Alþýðublaðið - 27.09.1969, Blaðsíða 7
Alþýðu'blaðið 27. september 1969 7
□ Áður en |f jöldaframleiðsla er hafin á nýjum gerðum
bíla, hafa venjulega verið gerðar tilraunir með há í
nokkur ár, því að núorðið er erfitt að ígera bílstjórum
til hæfis. Nýjar gerðir ná vmsældum því aðeins, að
þær fullnægi vissum kröfum um öryggi, þægindi og
tæknileg gæði. —iÞegar framleiða á nýjan bíl, eru til-
raunir eins nauðsynlegar og athuganir á markaðnum,
fyrirkomulagsteikningar, útlitsteikningar og verðút-
reikningar. j
Þessar tilraunir fara ekki fram
á alfaravegum. Tilraunirnar, sem
nefndar eru „þriðju gráðu tilraumr"
fara fram á sérstökum tilraunabraut
um, sem bílaverksmiðjurnar hafa lát
ið koma upp. Þar fara fram ails
konar mælingar, þar eru sérstakai
brautir, sem lagðar eru stórum
steinum, aðrar, sem liggja undir
vatni, holóttir vegir, brattar brekK-
ur, vatnsgryfjur, vegir með hallandi
beygjum og hraðbrautir með beygj.
um til að reyna hallaþol bílanna a
miklum hraða.
Adam Opel Company var fyrsta
bílaverksmiðjan, sem kom sér upp
tilraunabrautum í Russelsheim árið
1951, og fyrir nokkrum árum var
opnuð ný braut við Dudenhoten,
þrjátíu og fimm kílómetra frá Rííss
Þriðju gráðu tilraunir.
Hvað vinnur hann v?). í 30
gráðu halla?
elsheim. Þessi nýja braut fullnægir
kröfunum eins og þær eru í dag og
kemur einnig til með að gera það í
framtíðinni. Svæðið er skóglent og
um 8700 ferkílómetrar að flatar-
máli, en samanlögð lengd vega er
um 35 km. Nýja tilraunasvæðið er
um það bil 20 sinnum stærra en það
gamla, mjög fjölbreytt, en þar er að
finna allar þær aðstæður, sem finn
ast á vegum, alls staðar í heimin.
um. — eð því að nota eigin til
raunabrautir, hefur fyrirtækinu tek
izt að stytta tilraunatímann um níu
tíundu hluta.
Ilvernig lætur bíllinn að Bílar reyndir í vatnsgrytju.
stjórn?
Reynslutæki með stjórnborði