Frjáls verslun - 01.02.1979, Side 13
- 'j ji ‘ (?;■;
Hádegi í Grindavík.
Benzinn og BMW-inn heima á hlaði.
Fyrirgreiðsla við hús-
byggjendur
En hver er staöa ungs fólks, sem
vill kaupa gamalt hús eða byggja
nýtt í bæjarfélagi eins og Grinda-
vík? Hvaða fyrirgreiðslu má það
vænta hjá peningastofnun bæjar-
ins umfram það sem hið opinbera
lánakerfi veitir til þessara hluta?
Þetta er mjög mismunandi eftir
áhvílandi lánum á viökomandi eign
og eins eftir getu einstaklingsins.
Hafsteinn útibússtjóri sagði að al-
mennt gætu menn reiknað með að
fá 500 þúsund króna vaxtaaukalán
til þriggja eða fjögurra ára að
minnsta kosti. Sé um nýbyggingar
að ræða kemur skuldabréfalán
upp á 500 þúsund til viðbótar með
26% vöxtum til fimm ára.
Unga fólkið kyrrt
heima
Hallgrímur Bogason er ungur
Grindvíkingur, aðstoðarmaður
Hafsteins íLandsbankanum. Hann
sagði að mikil gróska hefði verið í
byggingarstarfsemi að undan-
förnu bæði vegna aðstreymis fólks
úr öðrum byggöarlögum og eins
héldi unga fólkið tryggö við æsku-
stöðvarnar og byggði sér bú í
Grindavík. Atvinnutækifæri eru
bundin sjávarútvegi og bygging-
ariðnaði en smáiðnaður hefur ekki
náð fótfestu enn sem komið er í
bænum ef frá er talin margs konar
þjónusta við bátaflotann.
Grindvíkingar eiga oft leið til
Reykjavíkur og kaupa þar ýmsa
þjónustu í verzlunum. Eftir að
sýslumörkum var breytt hafa sam-
skipti við bæjarfógetaskrifstofurn-
ar í Keflavík leitt til aukinna við-
skipta við verzlanir þar í bæ, en
almennt hafa verzlanir átt erfitt
uppdráttar í Grindavík. Matvöru-
verzlun fer fram hjá útibúi Kaup-
félags Suðurnesja og í Bragakjöri.
í Þórkötlustaðahverfi er einnig
verzlun, sem hraðfrystihúsið þar
rekur. Bláfell verzlar meö ýmsar
vörur til sjósóknar og verkfæri.
Bára hefur margs konar gjafavörur
á boðstólum. Víkurnesti selur
ferðavörur, sælgæti, benzín og
olíur auk Ijósmyndavara. Það rek-
ur einnig bókaverzlun.
„Fiskur undir steini"
Og þá vikum við að þessum við-
kvæma bletti á mannlífinu í
Grindavík, menningarstarfsemi og
félagslífi. Þessi þáttur í fari Grind-
víkinga olli umræðum á landsvísu
eftir að sjónvarpið sýndi þá um-
deildu kvikmynd „Fiskur undir
steini" svo sem frægt er orðið.
Ekki vilja Grindvíkingar meina
að þeir þurfi margt að sækja á
þessu sviöi til nágrannabyggðar-
laga sinna. Festi er eitt af þessum
glæsilegu félagsheimilum og þar
er stunduð margháttuð starfsemi.
Lionsklúbbur er starfandi, Kiwan-
isklúbbur og kvenfélag. Alls konar
íþróttaiðkun er í hávegum höfð
bæði af yngri og eldri aldursflokk-
um. Leikfélag staðarins var að
æfa „Skugga Svein“ og hefur
yfirleitt eitt eöa tvö leikrit á verk-
efnaskrá sinni árlega. Unghjóna-
klúbbur og annar fyrir „eldri hjón“
annast skemmtanahald í félags-
heimilinu t.d. áramótadansleiki.
Þorrablót eru haldin á vegum ým-
issa félagasamtaka og svo eru
svokölluð Grindavíkurböll haldin
öðru hverju yfir veturinn, aðallega
sótt af eldra fólki. Það hefur orðið
áberandi breyting á skemmtana-
haldi í félagsheimilinu að undan-
förnu. Nú fer miklu minna fyrir
unglingadansleikjum þar en fyrir
fáeinum árum, því að aðrir
skemmtistaðir „hafa komizt í
tízku“ og óvíst hvenær röðin kem-
ur aftur að Grindavík í því efni.
„Utanbæjarmenn"
á hverju strái
íbúar Grindavíkurbæjar eru nú á
19. hundrað. Að sögn þeirra Haf-
steins og Hallgríms hafa miklar
breytingar orðið á hópum síðustu
árin vegna mikils aðflutnings fólks.
Þó bæjarfélagið sé í sjálfu sér ekki
stórt er fjarri lagi að allir þekki alla.
Eins og Hafsteinn sagði er það al-
gengt viðkvæði hjá Grindvíking-
um, þegar þeir eru spurðir um ná-
granna sína: „Þetta eru utanbæj-
armenn, ég þekki þá því miður
ekki.“
61