Frjáls verslun - 01.02.1979, Síða 15
ordspor
Biskupinn mun hafa gefió það í skyn i
hópi presta, að hann vilji senn láta af
störfum og að prestar verði að vera við-
búnir biskupskjöri innan tíðar. Ljóst
þvkir, að sr. Ótafur Skúlason, dómpró-
fastur, nýtur verulegs stuðnings þjónandi
presta og þykir hann hafa sýnt af sér
röggsemi í stjórnunarstörfum, sem undir
dómprófastsembœttið heyra. Hefur Ólaf-
ur eflt sameiginlegt starf á vegum kirkj-
ttnnar í Reykjavíkurprófastsdæmi eftir að
hann tók við embætti og vilja margir úr
röðum þeirra 150 presta á landinu, sem
kjósa munu biskup, sjá framtakssemi sr.
Ölafs endurspeglast í störfum biskttps-
stofu. Af öðrttm, sem til greina þykja
koma í sambandi við biskttpskjör, hefur
nafn sr. Jónasar Gíslasonar borið hœst en
hann nvtur stuðnings margra hinna vngri
manna í prestastéttinni.
Enn frekari breytingar kunna að vera í
aðsigi varðandi skipan æðstu embætta
þjóðarinnar. Nánir samstarfsmenn dr.
Kristjáns Eldjárn hafa látið að því liggja
að forsetinn hyggist ekki gefa kost á sér
til endurkjörs árið 1980, þegar yfirstand-
andi kjörtímabili hans lýkur.
Utanríkisráðuneytið mun nýlega hafa
gert könnun á starfsmannafjölda í hinum
einstöku sendiráðum erlendra r'tkja hér á
landi. Eins og áður eru Rússarnir lang-
fjölmennastir eða rúmlega 70 talsins þeg-
ar allir eru taldir með, sendiráðsstarfs-
menn og fjölskyldur þeirra. Ncestir koma
Bandaríkjamenn en þar á eftir Kínverjar,
sem hafa hér á fjórða tug manna vegna
starfa sendiráðs síns. Það vekur sérstaka
athygli, að sovézka frétlastofan Novosty
hefur gefið upp, að á sínum vegum starfi
hér fjórir íslendingar. Ekki höfum við
haft spurnir af því hverjir þeir eru en
sennilega getur skattstofan upplýst, hvaða
íslenzkir ríkisborgarar þiggja lattn hjá
þessari sovézku fréttastofu.
Undirbúningur undir landsfund Sjálf-
stæðisflokksins er að hefjast. Margir
flokksmenn telja þörf á að gera ein-
hverjar breytingar á skipan forystusveit-
ar flokksins en ekki verður vart neinna
skýrt mótaðra hugmynda þar um, sem
njóti fjöldafylgis flokksmanna um land
allt. Þó er Ijóst, að Matthías Bjarnason,
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, á vax-
andi fylgi að fagna sem leiðtogaefni og er
hann æ oftar nefndur manna á meðal sem
næsti varaformaður. Að vestan berast
þær fregnir að Matthías sé þegar farinn
að vinna að kjöri sínu. Þá bendir ýmislegt
til þess að Albert Guðmundsson hugsi sér
til hreyfings og telji ekki fráleitt að gefa
kost á sér í formannskjör, ef vart verður
ákveðinna vísbendinga um að hann njóti
til þess almenns stuðnings.
Bifreiðaumboðið P. Stefánsson mun
fljótlega hefja innflutning á japönskum
bílum, sem Egill Vilhjálmsson hefur haft
umboð fyrir til þessa. Er þarna um að
rœða bíla frá Mitsubishi eins og Galant og
Lancia.
15
L