Alþýðublaðið - 27.09.1969, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 27.09.1969, Blaðsíða 13
Ritstjóri: Örn Eiðsson EUSEBIO ÆTLADI AÐ HÆTTA HJÁ BEHFICA Krafðist 23 millióna. en fékk 12 fyrir samning □ Litlu munaði, að hinn heimsfrægi Eusibio hætti að leika fyrir Benfica, þegar samningur hans hjá félag- inu rann út í lok júli síðastliðins, og stjórn Benfica vildi ekki ganga að kröfum hans við endurnýjun samningsins. Ráðgerður var nýr samningur til þriggja ára, og Eusibio krafðist upphæðar, sem svarar 23^2 millj- ón íslenzkra króna fyrir að skrifa undir. Jafnframt vildi hann fá 30 iþúsund í mánaðarlaun og 10% af aðgangseyri vináttuleikja erlendis. Ennfremur krafð ist hann 31 þúsund króna, ef Benfica sigraði í port- úgölsku meistarakeppninni eða Evrópumeistara- keppninni, og 250 þúsund króna fyrir sigur í port- úgölsku bikarkeppninni. Þessar aukagreiðslur áttu þó að vera bundnar því skilyrði, að hann yrði marka • hæstur í keppnunum. Þegar samningaumleitanirn- ar rak í strand um miðjan júlí, réði Eusebio til sín einn af færustu fjármála-lögfræð- ingum Lissabon, Silva Resende, til að freista þess að fá Ben- fica til að gera honum eitt- hvert tilboð. Það skeði loks 23. júlí, og þá reyndu Benfica- menn að kasta ryki í augu þeirra með því að byggja töl- ur sínar á 6 ára samningi. Þeir buðust til að leigja honum í- búðablokk, sem gefur af sér yfir 700 þús. krónur árlega í leigugjöld, og að borga honum 30 þúsund krónur í mánaðar- laun, auk áframhaldandi við- ræðna um aukalaun fyrir unn- ar keppnir — sem var æði langt frá því sem Eusebio ósk- aði eftir. Þrír dagar liðu, og þá settu samningsaðilar fram „lokatil- boð“ sín. Benfica bauð nú upp- hæð sem svarar 8V2 milljón íslenzkra króna fyrir samning- inn, 27 þúsund í mánaðarlaun, og 2—ö% af aðgangseyri vin- áttuleikja erlendis, eftir mikil- vægi leiksins sem um var að ræða í hvert sinn. Eusebio krafðist 15 milljóna fyrir samn- inginn, 27 þúsunda í mánaðar- laun, 10% af aðgangseyri vin- áttuleikja erlendis, og enn- fremur setti hann nú fram kröfu um að Benfica greiddi alla hans skatta til ríkisins fyrir hann. Hann hafði látið nokkuð undan síga: hann lét niður falla kröfur sínar um aukaþóknun fyrir unnar keppnir. Þegar hér var komið sögu, var aðeins einn og hálfur sól- arhringur þar til samningur hans við Benfica rann út. — Þennan tíma notuðu báðir að- ilar til að setja saman ný til- boð, og rétt áður en stundin rann upp, bauðst Eusebio til að skrifa undir fyrir 14 milljónir króna, 'en Benfica bauð aðeins 11 milljónir. Bilið hafði mjókk- að mikið í samkomulagsátt. Meðan Benfiea fór í keppnis ferðalag til Mozámbique, heima lands Eusebios, hafði enskur blaðamaður þetta eftir Eusebio, sem varð eftir heima í Lissa- bon: : „Mér þykir mjög fyrir þessu. Það má ekki líta svo á, að ég sé fégráðugur um of; það vérð ur að skilja aðstöðu mína.“ „I janúar næsta ár verð ég 28 ára camall. og því ek]d lengur S bezta aldri sem knatt- gpyrnumaður. Ég verð að hugsa Um framtíð fjölskyldu minnar. Ég á konu og tvö börn og eitt á lelðinni, og auk þess ætt- ingjana heima 1 Mozambique.** .. un mm nú nægja mér einfaldlega ekki. Ég fæ laun sem svara 4.400 sterlingspund- um (925.000 ísl. kr.) á ári, sem reyndar er mikið á portúgalsk- an mælikvarða, en ekki hátt þegar miðað er við launin á Ítalíu eða Englandi.“ „Mér er þvert um geð að yf- irgefa Benfica, en ég neyðist til þess, ef ekki næst samkomu- lag. Ég hef fært liðinu — og Portúgal — stórar fórnir þessi níu ár, það má segja að ég hafi fórnað þeim lífi mínu og sál. Síðasta ár lék ég marga leiki fyrir þá, þrátt fyrir mikl- ar kvalir í hnénu, aðeins til að halda liðsandanum góðum, í hreinskilni sagt, þá finnst mér þeir hafa skammtað mér skít úr hnefa of lengi.“ Eusebio fór nú að líta í kring um sig eftir möguleikum ann- ars staðar, en stjórn Benfica hafði gert það ljóst, að þeir myndu krefjast að minnsta kosti 500 þús. sterlingspunda (yfir 100 milljóna ísl. króna) fyrir Eusebio, ef hann skipti um félag. Þetta útilokaði mest alla Evrópu og alla Suður- Ameriku frá því að krækja í stjörnuna. Frakkland, Belgía, Vestur-Þýzkaland og Skotland höfðu ekki efni á þvi, erlend- ir knattspyrnumenn eru úti- lokaðir frá ítalskri knatt- spyrnu, og Eusebio hefði ekki fengizt til að fara til Englands fyrir nokkurn mun, minnugur fyrri reynslu sinnar af ensk- um knattspyrnuheimi. Þá var . aðeins - Spánn- eftir, og eina íé- lagið þar, sem hafði fjárhags- legt bolmagn til að kaupa hann, var Real 1 Madrid. ■ Stjórn Real Madrid var hins vegar ekki yfir sig hrifin af árangri Eusebios síðasta árið, þar sem hann hafði aðeins skorað níu mörk í portúgölsku meistarakeppninni, og voru auk þess hræddir við meiðslin á hné hans. Þetta dró kjarkinn úr Eusebio, og hann gerði Ben- fica enn tilboð. Nú fór hann fram á upphæð, sem nemur rúmum 12 milljónum ísl. kr. og gagntilboð Benfica hljóðaði upp á 11 Vz milljón. Loks hyllti undir samkomulag, en Eusebio var nokkurs vísari eftir allt þetta. Ekki svo að skilja að hann hefði spennt bogann of hátt í kaupmarkaði knattspyrn- unnar, heldur var hinn alþjóð- legi markaður ekki lengur fyr- ir hendi. — gþ. VELJUM ÍSLENZKT-nf'N ISLENZKAN IÐNAÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.