14. júl' 1969
^Hamingjan
er
Ijverful
SuSan
zAShe
i
! 8.
— HvaS heldurðu, að þú græðir á því? spurði Helen
^ undrandi. — Þótt þú takir Pétur frá mér, er ekki
^ tiægt að ógilda.hjónaband okkar. Þú gerir okkur öll
bara óhamingjusöm.
^ —Það er einmitt það, sem ég vil! Þú verður að
| Iíða fyrir það, sem þú gerðir. Þið skuluð bæði líða fyr-
j ir það, að þið gleymduð mér.
[ — Pétur líka? Ætlarðu líka að gera Pétrl illt?
; spurði Helen.
*i — Ég skal særa hann, unz honum finnst lífið ó.
bærilegt. Hann lét þig ræna sér frá mér, — og þið
j skuluð aldrei fá að gleyma því.
Helen reis upp og tárin næstum blinduðu hana.
sem hún ætlaði sér að gera. Hvernig átti hún að
hindra hana í því að ræna Pétri?
Hún heyrði ekki, að dyrnar inn að búðinni opnuð-
ust, en Gilda heyrði það og tók hún nú utan um
| systur sína og faðmaði hana að sér, og þegar Pétur
kom inn, var allt fullkomnað, og Fallega Gilda var að
hughreysta systur sína,
Helen ,sem var þreytt og áhyggjufull áleit um stund
að Gilda hefði iðrazt orða sinna, en svo heyrði hún
þessa lágu, ástúðlegu rödd segja við Pétur:
— Mikið er ég feginn, að þú komst, Pétur, sagði
j Gilda. ■— Helen ásakar sig fyrir þetta allt. Segðu
henni, að hún megi ekki vera of leið yfir því, að hún
\ eyðilagði allt fyrir okkur. Hún er konan þín, og það
t er um seinan að iðrast eftir dauðann.
Helen stirðnaði upp og sleit sig lausa. Hún leit á
Pétur og í augu hans, og síðan þaut hún út með áköf-
um ekka, en þegar hún var aftur orðin ein, tók
f hún ákvörðun. Gilda skyldi fá að berjast fyrir honum
j og berjast af móði,
Eftir kvöldmatinn sýndi Gilda aftur kænsku sína.
f 2— Mig langar til að hátta, ég er svo þreytt, en ég
þori alls ekki að sofa ein, tautaði hún niðurlút. —
Mig dreymir svo illa, og ég vakna og veina af hræðslu
og þori alls ekki að sofna aftur. Ef þér þætti nú að-
eins vænt um mig, Helen, eins og þegar við vorum
litlar. Þú huggaðir mig alltaf, þegar ég fékk mar-
tröð. Hún leit biðjandi á systur sína: — Þú verður
að hugsa um mig núna, Helen! Má ég sofa hjá þér?
Áður en Pétur hafði svarað, Vissi Helen, að Gilda
hafði sigrað.
— Vitanlega máttu sofa hjá Helen! Hann leit á
konuna, sem sat andspænis honum við borðið eins
og stytta. — Farðu upp með harra, Helen. Ég skal
ganga frá hérna niðri.
Helen gekk þegjandi upp á loft og setti náttfötin
og inniskóna inn í gestaherbergið. Þegar hún var
búin að búa um hanrr, fór hún inn í hjónaherbergið,
og þar lá Gilda, sigri hrósandi, í hjónarúminu.
— Það er auðvelt að snúa Pétri um fingur sér, ef
maður kann aðferðina. Hún teygði letilega úr sér. —
Þetta er ólík betra rúm en þessi voða koja, sem ég
svaf í í írlandi. Ég vil hins vegar ekki hafa þig nálægt
mér, svo að þú skalt bara halda þig í fjarlægð.
Nú brauzt reiði Helenar út.
— Ég vildi heldur sofa hjá eiturslöngu en þér.
Ég fyndi þó stunguna strax!
Hún opnaði skáp og tók fram svefnpoka og setti
hann við gluggann. Gilda skellti upp úr.
—Ethel segir, að þú hafir leitað á hann, ekki
hann á þig, sagði Gilda og leit undan.
•— Hann bað mig um það. Hann þarfnaðist mín,
Gilda og honum þótti vænt um mig. Við vorum ham-
ingjusöm, en nú ert þú komin heim, og ég veit ekki,
hvað ég á að gera.
Þetta kom beint frá hjartanu, og nú laut Gilda
áfram, svo að andlit hennar var þétt við andlit systur
hentnar. Helen hörfaði aftur á bak, því að andlit Gildu
var eins og steingervt, og augu hennar voru kulda-
leg eins og ísmolar. Nú herpti hún saman varirnar og
sagði fussandi:
— Svo að þú veizt ekki, hvað þú átt að gera, fyrst
ég er komin heim aftur? Þú átt að skila mér Pétri
aftur eða réttara sagt — ég skal taka hann af þér
og frá þér. — Þetta var sú gamla Gilda sem hún
þekkti. Öll óvenjulega blíðan var horfin.
— Hann er maðurinn minn! hvíslaði Helen,
— Hann er minn og hefur alltaf verið minn! Gilda
sagði þesi orð mjög hægt eins og hún vildi njóta
þess hvað systir hennar þjáðist. — Ég hef þjáðzt
og nú vil ég láta bæta mér það upp. Ég skal eyði-
leggja þetta heimskulega hjónband ykkar, svo að það
verði aldrei hjónaband hér eftir. Ég skal eitra hugsan-
ir hans og tilfinningar til þínr, svo að hann þoli ekki
að sjá þig að lokum. Ég skal sjá um, að hann flytji úr
hjónaherberginu og komi þangað aldrei aftur. Já, ég
skal sjá um, að hann fari úr þínu rúmi í nótt!
— Ég skal stinga þig alla daga, systir mín góð.
Þegar ég hef komið þér úr hjónarúminu — eins og
núna — er næsta skrefið að koma þér af heimilinu
og úr lífi Péturs.
Næstu daga umsneri Gilda öllu, sem Helen sagði
eða gerði, sér í hag.
— Hún vill ekki sofa hjá mér, Pétur, sagði Gilda,
og stór augu hennar urðu sorgmædd að sjá. — Hún
sefur í svefnpoka. Hvernig getur hún verið svona hörð
og harðbrjósta? Ef mamma væri nú bara hjá mér!
Ef mamma kæmi heim, hugsaði Helen, yrði Gilda
að flytja heim til hennar. Helen þagði stöðugt, því
að hún vissi af gamalli reynslu, að orð hennar hrutu
af Gildu eins og vatn af gæs, en Gildu tókst jafnvel
að skýra þögrr Helenar sér í hag.
Helen var gjörsamlega hjálparlaus. Ef hún gæti
aðeins fengið einhvern til að hjálpa sér! Skyndilega
minntist hún Uoyd Rutley. Hann hafði alltaf verið
vinur hennar og margoft gefið henni góð ráð. Hann
vissi, hvernig Gilda var og gat kannski aðstoðað hana.
I
I
I
;
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Smáauglýsingar
trésmíðaþjónusta
Látið fagmann annast viðgsrðir og viðhaJd á tréverki
húseigna yðar, ásamt breytingum á nýju og eldra
húsnæði. — Sími 41055.
VOLKSWAGENEIGENÐUR!
Höfuan fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vé'íarlok
— Geymsluloik á Volkswagen í állfflestum litum.
Skiptum á einum degi með dagsfyrinvara fyrir á-
kveðið verð. — Reynið viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25,
Símar 19099 og 20988.
GLUGGAHREINSUN og rennuhreinsun. Vönduð
©g góð vinna. Pantið í tíma í síma 15787.
BIFREIÐ A STJÓRAR
Geruim við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein:
hemlaviðg'eðir, hemlavarahliutir.
Hemlastilling h.f., Súðavogl 14, Sími 30135.
BÓLSTRUN — SÍMI 83513.
Hef flutt að Skaftahlíð 28, klæði og gerl við bólstruð
húsgögn. Bólstrun Jóns Árnasonar, Skaftahlíg 28,
simi 83513.
PÍPULAGNIR
Tek að mér viðgerðir, uppsetningu á hrein-
lætistækjum, frárennslis-og vatnslagnir
Guðmxmdur Sigurðsson
Sími 18717
Jarðýtur - Traktorsgröfur
Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur traktorsgröf-
ur og bílkrana, til allra framkvæmda, innan og utan
borgarinnar.
Jarðvinnslan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080.
Heimasímar 83882 — 33982.
MATUR OG BENSÍN
allan sólarhringinn.
Veitingaskálinn, Geithálsl.