Alþýðublaðið - 25.10.1969, Qupperneq 9
Alþýðublaðið 25. október 1969 9
Ég geri mér fyllilega Ijóst að
öll .aðstaða hér til vísindaiðk-
ana er enn slæm, — 'enda safn '
ið byggt af því fé einu, sem
áhugamenn hafa getað lagt
fram. í framtíðaruppbyggingu
safnsins verður hins vegar að
taka-.fullt tillit til þess, að hér
skapist góð aðstaða fyrir vís-
indamenn okkar á sviði haf- ‘
rannsókna og fiskifræði.
— I>ú segist vera ánægður
meff viffbrögff almennings?
Já, mjög. Starfsemi okkar
hér byggist fyrst og fremst á
jákvæðum viðbrögðum almenn
ings og því er það okkur félög
unum mikið ánægjuefni, hvern
ig þessari starfsemi hefur ver-
ið tekið.
Ég vil þó sérstaklega leggja
áherzlu á það góða samstarf,
sem við höfum átt við sjó-
mennina. Þeir hafa verið okk-
ur ákaflega hjálplegir og vil ég
t. d. geta þess, að allir þeir fisk
ar, sem hér eru, hafa okkur
verið gefnir af íslenzkum sjó-
mönnum. Við höfum ekki þurft
að kaupa einn einasta fisk.
Sama má segja um fæðu fyr-
ir önnur þau dýr, sem við er-
um hér með. Við höfum feng-
ið mikið af því gefins, — síld
og loðnu frá sjómönnum og
kjötafganga úr verzlunum.
Áhugi almennings fyrir safn
inu hefur því komið skýrt fram.
Eins og þú hefur séð eru hér
ýmis dýr, sem ekki eiga bein-
línis heima í sædýrasafni, eins
og t. d. refirnir og turnfálkinn
í búrinu hér fyrir utan rór-
húsið. Þessi dýr höfum við öll
fengið gefins frá ýmsum aðil-
um og þótt þau eigi raunar
ekki keima hér þá höfum við
haft þau til sýnis um lengri eða
skemmri tíma því eitt megin-
atriði þess, að slík söfn geti
haldið áhuga almennings er, að
þau geti ætíð haft Upp á eitt-
hvað nýtt að bjóða.
— Hvert verffur svo fram-
tíðarverkefni ykkar safn
Við höfum þegar varið um
2,8 millj. kr. til fjárfestingar
hér. Mikil aðsókn að safninu í
sumar hefur gert það að verk-
um, að okkur hefur auðnast að
greiða niður um helming skuld
anna og getum því hafið frek-
ari framkvæmdir fyrr, en við
gerðum ráð fyrir.
Við höfum jafnframt leitað
eftir opinberum stuðningi við
st-arfsemi okkár og höfum feng
ið í þeim efnum góðar undir-
tektir m. a. frá sjávarútvegs-
málaráðherra, Eggert G. Þor-
steinssyni, sem sótti okkur
heim á dögunum og ræddi lengi
við okkur.
Fyrsta verkefni okkar verð-
ur að laga hér til innan girð-
ingar, rækta og ganga frá gang
stígum jafnframt því, sem við
munum ganga betur frá safn-
inu sjálfu. Þetta verður okkar
fyrsta verkefni og erum við
þegar byfjaðir á þeim fram-
kvæmdum. Að öðru leyti mun-
um við að sjálfsögðu færa út
kvíarnar eftir því, sem efni og lægri upphæð en við höfðum
ástæður leyfa. Okkur langar til
að mynda mjög til þess að fá
hingað hvítabirni, en þeir eru
jafnan eitt helzta aðdráttarafl
í dýragörðum erlendis.
— Nokkrar stórframkvæmd
ir á prjónunum?
Jón hlær, — ég veit ekki
hvort ég þori að segja frá því,
— fólk heldur sjálfsagt, að
við séum gengnir af göflunum,
en sú hugmynd hefur komið
fram, m. a. verið skotið að
okkur af erlendum sérfræðing
um, sem hingað hafa komið, að
allar aðstæður hér væru þær
ákjósanlegustu til þess að
koma upp gríðarstórri hvala-
laug, — þeirri einu í Evrópu.
Slíkt hefur verið gert með
góðum árangri í Bandaríkjun-
um og Kanada og eru þessar
hvalalaugar gífurlegt aðdrátt-
arafl fyrir ferðamenn.
Við höfum látið gera lausleg
ar áætlanir um hvað slíkt
myndi kosta og er það miklu
gert ráð fyrir enda þótt þær
athuganir séu ekki komnar svo
langt, að ég geti skýrt frá nið-
urstöðum þeirra. Hins vegar
eru allar aðstæður hér eins á-
kjósanlegar til slíkra hluta og
hægt er, •— nægur hreinn sjór,
land, þar sem auðvelt er að
koma fyrir slíkri laug o. s. frv.
Þetta er að vísu aðeins hug-
mynd sem sýnir hversu margt
hér er hægt að gera, en senni-
lega verður það þó ekki i bráð,
að við getum boðið ykkur Al-
þýðublaðsmönnum að skoða
hvalavöðú hér uppi við kamb-
inn í víkinni.
— Er nokkuff, sem þú vild-
ir segja að lokum Jón. Gunn-
arsson?
Ekki nema það, að ég þakka
öllum þeim, sem veitt hafa okk
ur stuðning. Starfið hér við
safnið hefur orðið mér og fé-
lögum mínum til mikillar
gleði. Þetta er starf, sem við
höfum ánægju af því að vinna.
I
I
I
Jón Gunnarsscn að gefa tveim langt aS komnum íbúum safnsins,.— Magellanmörgæsum frá eyjunum undan ströndum Eldlands. SædýrasafniS fékk
fjóra slíka fugla fyrir milligöngu dýragarSsins í Kaupmannahöfn og kostuSu þeir hingaS komnir um 85 þús. kr. — Þessi dýr og önnur geta 'gestir
sædýrasafnsins virt fyririsér, en safniS er opiS frá kl.jlO f.h. til 7 e.h. á sunnudögum, en frá 2—7 aSra daga vikunnar.
Laugardaginn 4. okt. voru
gefin saman í Háteigskirkju af
sr. Jóni Þorvarðssyni ungfrú
Svanhildur Svavarsdóttir og
Tómas G. Ingólfsson. Heimiti
þeirra verður að Reykjadal í
Mosfellssveit.
(Ljósm.st. Gunnars Ingimars
Suðurveri, sími 34852)
5. okt. voru gefin saman í
hj'ónaband af sr. Sig. Hauk
Guðjónssyni í Langholts
'kirkjiu ungfrú Guðmunida
Hagalín Þórðardóttir og Her
bert Halldórsson. — Heimili
þeirra er að Drápuihlíð 8.
Sunnudaginn 5. okt. voru.gef-
in saman í hjónaband í Hruna-
kirkju af sr. Sveinbirni Svein-
björnssyni ungfrú Ásdís Birna
Stefánsdóttir, Reykjakotij Ölf-
usi, og Sigurður H. Magnússon,
Bryðjuholti. — Heimili þeirra
verður að Nökkvavogi 33, Rvk,