Alþýðublaðið - 04.12.1969, Blaðsíða 2
2 ^Jþýðulblaðið 4. desember 1969
Gvendur
‘ KONA skrifar mér á þessa
' leið og segir sínar fariir ekki
sléitar: ,,Hvernig er það, eru
fínir menn búnir að taka upp
þann sið að hringja dyrabjöll-
4 um hjá ókunnugu fólki til að
hræða það? Þessi spurning
Vaknaði hjá mér á dögunum
þegar ég, nýkomin heim úr
yinnu minni og einnig nýbúin
ýð taka á móti dóttur minni
4 sem var komin heim af dag-.
1 heimilinu fárveik með 40 stiga
hita, varð fyrir því að dyrabjöll
unni er hringt og úti stendur
uppdubbaður maður er hafði
' lagt bíl sínum við gangstéttina
•' að húsinu. Spyr sá uppdubbaði
* hvort ég hafi síma, hann þurfi
iað hringja á lögregluna. Ekki
' var ég búin að svara þeirri
' spurningu þegai- úr bílnum er
kallað hárri raust: „Hleyptu
honum ekki inn, þetta er stór-
haettulegur maður og innbrots-
þjófur". I>að þarf ekki að orð-
iengja það að ég lokaði hurð-
inni í snatri, og lái mér hver
sem vill. Og nú spyr ég; Átti
' þetta að vera eins konar könn-
' un á sálarhreysti og hjálpsemi
náungans, eða aðeins ómerki-
legur leikur gerður til að hræða
' fólk? Það virðist enginn hörg-
•ull á raunverulegum innbrots-
þjófum og misindi3mönnum
þótt menn fari nú ekki að leika 1
þá líka. — Kona.“
i 1
TRAUST OG HJÁLPSEMI. L
Erlendis er bláókunnugum B
mönnum yfirleitt alls ekki I
hleypt inni hús, a. m. k. ekki í ®
stórum borgum, því enginn veit I
hvar stórhættulegir menn eru I
á ferð. Það var í tízku fyrir |
nokkrum árum að stórþjófar og _
bófar léku alls konar siðsamt |
fólk, teppahreinsunarmenn, alls I
konar viðgerðarmenn eða eftir- "
litsmenn frá því opinbera, til I
þess að smúla sér inní hús að 6
vinna þar einhver óþokkabrögð |
leynt eða ljóst. Við þessu var _
þá varað mjög, og síðan gáði I
fólk þess betur en ella að engir I
ómerkingar kæmust hjá því * *
inná gafl. Ég tek eftir því að |
fólk hér á landi er miklu tor- |
tryggnara við bláókunnuga nú |
en fyrir svosem tuttugu árum. _
En með tortryggninni fer hjálp I
fýsnin forgörðum, a. m. k. að I
því er virðist.
EINMANALEIKI
Bófar og misindismenn eiga I
drýgstan þátt í því að einangra
fólk í stórborgum, og jafnvel I
borgum sem ekki eru stærri en I
Reykjavík. í fásinninu vita all- ■
ir hverjum hægt er að treysta. I
í fjölmenninu þorir enginn að I
treysta ókunnugum. Fólk lifir I
þar í þröngum hópi vina og
samstarfsmanna. í fjölmenn- I
inu eru menn meira einmana I
en útá víðavangi landsbyggð- I
arinnar. Þetta er einn af ókost- a
um þéttbýlisins. Þannig fara 1
mikil lífsverðmæti í súginn, |
því það er svo notalegt að mega ’
alltaf búast við að hver ókunn-1
ugur maður sem maður hittir sé I
fyrst og fremst vingjarnlegur |
og traustverður maður. ■
MEIRI SVEITAMENNSKA 1
Sá hrekkur sem konan grein-
ir frá er ekki skemmtilegur, og 1
ég veit ekki af hvaða toga hann I
er spunninn. En fyrir því leyfi 1
ég mér að fílosófera útfrá þessu a
tilviki að ég mundi sakna sveita 1
mennskunnar úr Reykviking- I
um ef þún hyrfi með öllu. Má "
ég heldur biðja um svolítið I
meiri sveitamenn^ku. Þetta áð 1
héhxmbil allir þekki alla er |
kostur en ekki galli fyrir sam
félagskennd þjóðarinnar. Með-1
an hérumbil allir þekkja alla I
erum við hjálpfúsi'r og góð-1
gjarnir, en ef brögð verða að ■
hrekkjum líkum þeim sem I
kona segir frá er hætt við að I
tortryggni aukist og hjáipfýsi *
minnki. Þá er iUa farið.
Götu-Gvendur.
VESTFIRZKAR
Einhver bezta jólagjöf og taekifæris
gjöf, er Vestfirzkar ættir (Arnar-
dals- og Eyrardalsætt.) Afgreiðsla
í Leiftri og Bókabúðinni Laugavegi
43B. — Hringið í síma 15187 og
10647. Nokkur eintök ennþá óseld
af eldri bókunum. — Útgefandi.
Shomxut
UiYGRA
diFmmnmmA
Um upplýsingaskyldu og
umboðsmann.
I
*
Það er óumflýjanlegt í sí-
feUt fjölþættari og flóknari
þjóðfélagsstarfsemi, að ríkið
láti til sín taka á æ fleiri svið-
um mannlegra samskipta, og að
jafnframt íjölgi stofnunum þes3
og starfsliði. Þessu fylgir hætta
á of miklu skrifstofuvaldi og
minnkandi áhrifum þegnanna á
stjóm hinna ýmsu þjóðfélags-
stofnana.
Þesa vegna þarf að búa svo
um hnútana, að réttindi al-
mennings gagnvart stofnunum
og skrifstofuvaldi hins opin-
bera verði tryggð. í þeim
ríkjum, sem við sækjum helzt
fyrirmyndir okkar til hefur
einkum verið gripið til tvenns
konar úrræðis í þessu skyni og
bæði gefizt vel. Það fyrra er
upplýsingaskylda, sem lögfest
er í stjórnarskipunarlögum
Aff þessu sinni eru bir'tir þrír kafíar úr þeim þætti í iStefnuskrá ungra
jafnaðarmanna, er nefnist Stjórnskipun og dómsmál. Kaflarnir fjalla um
upplýsingaskyídu cg timboðsra(3iin, (starfsemi (stjórnmálaflokkanna og
skyldur samfélagsins við þá, ásamt pólitískri stöðu sérfræðinga, sem
starfa á vegum viðkomandi stiórnvalda.
ýmissa landa. Samkvæmt
henni á hver sem er jafnan fuil-
an aðgang að öllum opinberum
skjölum, sem varða rekstur op-
inberra stofnana. Þó er heim-
ilt að undanþiggja upplýsinga-
skyldu með sérstökum lögum
skjöl, sem varða öryggi ríkis-
ins, friðhelgi einkalífs, verzl-
unarleyndarmál 'og rannsókn
sakamála, áður ;en ákæra er
birt.
Stjómmálaflokkar.
'Stjómmálasamtök eru eðli-
legar fylgjur lýðræðisins og í
þeim sameinast þegnamir til að
vinna skoðunum sínum braut-
argengi.
Það er eðlilegt og nauðsyn-
legt, að stjórnmálaflokkarnir
hafi aðstöðu til að kynna stefnu
sína og skoðanir með hinum
ýmsu fjölmiðlunartækjum nú-
tímans, svo sem dagblöðum,
hljóðvarpi og sjónvarpi. Hið op-
anbera ætti að veita beina og
óbeina aðstoð til þess, að að-
•staða flokkanna í þessum efn-
um yrði sem jöfnust. Jafnframt
þarf að setja lög um stjórn-
málaflokkana, starfsemi þeirra
og fjárreiður, þar sem m. a. er
kveðið á um að innan þeirra
skuli reglur lýðræðis í heiðri
hafðar og fjárreiður þeirra op-
inberar.
Ungir jafnaðarmenn leggja,
því til:
að sett verði löggjöf um stjómi
málaflokka og starfsemi
þeirra;
að stjómmálaflokkunum verði
tryggð sem jöfnust aðstaða
til að koma skoðunum sín-
um á framfæri með hinunt
ýmsu fjölmiðlunartækjumi
nútímans, m. a. með beinuMÍ
eða óbeinum fjárstyrkjum,
Sérfræðingar og ríkisstjóm.
Alþingi er hyrningarsteinrí
íslenzks lýðræðis og verður að|
vera það um alla framtíð. Þes3
vegna verður að gæta þess vel
að sérfræðingarnir séu þjónaffi
þess en eigi húsbændur. Á tím-
um sérhæfingar hættir mjög ti|
að völd sérfræðilegra ráðunautai
ríkisstjórnar vaxi í hlutfalli viS
það, hve flókin og vandasöin
mál eru, sem krefjast úrlausn-
ar. Sérfræðiþekking er góð og
nauðsynleg, en sérfræðingan
hafa ekki verið kjörnir til landa
stjórnar almennt. Það ber þvl
að tryggja að völd og áhrif sér-
fræðinga, sem ekki eru beinfl
háðir pólitísku valdi þings og
þjóðar verði ekki meiri exi
Framhald á bls. 15.
STERK &
STÍLHREIN
Seljum stálhúsgögn fró verkstæði.
Margar gerðir af borðum og stólum.
Mikið úrval af áklæði (leðurlíki).
Mikið úrval af harðplasti (Formica).
Mjög hagstætt verð.
Opið ó laugardögum.
SÓLÓ-húsgögn sími
Hringbraut 121 21832