Fregnir - 01.12.1991, Blaðsíða 7
-7-
Þátttakendur í vlnnuhópi verkefnisins eru:
Forskningsbibliotekernes EDB-kontor í Danmörku (ALBA-
kerfið), Forskningsbibliotekens ADB-kontor í Finnlandi (VTLS-
kerfið), Þjóðarbókhlöðusöfnin (áheyrnarfulltrúi),
Universitetsbiblioteket i Oslo (UBO:BOK eða TRIP kerfið) BIBSYS i
Þrándheimi (BIBSYS II kerfið), Riksbibliotektjenesten í Noregi,
Statens bibliotek- og informasjonshögskole, BRODD i Osló og
Kungliga biblioteket, LIBRIS í Svíþjóð.
Ekki hefur verið ákveðið ennþá hvernig eða hvaða kerfi verða
tengd, en trúlega verður innsetning SR-samskiptareglna gerð með
hjálp ISODE (ISODE = ISO Development Environment)
búnaðaðarins.
Vinnuhópurinn mun fylgjast náið með líkum verkefnum í
Evrópu og Ameríku. Svo sem ION verkefninu i Evrópu, LSP
verkefninu í Bandaríkjunum og þýsku verkefni um SR sem er að
hefjast, einnig z39.50 Implementors' Group (þ.e. bandaríska SR
útgáfan).
Einnig mun verða haldið sambandi við ISO, EWOS og IFOBS
(EWOS = European Workshop for Open Systems: IFOBS =
International Forum for Open Bibliographic Systems).
Verkefnið hófst 28.okt. 1991 og áætluð lok eru 1. sept. 1993.
Heildarkostnaður er áætlaður 3.367.000 norskar kr.
Reykjavík, 21.11.1991
Andrea Jóhannsdóttir
MÁLÞING UM FÉLAGSMÁLIN
í ráði er að halda málþing um félagsmái bókavarða í lok janúar á
næsta ári. Eins og flestir vita sem starfa að félagsmálum stéttarinnar
hefur oft rejmst erfitt að manna hinar ýmsu nefndir og stjórnir. Hinn
almenni bókavörður kvartar stundum yfir því að litið sé fyrir hann
gert og aðrir kvarta yfir áhugaleysi félaganna. Það er áhyggjuefni að
þátttaka ófaglærðra í nefndarstörfum virðist stöðugt minnka.
Undirbúningur málþingsins er enn á frumstigi en Félag
bókasafnsfræðinga, Bókavarðafélag íslands og aðildarfélög þess,
(Skólavarðan, Félag almenningsbókavarða og Félag bókavarða í
rannsóknarbókasöfnum), munu hvert eiga einn fulltrúa í
undirbúningsnefnd. Við eigum von á líflegu þingi og verða teknar til
umræðu róttækar spurningar um félagsmálin. Eiga þau að vera
óbreytt? Eigum við að leggja einhver félög niður? Þessum
spurningum og öðrum verður velt upp og vonandi svarað á
málþinginu.
Allar tillögur og huginyndir að erindum og flutningsmönnum eru
vel þegnar. Hafið samband við Rósu Jónsdóttur í síma 622750.
Stjóm Félags bókasafnsfræðinga.