Frjáls verslun - 01.08.1985, Qupperneq 28
ár. Þaö er alveg Ijóst aö hér hef-
ur vantað gistirými og þrátt fyrir
lélegt sumar vorum viö hér meö
fleiri gistinætur en í fyrrasumar,
þó sjálf nýtingin hafi veriö lélegri.
Skýringin á þvi er að viö tókum
12 ný herbergi i notkun, niu
tveggja manna, tvö eins manns
og eina svitu. Þaö er samt
spurning hvaö þessi fyrirhugaöa
aukning leiðir af sér. Þaö má vel
vera aö þetta veröi ágætt yfir
sumarið, en hvaö meö hina mán-
uöina?
Viö erum bjartsýnir hér á Hótel
KEA, annars heföi ekki veriö
ráöist i þessa stækkun. Hóteliö
verður stækkaö úr 28 herbergj-
um í 51 og viö þaö eykst fram-
boðið úr 55 rúmum i 92, þegar
hótelið verður fullbúiö næsta
vor.
Veturnir hafa alltaf veriö góöir
hjá okkur og þegar þaö er haft í
huga aö lítið hefur veriö auglýst
upp hvaö i boöi er, þurfum viö
sennilega engu aö kvíöa. Skiln-
ingur ráöamanna hér i bæ er aö
aukast. Augu manna fyrir mögu-
leikunum eru aö opnast og ef
rétt verður haldiö á málum, er
ótvirætt hægt aö gera hér góöa
hluti.
Guðmundur Sigurðsson
verslunarmaður sem
hyggst byggja Hótel
Goðafoss
— Hótel Goöafoss eöa rétt-
ara sagt áform um aö byggja
þaö, standa nú á krossgötum.
Upphaflega var ráö fyrir þvi gert
aö byggð yröu 32 tveggja manna
herbergi en nú bendir allt til þess
aö hóteliö veröi byggt á öörum
staö og herbergin veröi um 50
talsins með gistingu fyrir 100
manns. Undirbúningur að þess-
ari hótelbyggingu er búinn aö
eiga sér langan aödraganda en
ég stefni á mjög stuttan bygg-
ingartíma. Framkvæmdir eiga aö
hefjast næsta vor og hótelið
veröur væntanlega fullbyggt á
15 til 18 mánuöum. Þetta verður
mjög vel búiö hótel enda er ég
þeirrar skoðunar aö bestu hótel-
in fyllist fyrst en þau lakari taki
viö afganginum.
Ég er ekki hræddur um aö ég
sé aö færast of mikið i fang. Ég
hef skoðað þessi mál náiö og þó
sumarið I sumar hafi verið botn-
sumar þá dregur þaö ekki úr mér
kjarkinn. Þetta er atvinnugrein
sem á mikla framtiö fyrir sér og
þegar hér veröa risin hótel á al-
þjóölegan mælikvaröa, opnast
hér ýmsir möguleikar sem ekki
eru fyrir hendi i dag. Þar á ég viö
ráðstefnuhald og ýmislegt ann-
aö. Ég minni á í þessu sambandi
máltækið „vegir skapa vegfar-
endur" og þaö held ég aö verði
raunin þegar Hótel Goðafoss
verður risiö.
Ég get ekki kvartaö yfir bæjar-
yfirvöldum. Ég hef fengiö alla þá
fyrirgreiðslu sem ég hef beöiö
um og bæjaryfirvöld hafa veitt
mér mikinn stuöning. Þaö er vilji
fyrir því aö byggja Akureyri upp
sem feröamannabæ og í þvi
sambandi má nefna aö nú þegar
Iþróttahöllin er risin, mun hug-
myndin vera sú aö snúa sér aö
skiðasvæðinu i Hlíðarfjalli.
Arnfinnur Arnfinnsson
hótelstjóri á Hótel
Varðborg
— Ég held aö Reykvíkingar
ættu aö hætta skrifum um hótel-
skort á Akureyri og lita í eigin
barm. Þaö er Reykjavík sem
stoppar feröamannastraum frá
útlöndum vegna skorts á hótel-
rými. Tengiflug frá Keflavikur-
flugvelli til Akureyrar er því þrýnt
og gæti bætt mikið.
Viö á Varöborg erum með 26
herbergi meö samtals 54 rúm-
um. Nýtingin hefur veriö sæmi-
leg þó þaö þýöi auðvitaö ekkert
aö nota sumariö i sumar sem
viömiöun. Ég vil þó nefna aö júlí
var með afbrigðum lélegur og ég
þekki ekki annað eins og þó hef
ég starfað viö þetta i 20 ár. Nýt-
ingin i júli var um 35-40 prósent.
Framboðið á hótelrými hér á
Akureyri er nægilegt aö mínu viti
en annars virðist sem svo aö
hótel séu orðin hér aukaatriöi.
Nei, ég á ekki viö gistiheimilin,
þvi þau hafa engin áhrif til eöa
frá. Þaö sem ég á viö er aö ýmis
félagasamtök á Suðurlandi, þar
á meðal verkalýðsfélög eiga hér
á milli 30 og 40 ibúðir sem þau
leigja út til félagsmanna. Þetta
eru okkar gömlu viöskiptavinir
og ég sé ekki annað en þaö
stefni allt i aö breyta Akureyri i
alls herjar orlofsbúöir fyrir Sunn-
lendinga.
FRAMLEIÐUM
Auglýsingaskilti úr plasti.
Plast í mörgum litum og þykktum.
Plast undir skrifborðsstóla.
Sérsmíðum alls konar plasthluti.
Sjáum um viðgerðir og viðhald á
Ijósaskiltum.
Tvöfalt plast í sólskýli og
gróðurhús.