Fregnir - 01.12.1991, Blaðsíða 8

Fregnir - 01.12.1991, Blaðsíða 8
-8- FRÁ FÉLAGI ALMENNINGSBÓKAVARÐA Félag almenningsbókavarða gekkst fyrir 4 tíma námskeiði um íslenskar fornbókmenntir og rit sem tengjast þeim. Námskeiðið var haldið í Gerðubergi laugardaginn 16. nóvember s.l. Þátttakendur voru 47. Fyrirlesari var Heimir Pálsson, cand. mag. Markmiðið með námskeiðinu var að skyggnast smástund inn í heim islenskra fornbókmennta og ekki síst gera okkur grein fyrir upplýsingaþörf lánþega á þessu sviði. Heimir Pálsson útbjó 11 blaðsíðna heimildaskrá (ekkl tæmandi) ásamt umsögnum um bækur og tímarit, sem fjalla um íslenskar fornbókmenntir. Gott væri að stefna að því að auka við listann. Ef einhver hefur áhuga á að gera tæmandi lista í samvinnu við Heimi eða annan fagmann á þessu sviði er félagið til viðræðu um þátttöku í því verki. Hafi einhver félagi í Bókavarðafélagi íslands áhuga á að fá þennan lista er um að gera að snúa sér til einhvers úr stjórninni, annað hvort símleiðis eða bréflega. Ritari félagsins er Sigriður Nikulásdóttir, s. 91-79122. Hún er í Borgarbókasafninu, Gerðubergi. Utanáskriftin er: Félag almenningsbókavarða, Pósthólf 305, 200 Kópavogi. Stjómin mun þá senda viðkomandi listann um hæl. Stjórn Félags almenningsbókavarða sendir öllum óskir um GLEÐILEG JÓL F. h. stjómar Anna Sigríður Einarsdóttir, formaður. ÍSLENSKUR STAÐALL UM GERÐ EFNISORÐASKRÁA Um þessar mundir er að koma út hjá Staðlaráði íslands (STRI) íslenskur staðall (IST 90) er nefnist : Heimildaskráning - leiðbeiningar um gerð og þróun kerfisbundinna efnisorðaskráa á einu tungumáli = Documentation - Guidelines for the establishment and development of monolingual thesauri. Staðallinn byggir á alþjóðlega staðlinum ISO 2788 og var hann þýddur a vegum flokkunarnefndar. Nefndina skipa: Guðrún Karlsdóttir (form.), Háskólabókasafni, Nanna Bjarnadóttir, Landsbókasafni, Sigurður Vigfússon, Borgarbókasafni og Þórdís T. Þórarinsdóttir. Bókasafni Menntaskólans við Sund. Staðallinn er fáanlegur hjá Staðlaráði íslands, Iðntæknistofnun íslands, ennfremur hjá Bóksölu stúdenta og Þjónustumiðstöð bókasafna. Með virðisaukaskatti mun hann kosta um 2.500 krónur. Flokkunamefnd vínnur nú að íslenskun staðalsins ISO 5963 : Documentation - Methods for examining documents, determining their subjects, and selecting indexing terms. Verður hann einnig gefinn út af STRI sem íslenskur staðall (IST). GK.

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.