Alþýðublaðið - 12.12.1969, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 12.12.1969, Qupperneq 8
8 A’þýð'Uiblaðið 12. d'e'sember 1969 Dekkið er fínasti stóll. Það er oft erfitt að vakna á morgnana, í svartasta skamm- deginu, vakna í niðamyrkri, hafandi farið að sofa í niða- myrkri kvöldið áður. Ekki bæt ir það úr þegar við verðum á- þreifanlega vör við það, að snjó hefur kyngt niður um nóttina, við sjáum kannski út um eld- húsgluggann, þegar við gleyp- um í okkur morgunmatinn í flýti, snj óflyksurnar falla til jarðar og breiða sig miskunn- arlaust yfir hús, garða og göt- ur. Ekki batnar það þegar út er komið, 14 stiga gaddur og loðhúfan fannst ekki. Við bölv um í hljóði, sumir láta sér ef- laust nægja að bíta bara á jaxl inn, en allavega verðum við að herða okkur upp, því nú er komið að því sem kviðum fyrir allt frá því að við litum fyrst út um eldhúsgluggann. Yfir bílnum liggur að minnsta kosti fets þykkt snjólag, og það þarf að hverfa. Við sópum snjón um af bilnum með hendinni, opnum bílinn og náum í rúðu- sköfuna til að skafa hrímið af rúðunum. Þegar framrúðan er orðin hrein vinstra megin gef- umst við upp, setjumst inn í bílinn, tökum af okkur hanzk- ana og blásum í kaun, því 14 stiga frost bítur í fingurna við þvílíka iðju. Þá er að finna lyk- ilinn, finna svissinn í myrkr- inu og starta. Vélin hreyfist varla, hún drattast áfram, einn . . . tvo, þrjá snúninga, síðan ekki söguna meir. Við hlaup- um inn, hringjum á sendibíl síðan byrjar stríðíð, við skríð- um undir bilinn, bindum gadd- freðinn kaðal í fjarðarhengsli. Sendibíllinn ekur af stað og brátt tekur vélin að mala. Sendibíllinn fer og við förum að rýna út í myrkrið og hríð- ina en sjáum ekki stóra snjó- skaflinn sem við stefnum á, og allt í einu er allt fast. Klukk- an er farin að ganga tíu, og bölvandi förum við í næstu sjoppu og hringjum á leigubíl. Það fer að birta og börnin eru vöknuð. Þau reka strax Óbrigðult merki um, aff jólin eru í nánd. En grænu grenitrén eru líka merki um það, að sumarið kemur einhverntímann enda voru jólin ein mitt hátíð hækkandi sólar í tíð forfeðra okkar. Sumardekkið hans pabba er tif margra hluta nytsamlegt í snjón. um, þegar það er í höndunum á 4 ára snáða. augun í snjóinn og reka upp fagnaðaróp, þetta er eitthvað fyrir þau. Peysur, úlpur, húf- ur, vettlingar og treflar eru rifnir fram úr hillum og þau eru ekki í rónni fyrr en þau eru komin út í allan snjó- inn og geta farið að renna sér á sieðunum, hnoða snjóbolta éða bara velta sér upp úr snjón um. Hann Birgir Þór Birgisson var að leika sér í snjónum fyr- ir utan húsið heima hjá sér, þegar blaðamann í efnisleit bar að. Hann hafði fundið sér skemmtilegt leikfang. Það er eitt af sumardekkjunum hans pabba og svona dekk bjóða ímyndunarafli fjögurra ára snáða upp á mar.ga möguleika. Það ej hægt að reisa það upp við vegg og sitja í því, það er hægt að rúlla því eftir göt- unni, það er hægt að lyfta því hátt upp í loftið og þykjast vera afskaplega sterkur, því vitanlega hlýtur að þurfa af- skaplega sterkan mann til að lyfta svo merkilegum hlut sem bíladekki. Við ökum framhjá Hagaskóia, þar voru frímínútur og krakk- arnir heyja æsandi snjóbardaga eins og vanalega og börðust þar strákar gegn stelpum og mátti ekki á milli sjá þegar skóiabjallan glumdi. Og þar sem útlaginn hans Ein ars sþs;idur með vísitölufjöl- skylduna sína, er verið að setja upp grænt grenitré. Það er lyftubíll frá rafveitunni sem er að reisa tákn sumarsins sem á einhverntímann eftir að koma aftur, tákn bjartsýni barnanna sem taka snjóinn eins og hann er og nota hann út í yztu æs- ar á meðan er, — sumarið kem ur á sínum tíma, hvemig sem það annars verður. — Þ.G.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.