Frjáls verslun - 01.02.1979, Blaðsíða 30
öll olíufélög gera nú tilraunir með nýjar tegundir orkugjafa, svo sem
jjetta raforkuver, sem notar jarðvarma.
unnu þau olíu og greiddu fyrir
framleiðsluna, en nú taka þau að
sér verkefni. Stóru olíufélögin,
„systurnar sjö“, Exxon, Texaco,
Mobil, Shell, Gulf, Standard Oil of
California og British Petroleum,
telja sig eiga miklu hlutverki að
gegna á þessu sviði í framtíðinni,
en það sama má segja um smærri
olíufélög, sem urðu á undan þeim
stóru að hefja þessi viðskipti.
Samtímis þessu hefur afstaða
olíuframleiðsluríkja til olíufélaga
breyst og þjóóerniskennd ekki
eins ráðandi í samskiptum þeirra
við olíufélögin. Forstjóri Exxon,
Clifford Garvin, bendir á að þegar
Alsír rak Frakka á dyr fyrir nokkr-
um árum, var þess vandlega gætt
að hagga í engu aðstöðu olíufé-
laganna. Og þrátt fyrir háværa
andúð á vestrænum ríkjum í Libyu
eru olíufélögin þar aftur velkomnir
gestir.
Missætti þjóða hættulegt
í olíumálum
Erfiðasta hættan fyrirolíufélögin
er sú, að lenda á milli stafs og
hurðar í átökum þjóða á milli.
Hugsanlegt er að olíufélag starfi
bæði fyrir olíuframleiðsluríki og
olíuinnflutningsríki, sem síöan
verða ósátt. Melvin Conant, sem
rekur ráðgjafaskrifstofu í olíumál-
um í Washington, segist óttast
innflutningsríkin sérstaklega.
Þegar þau skorti olíu, sé ekki að
vita til hvaða ráða þau grípi.
Hvað sem ööru líður virðist Ijóst
að afskipti ríkisvaldsins af olíu-
málum eigi eftir að vaxa um allan
heim. Flestir stjórnendur olíufé-
laga, hvort sem þau eru vestræn
eða ekki, vildu helst að markaður-
inn fengi að ráða olíuverði, en það
verður vafalaust ekki nema að litlu
leyti. Þá telja þeir nauösynlegt að
ríkisvaldið skeri úr um deilumál
sem rísa, er ákveða skal hvort sé
meira virði að framleiða olíu og
orku, eða að vernda umhverfið.
Yfirleitt er talið að starfsemi
olíufélaganna stóru eigi eftir aö
breyta um eðli. Þau muni í sívax-
andi mæli snúa sér aö tæknilegri
hlið olíuvinnslunnar, í stað þess aö
eyða fé sínu í að leigja land og
bora sjálf eftir olíu.
Breytt notkun á olíu
Þá verður notkun á olíu með
öðrum hætti í framtíðinni en nú er.
Eftir því sem notkun kola, kjarn-
orku og annarra orkugjafa verður
meiri, beinist notkun á olíu að
samgöngum og efnavinnslu. En
jafnvel olíuþörf til samgangna
verður ekki eins mikil og nú. Sam-
göngur hafa notað um helming
allrar olíu, sem notuð er í Banda-
ríkjunum og um 25% allrar orku,
sem þar er framleidd. En fyrir
þremur árum hætti notkunin að
aukast í samgöngum.
Enginn veit með hvaða hætti
olíuöldinni lýkur, né með vissu
hvenær henni lýkur, en svo mikið
er víst, að á meðan hún stóð hafa
framfarir orðið meiri meðal
manna, en á nokkru öðru tímabili,
sem okkur er kunnugt um.
^>,11111111II111111111111111111111.....11111111111
• •
TOLVUÞJONU STA
mílvei
Leitið nánari upplýsinga,
VATNAGARÐAR 6
Sími 85672
Pósthólf 738 Reykjavík
.............. irm rm 111 rri n 1111111111 n i iti^
30