Alþýðublaðið - 12.12.1969, Qupperneq 2
2 Alþýðiiblaðið 12. d!e'sember 1969
Götu
Gvendur
FYRIR nokkru komst sú
skoðun í tízku að' músik væri
þeim mun betri sem hún heyrð-
ist lengri vegalengd, og var þvi
eiginlega hægt að fara að mæla
gæði hennar í metrum. I»anm-
ig varð allt í einu bert, að sumt
fólk, var hætt að gera greinar-
mun á músík og hávaða, en fram
til þess tíma hafði músík verið
sérstök tegund af hávaða að-
eins!
!
★ EINS OG LITBLINDIR
MÁLARAR.
Það er skammt stórviðburða
á niilli í heimi tónlistarinnar,
því nú er komið upp úr dúrn-
um, að tónlistarmenn eru að
verða heyrnarlausir, sumir að
minnsta kosti, Þetta eru ekki
litlar fréttir, heyrnarlaus tón-
listarmaður er með örfáum
undantekningum eitthvað í lík-
ingu við litblindan málara eða
kokk sem hefur misst bragð-
skynið. Hlutaðeigandi tónlistar-
menn hafa líklega þanið glym-
tólin af slíkri ergi að heyrnar-
færin biluðu í þeim sjálfum, en
við það urðu þeim eðlileg við-
brögð að auka hávaðann enn til
þess að freista þess að vita hvað
þeir sjálfir væru að leika. F,n
þá gerðist hávaðinn svo óskap-
legur, að heyrnin tekur líka að
sljóvgast hjá áheyrendum, jafn-
vel mönnum sem staddir eru í
næstu húsum — og verður þá
allt við hæfi!
★ AÐ EIGA RÉTT Á
ÞÖGN.
Ekki er þó þetta neitt gaman-
mál. Það er aðeins hluti tónlist-
armanna sem hafa gert það að
sinni sérgrein að spilla heyrn
sinni og annarra. Á sama tíma
eru aðrir sem halda því fram
að menn eigi rétt á þögn. Har-
aldur Ölafsson dagskrárstjóri
útvarpsins flutti nýlega fréttir
af erlendu tónlistarþingi þar
sem krafan um þessa tegund
mannréttinda var skelegglega
borin fram. En nútímamaðurinn
fær ekki að lifa í þögn. í borg-
um er aldrei þögn; þar er allt
af hávaði af umferð, vélum og
útvarpi, ekki einu sinni er næt-
urhvíldin hljóð, og svo er kom-
ið að fósturbörn hávaðans úr
borgunum þola ekki þögn fjall-
anna og eyðislóða, ef þau vill-
ast þanga, finnst hún yfirþyrm-
andi og ærandi, eru í sannleika
eins og þorskur á þurru landi.
★ MÚSIK OG ÞÖGN.
Hávaðamúsíkkin er skilgetið
afkvæmi hávaðalífsins. Þegar
hávaðinn er orðinn eðlilegur
bakgrunnur hinnar hversdags-
legu mannlegu tilveru þarf
músíkin að vera meiri hávaði;
síðan verður hún ekkert nema
hávaði og hættir alveg að vera
músik. En hefði músík nokkurn
tíma orðið til, ef ekki hefði ver-
ið þögn? Er ekki músíkin að-
eins músik að hún komi til
manns í þögn? Götu-Gvendur.
I
I
I
I
I
!
I
I
I
II
I
I
7akið eftir - fakið eftir
Það erum við, sem seljum og kaupum gömlu
húsgögnm og húsmunina.
Alltaf eitthvað nýtt, þó gamalt sé.
FORNVERZLUNIN, Laugavegi 33, (bak-
husið) Sími 10059, heima 22926.
SAMSTARF MILLI BEA
OG FLUGFÉLAGSINS
□ í athugun er samstarf á milli
brezka flugfélagsins BEA og
Flugfélags íslands á flugleið-
inni London—Reykj avík. BEA
er eitt' umsvifamesta flugfélag
í Evrópu og fljúga vélar þess
til nálega hvers einasta lands
á meginlandi Evrópu. Ætti því
samstarf flugfélaganna að opna
ferðafólki frá öllum löndum
Evrópu leiðina til íslands, enda
kvaðst stjórnarformaður BEA
Roy Watns, sem staddur er á
landinu, og hélt blaðamanna-
fund í gær, hafa áhuga á að
lengja ferðamannatímann á ís
landi. Þá hefur komið til tals
í viðræðum Watts og Arnar
Johnsen, forstjóra F.Í., a'ð
möguleikar séu á því, að BEA
reisi hótel í Reykjavík, en ekkj
ert hef'Ur verið ákveðið umi
það mál ennþá.
Ætlunin er, ef samningar tak
ast, að hefja reglubundið flug
milli Reykjavíkur og London
Framhald bls. 15.
DAMASK
Gluggatjaidaefni
NÝKOMIN.
GARDINUEFNI
í F J öjLBRE'YTTU Ú |R V A L I .
BREIDDIR 120 CM, 130 CM, 140 CM, 150 CM.
B ORÍÐD Ú KiA IE FN I. ! ]
BORÐDÚKAB í gjafakössum og sfcakir.
H A N D K L ,Æ Ð I í igjafakössum log stök. i 1
INDVERSK GÓLFTEPPI
Stærðir 2x3, 244x344, 3x4, .3x4 44, 344x4.