Alþýðublaðið - 24.11.1969, Page 9

Alþýðublaðið - 24.11.1969, Page 9
Alþýðublaðið 24. nóvember 1969 9 □ „HeldurSu nú, elskan mín, aS gamla konan sé orSin alveg vit- laus?“ segir María og hlær sín- um glaSa og hljómmikla hlátri. í Nei, ekki var það ástæðan til heimsóknarinnar, en óneit- anlega hlýtur það að teljast til fréttaviðburða þegar fræg prímadonna kemur fram á sjónarsviðið öllum á óvart eft- ir meira en áratugs hlé og byrjar aftur að syngja opinber- lega sextíu og fjögurra ára að aldri. í útlöndum er slíkt fyrir- tæki kallað „sensational come- back“ ef vel gengur. Raunar ber ekki að skilja þetta svo, að María Markan hafi í huga að hefja sam- keppni við yngri kollega sína. En hún tekur því ekki fjarri, að hún myndi kannski láta til- leiðast stöku sinnum ef hún fengi verkefni sem hejini litist á og hún teldi sig ráða við. ★ „GUÐ OG ÉG SJÁLF.“ Það var við minningarat- höfnina um frú Eleanor Svein- björnsson í Dómkirkjunni fyr- ir viku, að María lagði út í þá eldraun að standa enn á ný frammi fyrir áheyr'endúm sem söngkona og leyfa þeim að njóta listar sinnar. Og þó að það eitt hafi að sjálfsögðu ver- ið mikið átak eftir svona langt hlé, er það ekki nema hálf sagan. Tónverkíð sem hún söng, „Glataði sonurinn“ eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, hefur nefnilega aldrei verið gefið út á prenti, heldur fannst handritið á Skjalasafn- inu alveg nýlega, óg María leit það í fyrsta sinn aúgúm tæp- um tveimur dögum áður en at- höfnin fór fram! „ ,Hver kenndi þér það?’ var ég spurð“, segir hún, „og ég svaraði: ,Guð og ég sjálí’. Og satt að segja fannst mér eins og einhver stæði á bak við mig og mér væri raun- verulega hjálpað. Ég held, .að það hafi verið Jón Þórarins- son sem fann handritið, og á þriðjudag hringdi Birgir Thorlacius til mín og bað mig að syngja verkið. ,Treystið þið mér til þess?’ sagði ég. ,Já, fullkomlega’, svaraði hann. Og kl. 5 á þriðjudaginn fékk ég Ijósritið sent til mín. Ég var að kenna til klukkan að ganga 8, og þá gat ég fyrst farið að glugga í nóturnar. Ég sá, að raddlega séð réð ég við það, og ég stóðst ekki freistinguna að' hætta á þetta, enda var það gert í minningu þessara yndis- legu hjóna sem ég var svo lán- söm að þekkja. En ég bað um, að ekki yrði sagt frá því í blöðunum, vegna þess að þá hefði ég orðið alltof tauga- óstyrk”. ★ SÍMASTÚLKA OG SKEMMTIKRAFTUR. María er annars langt frá að vera setzt í helgan stein. Fyrst og fremst einbeitir hún kröft- unum að þjálfun nemendanna í söngskóla sínum sem hún hefur rekið um margra ára skeið. Og ekki hikar hún við að prófa nýjar leiðir inn á milli þegar tækifæri gefst. Til dæmis vann hún í sumar við símavörzlu og fleiri störf á Heilsuhæli Náttúrulækninga- félagsins í Hveragerði. Og skipulagði kvöldvökur og kór- söngva til að skemmta þakklát- um gestum, enda hlaut hún skrautritað heiðursskjal að launum þegar hún kvaddi í haust. „Símastúlka hafði ég aldréi fyrr verið og varla séð skipti- borð. Óg svo varð ég að selja frímerki um l'eið og þekkti þau ekki í sundur til að byrja með — en nú er ég bara orðin voða dugleg í þessu og hef meiri- partinn í höfðinu. Á fimmtu- dagskvöidum höfðum við kvöld- vökur, og þar var lesið upp og sungið og allt mögulegt, ég spilaði undir og söng með ,Grænmetiskórnum’, og stund- um var skorað á mig að taka lagið einsömul. Þú getur ekki ímyndað þér hvað þetta var gaman. Og hvað blessað fólk- ið var gott við mig — ég fór María er ennþá ævintýragjörn Dg aíltaf fus aff prófa eitthvaS nýtt. í sunu ar vann hún sem símasíúíka — og hafði þó varla séð sklptiboro áður. | (Mynd: Gunnar Heiðdal.) María Markan syngur aftur opinberleoa eflir raeira en árafugs hlé 1 þaðan hlaðin blómum og gjöf- um og lirærð í hjarta.“ ★ MEÐAN GUÐ LEYFIR . . . í vor sem leið söng María inn á segulband viðamikið prógramm á fimm tungumái- uui — „til geymslu“ eins og hún orðar það. „Pétur, sonur minn, vildi endiiega drífa mig í þetta. Það var tekið upp í sal Tónlistarskólans, og Ólafur Vignir Albertsson spilaði und- ir. Og sumt af því tel ég hafa tekizt betur en margt sem spilað er í útvarpinu með mér. Röddin var í millibilsástandi nokkur ár — frá því að ég byrjaði að tapa mestu hæð- inni, c og þar fyrir ofan — og þá hætti mér til að þvinga hana, syngja of kröftugt. En smám saman tókst mér a'ð ,leggja hana um’, og nú er ég algerlega hætt að þurfa að þvinga hana, heldur kemur þetta frjálst og eðlilega, og þá er árangurinn meira að mínu skapi. Ég er viss um, að ég hef lært langmest á því að kenna öðrum. Og þó að ég hugsi mér alls ekki að fara að syngja út um hvippinn og hvappinn ef færi gefst eins og á yngri árum mínum, vil ég gjarnan nota röddina svolitið meðan guð leyfir mér að halda í hana og aðrir kæra sig um að hlusta á mig”. — SSB. I hendlngum Umsjón: Gestur Guðfinnsson Andrés H. Valberg er Skag- firðingur að ætt og uppruna. Þeir sem hafa haft af honum einhver kynni vita, að hann á létt með að kasta fram vísu og láta fjúka í hendingum. Á ferðalögum er oft líf í kringum Andrés og dregur hann þá ekki af sér við kveðskapinn, en læt- ur margt fjúka. Hann hefur gefið út a.m.k. eina Ijóðabók, Stuðlastrengi, hún kom út fyrir réttum tuttugu árum. Ég tek mér bessaleyfi og hnupla nokkrum vísum úr bókinni til birtingar í þessum þætti, Þær bera heitið „Litið til baka,“ og hljóða á þessa leið: Þó ævin mín sé ekki löng, er þar margt að finna. Oft var leiðin ærið ströng, ýmsu mátti ég sinna. Ennþá er ég gleðigjarn, get mig látið dreyma, eins og þegar eg var barn uppi’ í Skörðum heima. Þó atvinnan sé orðin smá, ei það vékur baga, leik ég mér og lifi á leifum fyrri daga. Framtiðin er glæst og greið, gleymt er allt til baka, lít ég aðeins blómabreið og bjarta svani kvaka. ★ Hallgrímur Jónasson, kenn- ari, er mikill ferðamaður, eins og margir vita, og verður ein- att vísa á munni í ferðalögum. Eftirfarandi staka er gerð á leið inn í Þórsmörk, en þangað hefur Hallgrímur marga ferð- ina farið bæði sem leiðsögu- maður og í öðrum erindagjörð- um. Og á þeirri leið hefur mörg ^óð og skemmtileg ferða- vísa orðið til. Þessi er úr einni slíkri för; Mætti ég í Merkurför niinar taugar styrkja. Þegar stútur vætir vör verður létt að yrkja. ★ Þessi vísa er eftir einhvern ókunnan höfund og þarf ekki skýringar við: Alla hryggbraut auðarbil, enga vildi krakkana, kastaði sinum kærleiksyl fyrir kettina og rakkana. ★ Við gamla veginn upp á Öxnadalsheiði er móbergs- hlunkur allmikill, nefndur Lurkasteinn. Þar er sagt, að hafi barizt þeir Sörli sterki og Þórðúr hreða, var venja ferða- manna, er um veginn fóru, að kasta þangað steinköggli, eins og víðar þekkist, þar sem dysj- ar eru. Gott ef ekki var líka stundum tekinn tappi úr flösku á þessum stað. Til þess gæti bent eftii’farandi vísa, sem eignuð hefur verið Benedikt Sveinssyni yngra: Lurkasteini ef liggur hjá leið vor einu sinni, drekkum, sveinar, saman þá Sörla beina minni. ★ Jón S. Rergmann kveður þessar hressilegu giglingavís- ur; Stormur reiður stikar dröfn, stækka leiðar undur, þegar skeiðin skriðajöfn skafla sneiðir sundur. Þótt hún slengist hart á hlið hyllir enginn friðinn, hraustir drengir harðna við hrannar strengja kliðinn. Framhald bls. 11.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.