Alþýðublaðið - 09.12.1969, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 09.12.1969, Blaðsíða 7
Alþýðublaðið 9. desember 1969 7 OPNA Framhald úr opnu. lands að Fríverzlunarsamtökun um“. W: NIÐURSTÖÐUR r. ATHUGUNARINNAR „Hér er að sjálfsögðu ekki á- stæða til þess að rekja niður- stöður hinna víðtæku rannsókna dr. Guðmundar Magnússonar, prófessors. Þó er rétt að benda á, að meginniðurstaða þeirra er sú, að staða íslenzks iðnaðar er mun styrkari en menn virð- ast almennt hafa talið og að iðn þróun á íslandi mundi eflast við aðild fslands að Fríverzlunar- samtökunum á grundvelli þeirr- ar samningsgerðar, sem nú er kostur á. Ég tel rétt að geta hér nokkurra atriða úr niðurstöðum athugana hans á samkeppnis- hæfni helztu tollvernduðu iðn- greinanna. Hann telur aðild að Fríverzlunarsamtökunum muni hafa lítil áhrif á afkomu í brauð- og kökugerð. Hins vegar sé kex- gerð illa undir samkeppni bú- in, og sé þar nauðsyn á tækni- aðstoð til framkvæmda á ým- iss konar breytingum. Sælgæt- isgerð hefur notið svo til al- gjörs innflutningsbanns, og mundi aðild að Fríverzlunar- samtökunum gera ýmiss konar breytingar í þeirri iðngrein nauð synlegar, fyrst og fremst sam- runa fyrirtækja samfara end- urnýjun ,á vélakosti. Aðild að Fríverzlunarsamtökunum mundi ekki hafa áhrif á öl- og gos- drykkjagerð sökum þeirrar verndar, sem felst í fjarlægð ís lenzka markaðsins frá erlendum framleiðslufyrirtækjum. Fyrir ullarþvott, spuna og vefnað fylgja stækkun markaðs meiri kostir en gallar. Um skógerð segir, að framleiðni hafi stór- aukizt á undanförnum árum, og mundi hún eflast fremur en dragast saman. Fatagerð hafi sýnt þvílíka aðlögunarhæfni, að ástæða sé til þess að ætla, að hún standist samkeppni á flest- um sviðum. Húsgagnagerð hafi : einnig staðizt erlenda sam- keppni, og eigi á því sviði að vera um skilyrði til útflutn- ings að ræða. Svipað sé að segja um innréttingasmíði. Skirina- og . leðuriðnaður sé vænlegur útflutningsiðnaður, og gildi hið sama um fyrirhugað minkaeldi. Málningar- og lakkgerð virðist fyllilega samkeppnisfær. Hrein lætisvöruframleiðendur virðast einnig samkeppnisfærir. f málm smíði sé um að ræða verðmæta 1 þekkingu og reynslu, auk þess sem hún njóti staðarverndar, þannig að ástæðulaust sé að ótt ast um framtíð hennar. Ekki muni vet-ða um frekari sam- drátt í smíði rafmagnstækja að ræða, og aðstaða í plastiðnaði og umbúðaiðnaði breytist ekki til hins verra. Þar eð ekkert sé því til fyrirstöðu í Fríverzl- unarsamtökunum, að um sé að ræða ríkiseinkasölu eins og t. d. þá, sem Áburðarverksmiðjan hefur, mundi staða hennar ekk- 1 ert breytast, enda hefur starf- semi hennar verið í fullu sam- ræmi við reglur Fríverzlunar- samtakanna. Þá heimilar samn- ingur Fríverzlunarsamtakanna ráðstafanir vegna tímabundinna erfiðleika fyrirtækja eins og Sementsverksmiðjunnar. Sérstaka athygli vekur pró- fessorinn á framtíð íslenzks nið ursuðuiðnaðar úr sjávarafurð- um og þeim möguleikum, sem á því sviði skapist á erlendum markaði við aðild að Fríverzl- unarsamtökunum. Auk niður- suðuiðnaðarins telur hann, að þegar við aðild að Fríverzlunar- samtökunum muni geta hafizt útflutningur frá fyrirtækjum í innréttingasmíði, prjónaiðnaði og skinna- og leðuriðnaði. Af nýjum greinum bendir harin sér staklega á efnaiðju og rafeinda- iðnað“. AFNÁM VERNDARTOLLA Gylfi Þ. Gíslason fór nokkrum orðum um reynslu Norðmanna af EFTA-aðildinni. Sagði hann, að reynsla þeirra hefði sýnt og sannað, að iðngreinar þær, sem tollverndaðar voru í Noregi, þegar Fríverzlunarsamtökin voru stofnuð, hafi eflzt og styrkzt þar í landi en ekki drég izt saman. Enn fremur sagði Gylfi Þ. Gíslason: „Engu að síður verður að gera sér ljóst, að sú lækkun framleiðslukostnaðar og sú end urskipulagning í tollvernduð'um iðngreinum, sem afnám toll- verndar hlýtur að hafa í för með sér, er erfið í framkvæmd og langt frá því að vera vanda- laus. Þá veldur afnám verndar- tollanna einnig því, að ríkið þarf að endurskipuleggja tekju- öflun sína. I stað verndartoll- anna verða að koma aðrir tekju stofnar. Mun ríkisstjórnin leggja til, að í stað þeirra tollalækk- unar, sem koma mundi til fram- kvæmda í sambandi við aðild íslands að Fríverzlunarsamtök- unum, komi hækkun á sölu- skatti. Er jafnframt til athugun- ar að breyta söluskatlinum í svo nefndan virðisaukaskatt, sem nú er ýmist búið að koma á eða er verið að koma á í flest um iöndum Vestur-Evrópu í stað söluskatts, en virðisauka- skattur er fólginn í því, að tek- inn er lægri hundraðshluti af verði vörunnar í skatt á hverju viðskiptastigi. Er talið, að miklu auðveldara sé.að koma í veg fyr ir undanbrögð undan skaltinum með virðisaukaskattkerfinu“. LÆKKUN TOLLTEKNA „Lækkun sú, sem gert er ráð fyrir á verndartollum fullunn- innar iðnaðarvöru í sambandi við aðild íslands að Fríverzlun- arsamtökunum, mun lækka toll tekjur ríkissjóðs um því sem næst 235 millj. króna. Jafn- hliða er gert ráð fyrir hlutfalls- lega meiri lækkun á tollum á hráefni og vélar, og mun sú lækkun hafa í för með sér tekju lækkun hjá ríkissjóði um því sem næst 165 millj. króna. Sú tollalækkun, sem stæði í sam- bandi við beina aðild íslands að Fríverzlunarsamtökunum, næmi þess vegna um 400 millj. króna. Hins vegar hafa frekari tolla- lækkanir á nokkrum vörum ver ið ráðgerðar, og ennfremur er fyrirhugað að endurgreiða tolla á hráefnum og vélum, sem greiddar hafa verið í tiltekinn tíma áður en aðaltollalækkun- in kemur til framkvæmda. Mun þetta lækka tekjur ríkis- sjóðs um því sem næst 100 millj. króna til viðbótar, þann- ig að fyrirhugaðar tollalækkan- ir munu lækka tekjur ríkis- sjóðs um því sem næst 500 millj. króna. Mun frumvarp að nýrri toliskrá verða lagt fram síðar í þessari viku, og mun þá hæstvirtur fjármálaráðherra gera grein fyrir þessu máli öllu“. 16. GREININ ' Um hina umdeildu 16. grein EFTA -sáttmálans, sagði Gylfi Þ. Gíslason m.a.: „Á fyrstu starfsárum Fríverzl unarsamtakanna var oft um það rætt, að ekki væri nógu ljóst, hvað ákvæði greinarinn- ar fælu í raun og veru í sér. Hins vegar er ekki um það vit að, að mismunandi skoðanir á efni hennar hafi valdið nokkr- um deilum milli aðildarríkj- anna eða einstakra fyrirtækja eða borgara í aðildarríkjunum. Á fundi, sem ráðherrar ríkja Fríverzlunarsamtakanna héldu með sér í Bergen í maí 1966, komu þeir sér saman um túlk un á þessari grein og hefur skilningur á henni síðan verið byggður á þessari svonefndu Bergen-samþykkt. Samkvæmt henni taka ákvæði 16. greinar- innar til þessarar atvinnustarf- semi; 1. Heildverzlúnar og uniboðs- verzlunar með EFTA-vörur. 2. Fyrirtækja, sem starfa að samsetningu á EFTA-vörum úr einstökum hlutum. 3. Fyrirtækja, sem framleiða EFTA-vörur, sem mestmegnis á að flytja út til annarra aðild- arríkja. Rétturinn, sem 16. greinin veitir aðiljum í einu aðildar- ríki til þess að stofna iðnaðar- útflutningsfyrirtæki í öðru að- ildarríki, er þó mjög takmark- aður. Ekki er um þennan rétt að ræða, ef; 1. Stofnun fyrirtækisins hef- ur í för með sér eignarrétt á innlendum náttúrugæðum, og verður að líta svo á, að hér sé einnig átt við hagnýtingu nátt- úrugæða eins og fiskistofna. 2. Stofnun fyrirtækisins veld ur nauðsyn á aðgangi að fjár- magnsmarkaði landsins. 3. Ef um er að ræða fjárfesL ingu í starfandi fyrirtæki, og þýðir þetta, að ákvæðin taka aðeins til nýrra fyrirtækja, ef um framleiðslufyrirtæki er að ræða.“ LÖG UM STOFNUN FYFÍRTÆKJA „Við allar þessar takmarkan ir bætist það, að innan Fríverzl unarsamtakanna eru engar brigður á það bornar, að sér- hvert aðildarríki getur sett lög gjöf, sem gerir stofnun nýrra fyrirtækja háða sérstöku opin- beru leyfi. Ekkert aðildarríkj- anna setti að vísu slíka löggjöf í framhaldi af stofnun Fríverzl unarsamtakanna, og virðist það benda til þess, að ekkert þeirra hafi óttazt óeðlileg eða skað- leg áhrif ákvæða 16. greinar- innar. Þegar hugsanleg aðild að Efnahagsbandalaginu komst á dagskrá í Noregi, settu Norð menn hins vegar nýja löggjöf um leyfi til stofnunar fyrir- tækja í fiskiðnaði. Slík löggjöf hafði áður verið í gildi um aðr- ar atvinnugreinar í Noregi. Með slíkri löggjöf hér væri hægt að gera stofnun hvers kon ar fyrirtækja háða leyfi stjórn íarvaláa, ærlend'ra (fyriittækja og innlendra. Þess vegna hafa sámhliða flutningi þessarar þingsályktnuartillögu tvö frum vörp verið lögð fyrir hið háa Alþingi, annað um breytingu á lögunum um iðju og iðnað. Er þar gert ráð fyrir því, að gera megi stofnun nýrra fyrir tækja háða samþykki inn- lendra stjórnarvalda. Innan Frí verzlunarsamtakanna eru ekki brigður á það bornar, að heim- ilt væri að setja hvers konar skilyrði fyrir leyfi. Neita mætti um leyfið, ef stjórnarvöld teldu ekki þörf á nýju fyrirtæki í þeirri grein, sem um er að ræða, annað hvort í landinu öllu eða á þeim stað, sem um er að ræða — ef vinnuafl er ekki talið fyrir hendi — ef það er talið hafa truflandi áhrif á atvinnulíf eða viðskipti o.s.frv. Þess ber þó að geta, að ekki mætti samtímis neita um stofn un fyrirtækis, sem ákvæði 16. greinar taka til, en leyfa stofn un nákvæmlega sams konar ís lenzks fyrirtækis á sama stað. Ef íslenzk yfirvöld vilja ekki leyfa stofnun erlends fyrirtæk is, sem 16. 'greinin tekur til, væri þó undantekningarlaust hægt að finna rökstuðning fyr- ir neitun, sem hinn erlendi að ili yrði að taka gilda. Hann gæti beðið ríkisstjóm sína að taka málið upp við íslenzku rík isstjórnina eða við ráð samtak- anna í Genf. Hann gæti þó ekki vænzt neins jákvæðs árangurs af slíku. Og hann gæti ekkert við því sagt, þótt íslenzk stjórn völd veittu innlendum aðila slikt leyfi síðar, enda gætu að stæður þá verið orðnar breytt- ar.‘ ‘ ÓSKIR OG ÁRANGUR í lok ræðu sinnar bar Gylfi Þ. Gislason saman þær óskir, sem ísland setti fram í janúar- mánuði þ.á. á fundi EFTA-ráðs ins og niðurstöður þeirra samn inga, sem náðst hafa milli ís- lands og EFTA. Samkvæmt þessum samanburði ráðherrans (en meginatriði þess saman- burðar hefur Alþýðublaðið birt fyrir nokkrum dögum) er ljóst, að EFTA-löndin hafa fallizt á allar óskir íslendinga í öllum meginatriðum, — eins og bezt verður á kosið. í lok ræðu sinn ar sagði Gylfi Þ. Gíslason: LOKAORÐ „Allar ákvarðanir á einstök um stigum málsins hafa að sjálf sögðu verið teknar af ríkis-. stjórninni í heild, en EFTA,- nefnd þingflokkanna hefux jafn an verið höfð með í ráðum, þeg ar taka hefur þurft ákvarðan- ir, þótt hún eða einstakir full- trúar í henni beri að sjálfsögðu ekki ábyrgð á neinni ákvprðun sem tekin hefur verið. Sam- starf í nefndinni hefur hirjs veg ar verið ágætt og ég vo: la, að segja megi, að nefnda: menn bafi fundið, að vilji hafi verið til þess, að þeir fylgdust með öllu, sem í málinu gerðist — að þeir hafi jafnan fengið tæki færi til þess að koma sjónarrmð um sínum á framfæri, og feng ið svör við öllum snurningum, sem upp hafa komið. En ábyrgð á þvi, sem gert hefur verið, er að sjálfsögðu á herðum ríkis- stjórnarinnar einnar. Nú er það Alþingis að taka lokaákvörðun í þessu rnikil- væga máli. Öll gögn hafa verið lögð á borðið. Það er mjög eiri- dregin skoðun ríkisstjórnarinn ar, að Alþingi eigi að sam- þykkja þá þingsályktunartil- lögu, sem hér liggur fyrlr. Það er skoðun ^íkisstjórnaÁnnar, að með því móti mundi verða stigið eitt stærsta sporið. sem lengi hefur verið stigið tij þess að gera íslenzkt atvinnulíf öflugra og fjölbreyttara og leggja traustan grundvdll að áf ramhaldandi f ramförum og Hfskjarabótum á íslandh“ NÁTTÚRUVERND Frh. 12. síðu. að að starfa á nakkru breið- ari grundivélli, þ. e. a. s. þaui eiga að taka bæði t l land- græðslu og almsnnrar náitt- úruverndar. Þau rnunu m. a. veita aðstoð við skipuilaign- ingu siálfboiðavinnu í land- græðsl.u og Landgræðslan lergia fram fjármagn til krupa á grasfræi og áiburði í b-ví skvni og væntanleg’a fl’eiri að’lar. SömuJeið s m'unut þau taka að sér herferðina Hreint land — fagurt land og annast framihald hennar. — Og að lokutm: bað finnst ýmsum betta óheyriilega larigt og erfitt nafn, s°.m ra.^töfk- unum befur verið ffpft* — Landigræðslu- oet n-' tíúTu- verndarsamtclk íslands. — Jái, það er nú bað. Fn það er kannski elklki svo auð velt að finna betra nafn. Huvsaníegt er að bstta ta.ki e'nhvori'U'-n breytin.guim á að" alfund'jnuim'. Óla.fur sagði að lokum, að skrifstofan að L.ágmúla 9 ætti m. a að vería einskon- ar f y r i r g r e i ðsl u.S'k r i f s t o f a, þangað gaeti fólk snúið sér með óskir sínar og umkvart- anir í landgræðslu- og nátt- úr.uverndarmáiluim, þegar nauðsynl'egum úndirbúningj væri lokíð og starfsemin koæa in í fullan gang.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.