Fregnir - 01.12.1991, Blaðsíða 4
-4-
NORDINFO RÁÐSTEFNAÁ HANK0, NORECI, 12.15. ÁGÚST
1991
Dagana 12.-15. ágúst var haldin í Noregi ráðstefna/námstefna
undir heltinu: NORDINFO-PROSJEKTET KLASSIFIKASJON OG
INDEKSERING. Fór hún fram á eynni Hanko á Oslóarfirði og var
efnið, eins og nafnið ber með sér, einkum flokkun og lyklun. Fjöldi
þátttakenda takmarkaðist við 4-5 frá hverju landi. Af Islands hálfu
sóttu ráðstefnuna fulltrúi Þjónustumiðstöðvar bókasafna, Dögg
Hringsdóttir, formaður flokkunarnefndar, Guðrún Karlsdóttir,
Háskólabókasafni, formaður skráningarnefndar, Hildur G.
Eyþórsdóttir, Landsbókasafni, og Sigbergur Friðriksson,
Háskólabókasafni.
Forsaga þessarar ráðstefnu er í stuttu máli sú, að um nokkurt
skeið hefur verið unnið að könnun umfangs og aðferða við
efnisgreiningu á Norðurlöndum. í þessu skyni voru sendir út
spumingalistar til þjóðbókasafna og nokkurra annarra valinna safna í
hverju landi auk þjónustumiðstöðva. Spurt var meðal annars um
flokkunarkerfi, notkun efnisorðaskráa, ennfremur um
leitarmöguleika í tölvustýrðum gagnagrunnum og ýmislegt fleira.
Norski bókavarða- og upplýsingafræðiháskólinn (Statens bibliotek-og
informasjonshogskole) sá um framkvæmdina og gaf síðan út í júní
síðastliðnum allþykka skýrslu er nefnist: BRODD RAPPORT :
klassifikasjon og indeksering i Norden, Fase 1 : kartlegging av
praksis.
Skýrslan dregur fram margvíslegt samræmi og ósamræmi milli
bæði safna, safnategunda og landa og var um margt af þvi vitað áður,
t.d. mismunandi flokkunarkerfi, mismunandi afbrigði sama
flokkunarkerfis, mismunandi áherslur og hefð í lyklun eftir löndum
og stofnunum. í könnuninni er þetta nú sett fram í töflum og
heildarniðurstöður svo kynntar í fáum orðum og tek ég þær hér
orðrétt upp:
"Undersokelsen viser at klassifikasjonspraksis ikke er ens
hverken innen ett land eller innen en type bibliotek.
Undersokelsen viser ogsá at det heller ikke er ens praksis
innen ett og samme bibliotek nár biblioteket er av en viss
storrelse.
Et annet resultat af undersokelsen er at bruken av kontrollerte
emneord ikke er utbredt. Blant de vokabularer som brukes finner
man báde internasjonale, sásom MESH og LCSH, og helt lokalt
utviklede sá som Topografisk katalog ved Universitetet i
Trondhjem."
Fýrsta dag ráðstefnunnar kynnti Liv Holm frá Norska bókavarða-
og upplýsingafræðiháskólanum efni skýrslunnar og spunnust af þvi
nokkrar umræður.