Fregnir - 01.12.1991, Blaðsíða 9
-9-
2. NORDISK JURIDISK BIBLIOTEKSM0DE
Undirritaður fékk styrk úr utanfararsjóði BVFÍ til að taka þátt í 2.
ráðstefnu norrænna lagabókasafna, sem haldin var í Kaupmannahöfn
13.-14. júní s.l. á vegum Det Kongelige Bibliotek (KB) og bókasafns
danska þingsins (FBO). Hér með eru færðar þakkir íyrir.
Ráðstefnan var i raun námskeið um Evrópubandalagið, stofnanir
þess og upplýsingamál. Námskeiðið var þríþætt.
Fyrsti þáttur fólst í íyrirlestrum um ýmsa þætti i starfsemi EB og
þá einkum tengsl Danmerkur við bandalagið. Er það býsna
yfirgripsmikið efni, sem ekki verður gerð grein fyrir hér.
Þátttakendurnir (aðrir en þeir dönsku) kvörtuðu sín á milli um það,
hversu hratt og óskýrt flestir íyrirlesaramir töluðu, og mun það vera
umkvörtunarefni á mörgum ráðstefnum. Þetta hefur sennilega ekki
komið að sök, því þátttakendur hafa væntanlega lesið flest það sem
fyrirlesararnir höfðu fram að færa. (Gildi slíkra námskeiða liggur
ekki í því að þátttakendur heyri nýmæli frá fyrirlesurum, heldur því
að þeir kynni sér viðfangsefnin fyrir og eftir námskeið.)
Annar þáttur námskeiðsins var kynning á upplýsingaþjónustu um
EB í Danmörku. Nokkur stærstu bókasöfnin eru gagnamiðstöðvar
("ansvars biblioteker") fyrir EB-málefni. Þá rekur framkvæmdastjórn
bandalagsins upplýsingamiðstöð í Kaupmannahöfn, sem er opin
alemenningi, en fær auk þess fjölmargar fyrirspurnir símleiðis og í
pósti. (í Osló og Stokkhólmi eru útibú frá upplýsingamiðstöðinni. Þá
kom fram í fyrirlestri að til stæði að opna útibú i Helsinki nú I
haust.)
Þriðji þáttur námskeiðsins var kynning á gagnagrunnum um EB,
og skiptu þátttakendur sér á milli KB og FBO. í boði er beínn
aðgangur að 8 gagnagrunnum. Þar af eru 2 á dönsku: danska
utanríkisráðuneytið hefur komið öðrum þeirra á laggirnar, en hinn
er verk upplýsingamiðstöðvar framkvæmdastjórnarinnar í Höfn. Af
hinum 6 eru 5 á vegum EB, en 1 er starfræktur af alþjóðlegu
endurskoðunarfyrirtæki. Undirritaður var i KB, en starfsfólkinu þar
tókst misjafnlega að komast í samband vegna ónógrar kunnáttu.
Ekki má gleyma ýmsum gögnum, sem dreift var á námskeiðinu.
Þar á meðal var skrá um útgáfu á vegum EB (Oversigt over officielle
publikationer/Lene Knudsen), sem KB gaf út. Segir i formála að
ráðstefnan hafl orðið til þess að ýta útgáfunni af stað. Þá má geta rits
sem danska þingbókasafnið gaf út í vor: Folketinget, regeringen, EF :
Folketingets kontrol med regeringen i EF-beslutningsprocessen.
Það vísar í umræður í danska þinginu um þátt þess í ákvörðunum
ríkisstjórnarinnar um EB- málefni.
Viggó Gíslason.