Frjáls verslun - 01.02.1990, Síða 69
anlandsdeild Ferðaskrifstofunnar Úr-
vals sem þá var verið að setja á lagg-
irnar. Þar starfaði hann í nokkur ár en
hætti síðan um tíma á meðan hann
vann hjá Vinnuveitendasambandi ís-
lands og síðar sem framkvæmdastjóri
Sambands Fiskvinnslustöðva sem þá
var innan vébanda Vinnuveitenda-
sambandsins.
„Ég er þeirrar skoðunar að maður
eigi að taka þeim tækifærum sem
bjóðast. Það eykur víðsýni og byggir
upp reynslu," segir Knútur en ítrekar
þó að störf að ferðaþjónustu bjóði upp
á meiri fjölbreytni en önnur störf.
„Þar er jafnan mikið að gerast og and-
rúmsloftið bæði líflegt og spennandi. “
Hann bætir við að ekki hafi liðið á
löngu þar til hann var genginn til liðs
við Ferðaskrifstofuna Úrval aftur. í
millitíðinni staldraði hann um þriggja
mánaða skeið við í söludeild Flug-
leiða.
Árið 1987 tók Knútur við starfi
framkvæmdastjóra Úrvals og gegndi
því starfi þar til ferðaskrifstofurnar
Úrval og Útsýn voru sameinaðar í lok
síðasta árs. Þá tók hann við núverandi
starfi sem framkvæmdastjóri Úrvals-
Útsýnar.
Þegar hann er beðinn um að skil-
greina starfssvið framkvæmdastjóra
vefst honum í fyrstu tunga um tönn en
segir síðan:
„Það er ákaflega erfitt að skilgreina
starf framkvæmdastjóra svo vel sé.
Síðstu mánuðir eru varla marktækir
hvað það varðar. Stór hluti þess tíma
hefur farið í ýmiss konar áætlunar-
gerð sem óneitanlega fylgir því þegar
tvö fyrirtæki eru sameinuð. Á þessu
tímabili hef ég setið marga fundi þar
sem farið hefur verið yfir stöðu mála;
fortíðin skoðuð og gerðar áætlanir um
framtíðina. Þá hefur drjúgur tími farið
í ýmis stór og smá mál sem fylgja
slíkri sameiningu," segir hann.
- Er starf framkvæmdastjóra eril-
samt starf?
,Já, ég get ekki neitað því,“ segir
hann. „Ég mæti í vinnuna klukkan
átta á morgnanna og er sjaldnast
kominn heim fyrr en á bilinu 6 - 8 á
kvöldin. Starf framkvæmdastjóra er
auðvitað stjómunarstarf en þó koma
hin ýmsu mál inn á borð til mín. Ég
eyði miklum tíma í símanum og e.t.v.
er það sá þáttur sem er hvað tíma-
Hlaupagikkurinn Knútur Óskarsson á
þoninu sem hóf göngu sína árið 1984.
frekastur. Það virðist nefnilega vera
lenska að fólk sem á ólík erindi við
Úrval-Útsýn virðist allfaf vilja tala
beint við framkvæmdastjóra í stað
þess að bera erindið upp við aðra
starfsmenn sem oftar en ekki geta
leyst málið.“
- Það getur þá stundum verið erfitt
að ná í þig?
,Já, það getur verið erfitt þegar
mikið er um fundi og síminn þagnar
ekki,“ segir hann og hristir höfuðið.
„En ég reyni samt að sinna þeim
skilaboðum sem koma inn á borð til
mín og þekki það sjálfur hversu pirr-
andi það er að ná ekki sambandi við þá
aðila sem ég þarf að ná í.“
Knútur neitað því aðspurður að
hann sé þessi dæmigerði, einangraði
m.a. heiðurinn af Reykjavíkurmara-
yfirmaður sem lokar sig af inni á skrif-
stofu án tengsla við hinn almenna
starfsmann.
„Ég vona að minnsta kosti að
starfsfólkið hafi ekki þá mynd af
mér,“ segir hann brosandi. „Ég er
svo heppinn að með mér vinnur mjög
hæft og gott starfsfólk og sameigin-
lega reynum við að vinna í þágu fyrir-
tækisins. Sjálfur er ég aðeins einn
hlekkur í þeirri keðju.“
Við tölum um starfið og erilsaman
vinnudag framkvæmdastjórans
Knúts Óskarssonar og það fer ekki á
milli mála að hann hefur mikinn áhuga
á starfi sínu. En lífið er ekki bara salt-
fiskur. Skyldi önnum kafinn athafna-
maður nokkum tímann hafa tíma til
þess að sinna áhugamálum sínum og
69