Frjáls verslun - 01.02.1990, Blaðsíða 20
FORSIÐUGREIN
Jan Carlzon forstjóri SAS í hópi helstu samstarfsmanna sinna í yfirstjórn
fyrirtækisins. Auk hans eru viðmælendur Frjálsrar verslunar úr þessum
hópi þeir Helge Lindberg (fjórði frá vinstri) og Lars Bergval (annar frá
vinstri).
séu svo smáir að þeir geti ekki haft
skaðvænleg áhrif á flugréttindi við-
komandi félaga. Það má aldrei koma
upp vafi um raunverulegt þjóðerni
þeirra flugfélaga sem ganga til sam-
starfs sem felur í sér gagnkvæma
eignaraðild eða eignaraðild annars í
hinu. í ljósi þessa get ég svarað þess-
ari fræðilegu spurningu ykkar þannig
að það kæmi ekki til greina að SAS
hefði áhuga á að eignast meirihluta í
Flugleiðum eða á því að yfirtaka
rekstur fyrirtækisins og sameina
hann SAS.
Það er hins vegar fullkomlega rök-
rétt að flugfélögin á Norðurlöndum
hafi samstarf sín á milli. Með tak-
mörkuðum heimamörkuðum í útjaðri
Evrópu sé ég ekki hvers vegna við
skyldum ekki taka höndum saman um
að auka hlut okkar allra á alþjóðlegum
flugmarkaði og ná þeim farþegafjölda
sem þarf til að halda uppi samkeppnis-
hæfu flugi sem teygir anga sína um
allan hnöttinn. Það er eina leiðin sem
ég sé til þess að Norðurlandaflugfé-
lögin eigi möguleika á að keppa á
árangursríkan hátt við vel rekin og
umsvifamikil flugfélög í Bandaríkjun-
um og Asiu.
Norðurlandaþjóðirnar eiga miklu
fremur að vera útflytjendur en inn-
flytjendur í fluginu. Það er engin
ástæða til að gefa neitt eftir í því efni. “
Frjálsri verslun lék forvitni
á að kanna viðhorf forstjóra
Flugleiða til samstarfs við er-
lend flugfélög í framtíðinni,
m.a. hvort til greina kæmi að
selja útlendingum hlutabréf í
Flugleiðum. Sigurður Helga-
son forstjóri félagsins var fyrst
spurður hvort hann teldi koma
til greina að selja erlendum
flugfélögum, sem flogið hafa til
íslands, hlutabréf í Flugleið-
um, t.d. SAS, Lufthansa eða
British Airways.
„Ég tel fyllilega koma til greina að
tengja Flugleiðir erlendum flugfé-
lögum með þessum hætti. Þar yrði
þó um að ræða minnihluta hluta-
bréfa og slfk sala væri því meira
táknræn yfirlýsing um samstarf-
svilja. Flugfélög um allan heim leita
nú nánara samstarfs. Þetta á eink-
um og sér í lagi við um Evrópuflug-
félög. Slík kaup þyrfti að undirbúa
vel. Flugleiðir eru lítið flugfélag á
alþjóðlegan mælikvarða og ekki
sama hverjum eða með hvaða hætti
félagið tengist. Fyrst og fremst yrði
gengið úr skugga um að íslenskir
hagsmunir og íslenskar samgöngur
yrðu tryggðar í slíku samstarfi."
Kemur til greina samstarf við er-
lend flugfélög sem fæli í sér gagn-
kvæm hlutabréfakaup?
„Svarið er hið sama og við fyrri
spurningu."
Kemur til greina að selja til ann-
arra erlendra aðila en flugfélaga?
„Flugleiðir eru almenningshluta-
félag og öllum íslendingum er frjálst
að versla með hlutabréf í félaginu.
Erlendum aðilum er lögum sam-
kvæmt frjálst að eiga allt að 331/3%
hlutafjár í íslenskum flugfélögum.
Nú þegar eiga nokkrir útlendingar
hlut í Flugleiðum þótt reyndar sé
það í mjög litlum máeli.“
Má vænta þess að á næstunni
geri Flugleiðir stóra samstarfs-
samninga við erlend flugfélög til að
20