Alþýðublaðið - 16.07.1969, Blaðsíða 12
12 Al'þýðublaðið 16. júlí 1969
; tk >*
Ritstjóri: Örn Eiösson
Gotf á Suð-
urnesium
Dagana 12. og 13. júlí fór
fram svonefnd PAA keppni á
Hólmsvelli. Leiknar voru 36
holur án forgjafar. Keppendur
voru 48 og var keppt í meistara
flokki I.,og II. Úrslit urðu þau
í meistaraflokki að Þorbjörn
Kærbo íslandsmeistari G. S.
sigraði með 163 höggum. II.
Ólafur Skúlason G.R. 173 högg
um; III. Gunnlaugur Ragnars-
son G.R. 179 högg.
I. flokkur.
Brynjar Vilmundarson G.S.
171 högg. Högni Gunnlaugs-
son G.S. 178 högg. Sveinn
Gíslason G.R 186 högg.
II. flokkur.
Björgvin Hólm G.K. 188 högg.
Jóhann Hjartarson G.S. 189
högg. Steindór Gunnarsson
G.S. 192 högg.
□ DANSKA unglingalands-í
liðið í körfuknattleik er á
keppnisferðalagi út á landi. —
Fyrstu leikirnir voru háðir í
Borgarnesi við Umf. Skalla-
grím. Danirnir sigruðu í báð-
um leikjunum, en leikið var
við A- og B-lið. Munurinn var
ekki mikill 1 stig gegn B-liði
og 15 stig gegn A-liði.
Næst var haldið til Patreks-
fjarðar og leikið við Hörð. Dan
irnir sigruðu með 87:34. Þá
sigursælir
var haldið til Stykkishólms
leikið við Snæfell. Danir sigr-
uðu með enn meiri. yfirburðum
eða 122:52. í gærkvöldi var
leikið við Sauðkræklinga, en
eftki er okkur kunnugt um úr-
siit. Á morgun leikur danska
unglingalandsliðið við Akur-
eýringa, og síðan fer liðið til
R'eykjavíkur og leikur annan
landsleik við íslendinga. :Sá
leikur fer fram á sunnudag.
Þess má geta, að í danska
unglingaliðinu eru fimm piltar
19 ára, en enginn í íslenzka
liðinu. í íslenzka liðinu eru
þrír 18 ára og hinir 17 ára.
Eins og kunnugt er, áttu
unglingalandsliðin að vera skip
uð piltum 18 ára og yngri.
Beiðni kom frá Dönum, um
einn eða tveir 19 ára piltar
mættu vera með liðinu. Það
var samþykkt, en þegar til
kom voru 19 ára liðsmennirnir
fimm. —.
iFyrir helgina bitrum við mynd af tennisleikurum „veika“ kynsins. í dag birtum við myndir frá tenniskeppni karla. Það eru Ástralíu'
, dftiennirnir John Newcombe og Rod Laver t.h. Báðir heimsfrægir tennisleikarar.