Alþýðublaðið - 03.12.1969, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 03.12.1969, Blaðsíða 9
og barn í vöggu. Kannski er 'ekkert til fallegra undir sól- inni en barn í vöggu. Niðji get- ur samt ekki sett sig á háan hest gagnyart foreldri fyrr en hann fer að stálpast. Vegna þess sem hér hefur verið sagt um hugsanlega sam- vinnu Alþýðuflokksins og Sam taka frjálslyndra skal tekið fram að ég býst naumast við að þessir flokkar fallist í faðma og taki upp' samvinnu á næstu vikum og mánuðum. Hins veg- ar álít ég að það komi til greina að við reynum að láta sambúð okkar verða með öðrum hætti en sambúð vinstri manna hefur verið á undanförnum árum, og látum málefni ráða þeirri af- stöðu hvort við vinnum sam- an eða ekki. Því fer fjarri að það sé ekki við hæfi að bera saman stefnumálin. Ef slíkt er ekki við hæfi í stjórnmálum, hvað er þá við hæfi? í sambandi við þetta, langar mig til að spyrja tveggja spurn inga: Hvað er það sem myndi i meginatriðum bera á milli Samtaka frjálslyndra og Al- þýðuflokksins? Og ennfremur og það finnst mér aðalatriði: Hvað vinnst við það, ef í Ijós kemur að ekki ber mikið ' á milli um sameiginleg stefnu- mál, málefni og hugsjónir? Við skipum okkur einmitt í flokka til að geta komið málefnum okkar í framkvæmd og látið til okkar taka í þjóðfélaginu. Það er penpíuháttur ef barnið í vöggunni krossar sig af hræðslu við syndina í heiminum og vill engu una öðru en lakinu. Hvað myndi svo vinnast við að hér í landi væri einn stór og sterkur vinstri sinnaður lýS- ræðisflokkur? Gegn hverjum væri sú synd drýgð? Og hverj um væri það afrek unnið ef unnt reyndist að þoka vinstri mönnum á íslandi til samstöðu um málefni? Það er alveg rétt að íslenzku stjórnmálaflokkunum hlýtur að vera um margt ábótavant. Menn sem vilja bæta úr því af heiðarleika og drenglund, þeir velja sér auðvitað sam- herja eftir málefnum og reyna að láta málefni sín þoka til vegs þeim samtökum, sem þeir vilja að komist til áhrifa og valda í þjóðfélaginu. Þessa forystu hefur 'okkur vantað á undanförnum árum. Ég viðurkenni að mér finnst hana hafa að ýmsu leyti skort af hálfu Alþýðuflokksins. En þetta mál snýr að miklu fleiri vinstri. mönnum en Alþýðu- flokknum einum. Og okkur væri skylt að hugsa til verlca- lýðshreyfingarinnar, sem réð úrslitum um stofnun Alþýðu- flokksins á sínum tíma. Henni hefur að ýmsu leyti tekizt að bæta kjör sín. Hún hefur feng- ið ýmsum hagsbótum fram- gengt. Samt hefur verkalýðs- hreyfingin ekki þau áhrif á þjóðmál sem hán þarf og nauð synlegt væri. Það ér akki að- eins mál verkalýðshreyfingar- :íinnar. Ef verkalýðshreyfingin einskorðast við kjarabaráttu gegnir hún ekki nema hálfu i hlutverki. Annað > aðaJhilutverk hennar er að hafa áhrif á þjóð- mál íslendinga, með það fyrir augum sem vakti fyrir braut- ryðjendum verkalýðshreyfing- arinnar í árdögum hennar, og vakir fyrir öllum sönnum vinstri mönnum, þrátt fyrir all- an ágreininginn og sundrung- ina. Samtökum frjálslyndra vil ég svo þakka aðildina að fundi þessum. Ég ætla að einmitt það hvernig þau bregðast við spurn ingunni um hver sé ágrein- ingur vinstri manna á Islandi og hvað myndi vinnast við að róttækir og frjálsl. íslending- ar sameinuðust í einn stóran og sterkan vinstri flokk, hljóti að ráða úrslitum um framtíð þessara samtaka og skera úr um hvort þau verða skammlíft ungbarn eða eiga lífdaga auðið í jákvæðu starfi og farsælli baráttu. — Happdrætti Háskóla Islands vill ráða nýja umboðsmenn 1. í úthverfum Reykjavíkur 2. I þeim byggðarlögum, sem umboðs- menn eru ekki fyrir. Umsóknir sendist aðalskrifstofu Happdrætt- is Háskóla íslands, Tjarnargötu 4, Reykja- vík fvrir 15. desember. Happdrætti Háskóla Islands Sinfóníuhljómsveit íslands: TÓNLEIKAR í Háskólabíói fimmludaginn 4. desember kl. 21.00. Stjórnandi Alfred Walter. Ejnleikari Marc Raubenheimer. Flutt verða verk eftir Mozart, Kalabis, Schumann og Hindemith. Aðgöngumið- ar í bókabúð Lárusar Blöndal og bókaverzl. Sigfúsar Eymunds sonar. SKÓLATÓNLEIKAR fyrir Háskólastúdenta, Menntaskóla-, Kvennaskóla-, Kennara- skólanemendur o.fl. í Háskólabíói föstudaginn 5. desember kl. 14.00. Stjórnandi Alfred Walter. Einleikari Marc Rauben- heimer. Flutt verða verk eftir Mozart og Schumann. Aðgöngu mjðar í skólunum1 og í bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðu- stíg 2 og við innganginn. SMÍÐI Smíðum útihurðir, svalahurðir, bílskúrs- hurðir, sólbekki og skápa. Trésmiðja BIRGIS R. GUNNARSSONAR, Sími 32233. Arþýðublaðið 3. des’ember 1969 9 I I I t I I I I I Ekki myndu nú allir kunna við sig í svona múnderingu. Fyrst eru þaff buxurnar, síffar cg víffar, þá nokkru styttri kjóll meff plíseruffum kyrtit-i ermum og utan yfir öllu saman hálfsítt vesti, bryddaff meff keffjum og svörtum steinplötum. Um höfuðið er magvafiff trefli úr sama efni og kjóli- inn. Vinningar í 18. leikviku — leikir 29. nóv.: Úrslitaröðin: xx2 — 122 — llx — 21x Fram komu 2 seðlar með 10 réttum: nr. 1.528 Akureyri kr. 155.300,00 nr. 12480 ,Reykjavík kr. 155.300,00 Kærufrestur er til 22. desember. Vinnings- upphæðir geta lækkað, ef kærur reynast á rökum reistar. Vimingar fyrir 18. leikv^ku verða sendir út 23. desember. H Getraunir - íþróttamiðstöðinni - Reykjavík 'tóía Öis ,Óc-4 <>ív fsíj;

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.