Alþýðublaðið - 27.09.1969, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 27.09.1969, Qupperneq 12
12 Alþýðublaðið 27. september 1969 tm í körfubolta hefst í □ í dag hefst í Napólí á ítalíu lokakeppnin í Evrópumeistara- keppni landsliða 1969. Er þetta sama keppnin og' landslið ís- lands tók þátt í, þegar liðið lék í undankeppninni í Stokk- hólmi fyrr á þessu ári. Þátttökurétt í lokakeppninni höfðu 12 lið, og er það breyt- ing frá því sem áður var, en fram til þessa hafa þátttöku- liðin í lokakeppninni ætíð vev- ið 16. Rússar fara inn í loka- keppnina án keppni, vegna þess að þeir eru núverandi dag Evrópumeistarar, en ekki er víst að það sé mælikvarði á getu liðsins miðað við önnur þátttökulið, því skemmst er að minnast þess, að Júgóslavar sigruðu Rússa á Ólympíuleik- unum í Mexico 1968. ítalir eru gestgjafar keppninnar, og eru því sjálfkrafa þátttakendur í lokakeppninni, en aðrar þjóðir sem lið eiga í Napólí eru: Búlgaría, Tékkóslóvakía, Grikk land, Ungverjaland, ísrael, Júgóslavía, Pólland, Rúmenia, Spánn og Svíþjóð. Mikil eftirvænting ríkir um það, hvort Júgóslavar sigri Rússa aftur núna, en Rússar hafa haldið Evrópumeistara- titlinum í körfuknattleik síð- ustu tólf árin, eða síðan 1957. Júgóslavar hafa lagt geysimikla vinnu og kostnað í að bæta landslið sitt, og hafa meðal annars sent þjálfara landsliðs- ins, Ranko Seravica, til Banda- rikjanna til að ráðfæra sig við þá, sem hæst ber í körfuknatt- leiksþjálfun þar. — Barnavin afélagið Sumargjöf PoTStöðulk'GLiiu vantar að nýja dagheimilinu við Sóih'eima. Umsóíkinir sendist islk|rifstofiu Sumarigjafar, Fornhaga 8, fyrir 6. okt. n.k. Stjóm Sumargjafar. FRÁ GAGNFRÆÐA- SKÓLUM REYKJAVÍKUR Skólarnir verða settir mánudaginn 29. sept ember n.k. sem hér segir: Gagnfræðaskóli Austurbæjar: Skólasetning kl. 10. Hagaskóli Skólasetning I. bekkjar kl. 9, II., III. og IV. bekkjar kl. 10,- Lindargötuskóli: Skólasietning kl. 2. Ármúlaskóli: Skólasetning III. bekkjar: piltar kl. 9.30, stúlkur kl. 10. IV. bekkur kl. 11. Réttarheltsskóli: Skólásetning I. bekikjar kl. 14, II. III. og IV. 'beldkjar kl. 15. Vogaskóli: Skólasetning í íþróttahúsinu við Hál'ogaland kl. 14. Laugalækjarskóli: Skólasetning í Laugarás- bíóikl. 14. Gagnfræðadeildir Austurbæjarskóla, Lang- holtsskóla, Hlíðaskóla og Álftamýrarskóla: Skóiiasietning I. bekkjar kl. 9, II. bekkjar kl. 10. Gagnfræðadeildir Árbæjarskóla og Breið- holtsskóla: Skólasetning II. bekkjar kl. 3, I bekkjar kl. 4. Skólastjórar. Forstjórar í knalfspymu □ f dag kl. 14,00 vígja starfs- menn álverksmiðjunnar í Straumsvík nýjan knattspyrnu völl á -svæði verksmiðjunnar. Eftir stutta vígsluathöfn fara fram tveir knattspyrnuleikir. Fyrst leika verkstjórar í ál- verksmiðjunni gegn fram- kvæmdastjórn og deildastjór- um, en að þeim leik loknum hefst leikur úrvalsliðs ísal og liðs Umbúðamiðstöðvarinnar. □ Úrslitaleikur í a-riðli .2 flokks verður leikinn í Kópa- vogi á sunnudag og hefst ki. 2. ÍBV og Breiðablik leika. íslenzkur blaða- ntaður III Osló □ Fyrir tilstilli Ivars Eske- land hefur Blaðamannaskólinn í Noregi ákveðið að taka einn íslenzkan blaðamann til náms skólaárið 1969/70. Samtök dagblaðanna í Oslo gefa n. kr. 5.000,00 og Ludvig G. Braathen, útgerðarmaður, gefur _nr. kr. 2.500,00 í styrk, auk þess er von um að Menn- ingarmáladeild Noregs muni gefa einhverja fjárhæð, svo að styrkurinn komist upp í ísl. kr. 120.000.00. Norræna húsið mun gefa frítt far með flugvél. Jan Erlien forstjóri í Stú- dentabænum Sogn í Oslo hefir gefið loforð um að hj álpa til við útvegun húsnæðis í Oslo. Samkvæmþ .umsókn gegnum Blaðamannafelag íslands, hefir styrkurinn verið veittur Frey- steini Jóhannssyni, blaðamanni við Morgunblaðið Norsku kennsla Kennsla í norsfcu fyrir almenning fer fram á þessu misseri. — Kennslan fer fram í Noræna húsinu. Þátttákeridiur geta ekki orðið fleiri en 14 talsins. Þeir, sem hug hafa á að taka þátt í námi þessu, hafi samband við Hróbjart Einarsson, sendikennara, næ'stu daga milli kl. 14 og' 16, sími 15276 í Norræna húsinu. ÚTBOÐ Laxárvirlkjunarstjórn óskar tilboða í fram- kvæmdir við byggingarvirki 1. stigs G'ljúf- urverksmiðjunnar við Brúar í Suður-Þing eyj'arsýslu. Útboðísigaigna má vitja gegn 10.000 kr. skila trygginlgu í skrifstotfu Laxárvirkjunar, Ak- ureyri, og hjá verkfræðiskrifstiofu Sigurðar Thorodd'sen s.f., Ármúla 4, Reykjavík. — Frestur til að skila tilboðuim rennur út 20. deslember 1969. LAXÁRVIRKJUN. Endurskoðun RíkisemduTskoðúnin óskar eftir að ráða mann méð góða bcklhaldisþekkingu til startfa. — Umsóknir me,g upplýsinguim um aldur, mieinntun cg fyrri störí sendist fyrir 6. októ- ber n.k.. Ríkisendurskoðun, 25. september 1969. Starf v/ð Heilsuvernd- arstöð Reykjavikur Stúlka óskast til að annast heyrnarmælingar (leitarpróf) í barnaskólum í Reykjavík. Starf þetta er m.a. hugsað sem undirbúningur tii írekara námls í almennum heyrnarmæling- um. Fóstrumenntun eða önnur hliðstæð menntun æskileg. Umfsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist Heilsuvernd- ar'stöð Reykjavíkur, heyrnardeild, fyrir 7. ok-tóber.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.