Fregnir - 01.12.1991, Side 1

Fregnir - 01.12.1991, Side 1
-1- KERFISBUNDIN EFNISORÐASKRÁ (thesaurus) Siðastliðið sumar veitti Menntamálaráðuneytið undirrituðum styrk til þess að hefja samantekt á kerfisbundlnni efnisorðaskrá. Hér er um almenna efnisorðaskrá að ræða og tekur hún að hluta til mið af efnisorðum sem þegar eru í notkun i nokkrum framhaldsskólum og var orðanotkun þeirra samræmd. Skráin hentar þó jafnframt almennum söfnum, s.s. almenningsbókasöfnum og bókasöfnum í grunnskólum. Við gerð efnisorðaskrárinnar er í megindráttum fylgt reglum alþjóðlegs staðals ISO 2788/1986 sem gefinn var út nú um mánaðamótin (nóv./des. 1991) hjá Staðlaráði íslands se ÍST 90 undir titlinum: Heimildaskráning - leiðbeiningar um gerð og þróun kerfisbundinna efnisorðaskráa á einu tungumáli. Efnisorðaskráin skiptist i eftirfarandi tvo hluta: a) Stafrófsröðuð framsetning. Þessi hluti er jafnframt meginhluti skrárinnar. 1 honum eru valorð (preferred term) og vikorð (non-preferred term) í einni stafrófsröð. Valorð eru rituð með hástöfum en vikorð með lágstöfum til aðgreiningar. Sýnd eru innbyrðis tengsl milli valorða, þ.e. víðari heiti, þrengri heiti og skyld heiti. b) Stigveldisskipt framsetning. í þessum hluta eru yfirheiti i stafrófsröð og er stigveldisskipan sýnd með inndrætti. í stigveldunum eru eingöngu valorð. Vinnsla og uppsetning efnisorðaskrárinnar byggir á bresku tölvuforriti, TINterm, sem er í eigu ílokkunarnefndar. Stefnt er að þvi að gefa skrána út á næstunni sem tilraunaútgáfu. Margrét Loftsdóttir Þórdís Þórarinsdóttir NÝIR BÓKASAFNSFRÆÐINGAR HAUSTIÐ 1991 OG LOKAVERKEFNI ÞglRRA 2 nýir bókasafns- og upplýsingafræðingar luku prófi i október 1991. Þeir eru: Jóhanna G. Aðalsteinsdóttir og Kolbrún Andrésdóttir: Skrá yflr efni um fatlaða. Auk þeirra luku tveir starfsréttindanámi Elín Guðjónsdóttir: Þarfaþing : samskrá um íslensk tímarit á mið- og skólasöfnum (ásamt Solveigu H. Gísladóttur) Hrafnhildur Heba Wilde: Flokkun bókmennta og tungumála : nýjar leiðir og endurbætur á gömlum.

x

Fregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.