Frjáls verslun - 01.02.1979, Blaðsíða 25
„Islendingar
eru með
algjöra
bíladellu”
— segir Guðfinnur
Þeir eru al mörgum stærðum og gerðum fararskjótamlr hjá
Guðlinni.
„Það seljast allir snyrtilegir bílar“, sagði Guðfinn-
ur Halldórsson hjá Bílasölu Guðfinns, þegar hann
var inntur eftir því hvaða bílar hreyfðust helst á
markaðnum.
,,Það er mikil sala í jeppum, þá sérstaklega Range
Rover. Litlir amerískir bílar, sjálfskiptir með vökva-
stýri, seljast mjög vel og sama má segja um Volvo.
Toyota og Cortina eru alltaf góðar í sölu.
í heild má segja að sala sé mest í bílum í verð-
flokknum 15 hundruð þúsund til 2 milljónir og svo
einnig á bilinu 4-5 milljónir sem þá eru nýlegir
amerískir bílar eða Volvo“.
Ekki kannaðist Guöfinnur við miklar árstíðabundn-
ar sveiflur en sagði að salan væru ótrúlega jöfn allt
árið. ,,Þó er alltaf meiri sala á vorin og sumrin en á
öðrum tímum ársins1', sagði Guöfinnur. „Verðið
rokkar lítið eftir árstímum og segja má að verðbólgan
sjái um hækkanirnar og svo gengissigiö, eöa öllu
heldur gengishrunið."
„Hagnaðurinn af bílasölu er alltaf minnkandi vegna
þess að kostnaðurinn viö bílasöluna er orðinn svo
mikill. Til dæmis er bara símakostnaðurinn um 300
þúsund á mánuði. Allt annað svo sem húsaleiga hefur
og margfaldast í veröi", sagði Guðfinnur.
Hyggjast koma á fót skoðunarstöð
„Við verðum lítiö varir við pretti og svik í sambandi
við notaða bíla, en ráðlegast er fyrir kaupendur að
láta skoða viðkomandi bíl hjá viðurkenndri skoð-
unarstöð áður en gengið er frá kaupunum. Þannig
fæst hlutlaust og gott mat fyrir kaupanda og ekkert
ætti að koma honum á óvart.
Við verðum aö koma upp slíku kerfi og krefjast þess
af seljanda bíls að hann skili skýrslu um bílinn frá slíkri
stöð, þá ættum við aó geta selt með góðri samvisku",
sagði Guðfinnur. „Þess má geta að við erum að vinna
aö því að koma upp slíkri skoðunarstöö þar sem selj-
endur geta látið skoða bíla sína gegn sanngjörnu
verði".
Guðfinnur sagði að það væri ekki stór hópur
manna sem stundaði bílabrask. „En Islendingar eru
með algjöra bíladellu og skipta sem betur fer oft um
bíla", sagði hann að lokum.
25