Alþýðublaðið - 06.12.1969, Blaðsíða 7
Alþýðublaðið 6. dcscmber 1969 7
Nýjar
bækur
Bók um fremsla
hlula Snæfellsness
UNDIR JÖKLI nefnist bófc
eftir Árna Óla, sem bóikaút-
gátfan Setberg hefur getfiS út,
og fjallar hún um fremista
hluta Snætfellsness. Þetta er
25. biólkin sem út kemiur efit'.r
Árna, en hann hefur miíkið'
fjalilað uwii söigiuileg etfni í rit
um sínuim, meðal annars
skritfað milkið um tfortíð
Reyikjav'íkur. Undir jöktfi er
269 b'ls. að stærð og prýdd
fjölda mynda.
Gylfi Gröndal
Ævisaga
Roberis Kennedy
Setberg hetfur sent frá sér
ævisögu Rotoerts Kennedvs,
sem Gyilfi Grö'ndal ritstjóri
hefur samið. Er þar rafcin
ævisaga hins fciuimna stjórn-
miátfamanns, lýst hernsku
hans og uppvexiti og stjórn-
málaþátitt'öfciu frá tfyrstu tá6 til
hinztu stundar. Bókiu er 238
bls. að stærð og prýdd mörg
um myndum.
Sannieiksleil
í leit að sannleikan-
UM nefnist bófc eftir Ruith
Montgomiery, seim bólkiaútgáf
an Fífilll' gefur út. Hersteinn
Pálsson hefur þýtt bófcina,
en Ilafs'tei'nn Björnisson mið-
iil ritar að' henni formála.
Höfundiur þessarar bófcar er'
kunnur blaðamaður í Banda
rfkjuinuim, en hefur hin síð-
ari ár sökikit sér nlður í spíri
tisma. ;
26 dulrænar
frásagnir
SKJÓLSTÆÐINGAR nefnist
bók eftir Guðlaugu Benedikts-
dóttur en efniviður bókarinnar
eru 26 dulrænar frásagnir, en
höfundur bókarinnar er skyggn
og hefur mikla dulræna
reynslu. Bókin er 215 bls. að
stærð, prentuð í Prentverki
Odds Björnssonar á Akureyri,
en það er Bókaforlag Odds
Björnssonar sem gefur bókiria
út.
Saga um
flugsamgöngur
GULLNA FARIÐ nefnist saga
eftir Arthur Hailey, sem sem
Bókaforlag Odds Björnssonar
Björnssonar hefur gefið út í
íslenzkri þýðingu Hersteins
Pálssonar. Þetta er saga er seg-
ir frá erfiðleikum við flugsam-
göngur vegna óveður-s. Bókin
er 358 bls. að stærð, prentuð
í Prentverki Odds Björnsson-
ar.
Guðmundur Daníelsson
Bók um
Ölfusá og Sogið
DUNAR Á EYRUM neitfnist
ný bófc etftir Giuðmund Daní-
eísson oig fjallar hún urn
Öltfuisá og Sogið, og er bók-
in alhliða lýsing á þessum
tveimiur ólíkiu vatnsfö'llum.
Þar er sögð saga þeirra frá
sjóuarhóli samga'ngna fyrr
og síðar oig silysfarir og þjóð
trú fá sitt rúmi í bólkdnni, en,
að meg'nefni er bófcin þó
saga lax- og sUungsveiða í
þessuim tveámur láirn. Mjög
margar miyndlr eru í 'bólk--
inni, en 'hú'n er 426 :h’!s\ að
stærð, prenitiuð í Alþýðúprent
smiðjúnni,. en bundjn í Arn-
arfelli. Útgefandi er Bólka-
útgáfa Guðjóus Ó. Guöjóns-
sonar.
NýH bindi
af dómasafninu
LANDSYFIRRÉTTARDÓM-
AR OG HÆSTARÉTTAR-
DÓMAR í íslenzkum málum
1802 — 1873 IX. bindi er ný-
komið út hjá Sögufélaginu, og
nær þetta bindi yfir tímab'iiið
frá 1863 — 1867. Prófessor Ár-
mann Snævarr hefur annazt út-
gáfuna, en alls er þetta bindi
409 bls. að stærð, prentað í
ísaf old arpr entsmið j u.
A'gnar Kl. Jónsson.
Stjórnarráðssaga
í tveimur bindum
STJÓRNARRÁÐ ÍSLANDS
1904—1964 neínist mikið rit-
verk eftir Agnar Kl. Jónsson
sendiherra, sem nýlega er kom-
ið út á vegum Sögufélagsins,
og er þefta umfangsmesta verk-
ið sem félagið hefur gefið út
til þessa. Stjórnarráð íslands
er í tveimur bindum, samtals
1046 blaðsíður að stærð, og þar
ei\ rakin ítarlega saga stjórn-
arráðsins og þeirra ríkis-
stjórna sem setið hafa að völd-
um þau 60 ár, sem bókin nær
til. Kafiaheiti bókarinnar gefa
sæmilega mynd af efni hennar,
en aðalkaflarnir eru þessir:
Heimastjórn
Breytingar á stjórnsýslunni
'Ráðherrar
Ráðherrar íslands og ríkisT
stjórnir
Skrifstofur Stjórnarráðs ís-
lands
Störf og starfshættir
Stjórnarráð íslands
Helztu framkvæmdir Stjórn-
arráðs íslands 1904—64
Starfsmenn Stjórnarráðs ís-
lands
Stj órnarráðsbyggingar
Minnisverðir attburðir við
stjórnarráðshúsið
Einnig eru birt nokkur fylgi-
skjöl með verkinu, og í bókar-
iok er skrá yfir atriðisorð og
mannanöfn. Bókin er prentuð í
ísafoldarprsntsmiðju, en verð
- til félagsmanna Sögufélagsins
er kr. 1175, hefst, og kr. 1565
í bandi.
Ný saga eflr
Margil Ravn
STJIJPSYSTURNAR eftir
Margit Ravn í þýðingu Helga
Valtýssonar er komin út hjá
bókaútgáfunni Hildi, en marg-
ar af sögum höfundarins haía
öðlazt vinsældir á íslandi. Sag-
an er 160 bls. að stærð, prent-
uð í Setbergi, en bundin í Fé-
lagsbókbandinu.
Tveir vinir
TVEIR VINIR nefnist ung-
lingasaga eftir R. Friis, sem
bókaútgáfan Hildur gefur út í
þýðingu Þorvaldar Kolbeins.
Þetta er ævintýrasaga um ung-
an józkan dreng, sem lendir í
ýmiss konar mannraunum. Bók-
in er 126 bls. að stærð, prent-
uð í Lithoprent, en bundin í
Félagsbókbandinu.
Ný Ijóðabók
BÓNDINN OG LANDIÐ nefn-
ist ljóðabók eftir Pétur Aðal-
steinsson, sem Bókaforlag
Odds Björnssonar gefur út. —
Höfundurinn er Húnvetningur,
sem hefur stundað búskap og
kennslu í heimabyggð sinni, en
í bókinni eru 30 kvæði í hefð-
bundnum stíl. Þessi nýja ljóða-
bók er 78 bls. að stærð, prent-
uð í Prentverki Odds Björns-
sonar, Akureyri.
Ævinfýri Armanns
Kr. Einarssonar
GULLROÐIN SKÝ nefnist
annað bindið í ritsafni Ár-
manns Kr. Einarssoniar, sem
Bókaforlag Odds Björnssonar á
Akureyri er að gefa út, og eru
ævintýri í þessu bindi safns-
ins. Bókinni fylgja teikningar
■eftir Halldór Pétursson, en
Friðrika Geirsdóttir gerði kápu
teikningu. Bókin er 143 bls. að
stærð, prentuð í Prentverki
Odds Björnssonar.
Kasfalagreifinn
KASTALAGREIFINN nefnist
nefnist skáldsaga eftir Vietoriu
Holt, sem bókaútgáfan Hildur
gefur út í þýðingu Skúla Jens-
sonar. Þetta er ævintýrasaga,
sem gerist í Frakklandi. Sagnn
er 192 bls. að stærð, prentuð í
Prentverki Akraness.
Ný skáldsaga eftir
Cavling
ÖRLAGALEIÐIR nefnist saga
eftir Ib H. Oavling, sem nýlega
er komin út á íslenzku í þýð-
ingu Gísla Ólafssonar, en það
er bókaútgáfan Hildur s'em
gefur bókina út. Þetta er
skemmtisaga um ástir og ævin-
týri, 220 bls. að stærð, prentuð
í Setbergi.
***
* >f
VIÐ
VILJUM
VEKJA ATHYGLI
YÐAR Á HINU FJÖL-
BREYTTA ÚRVALI GÓLF-
TEPPA, GÓLFDÚKA OG ANN- r
ARRA BYGGINGAREFNA. EINNIG
LANDSINS MESTA ÚRVAL AF VEGG-
FÓÐRI, HVORTTVEGGJA UPPHLEYPT OG
VENJULEGT VYNILHÚÐAÐ VEGGFÓÐUR.
AÐEINS ÞAÐ BEZTA. NÝJAR VÖRUR
DAGLEGA.
OPIÐ TIL KL 4 í DAG.
ý<